1
Minning

Steingrímur Ingi Björnsson fyrrverandi landsliðsmaður í knattspyrnu látinn

2
Innlent

Innköllun á Xpeng-bifreiðum vegna hættu á alvarlegu slysi

3
Fólk

„Þá komst ég að því að ég fæddist heilbrigður“

4
Sport

Ætlar að birta eina brjóstamynd á dag þar til þjálfari Man Utd verður rekinn

5
Heimur

Ódýrt Icelandair-flug varð að 3.000 dala martröð

6
Fólk

Hlýlegt og mikið endurnýjað fjölskylduhús komið á sölu

7
Heimur

Anika Rashaun, fyrrverandi raunveruleikasjónvarpsstjarna, látin 34 ára

8
Pólitík

Bæjarstjóri Suðurnesjabæjar segir fyrstu 75 dagana hafa verið eldskírn

9
Innlent

Hundur reif buxur vegfaranda fyrir utan matvöruverslun

10
Heimur

Leknir tölvupóstar grafa undan skýringum leiðtoga þýska hægriöfgaflokksins

Til baka

„Lífið varð erfitt í kjölfar ásakananna“

Ari Edwald opnar sig um Pottamálið

Ari Edwald
Ari EdwaldAri er oddviti Miðflokksins í borginni
Mynd: Golli

Ari Edwald er oddviti Miðflokksins í borgarstjórnarkosningunum sem fara fram 16. maí. Í glænýju viðtali við Mannlíf opnar hann sig um það sem hefur mótað hann í lífinu en hér fyrir neðan má sjá kafla úr viðtalinu þar sem hann talar um sakir sem bornar voru á hann og vini hans fyrir nokkrum árum en málið síðar látið falla niður. Um er að ræða hið svokallaða Pottamál.

Ekki eins í pottinn búið

Ari segist vilja meina að heilt yfir hafi hann fyrst og fremst notið mikillar velgengni í lífinu, fengið mörg tækifæri og átt gott fjölskyldulíf þrátt fyrir tvo hjónaskilnaði. „Það voru ekki átök í kringum þá. Fyrri skilnaðurinn var eftir 29 ára samband,“ segir hann en þau Þórunn voru 16 og 17 ára þegar þau kynntust. „Hlutirnir einfaldlega breytast. Í dag er mjög gott samkomulag og samstarf við báða fyrri maka mína og allt fólk. Góður vinur minn orðaði það nýlega þannig að hann væri svo ánægður með að það væri allt gott í kringum Ara. Ég hef alltaf lagt áherslu á að hlutirnir séu á eins lygnum sjó og hægt er. En það getur enginn reiknað með því og ætlast til þess að lífið sé alltaf bara dans á rósum og það hefur ekkert verið hjá mér heldur. Ég hef meðal annars upplifað það að hafa verið borinn röngum sökum sem varð um hríð að töluvert mikilli aurskriðu lyga,“ segir Ari og á þarna við sakir sem hann og nokkrir vinir hans voru bornir fyrir rúmum fjórum árum vegna meintra atvika ári áður. Þeir kærðu síðar viðkomandi fyrir tilraun til fjárkúgunar og hótanir sem var svarað með kæru um kynferðisbrot. Rannsókn þeirra mála var hætt fyrir tæpum þremur árum.

„Þetta var áfall og lífið varð erfitt í kjölfar ásakananna. En ég átta mig líka á því að svona högg eru engan veginn sambærileg við að ástvinur greinist með lífshættulegan sjúkdóm.

Til að styrkja mig hef ég bæði leitað ráðgjafar og hlustað á ýmsa fyrirlestra. Svo kemur kannski eitt samtal sem hefur meiri áhrif en annað og maður áttar sig kannski á því seinna að eitthvað kveikti innra með manni betri hugsunarferil og hafði þegar upp var staðið mikið gagn. Þannig að það er mjög mikilvægt að reyna að stjórna sínu hugsunum og hafa trú á því að það komi dagur eftir þennan dag og helga sig spennandi verkefnum.

Það er almennt ekkert eitt sem mótar mann. Maður lærir smátt og smátt. Það verða allir fyrir áföllum og það eiga allir tapleiki og maður þarf bara að rífa sig upp og horfa til framtíðar. Hrista af sér erfiðleika. Ef það er eitthvað eitt sem maður hefur lært þá er það mikilvægi rósemi hugans. Því það mun áfram ganga stundum betur og stundum verr. Reynslan kennir manni að halda haus í gegnum hvort tveggja og heldur ekki að missa sig þó vel gangi um hríð.

Mótlæti í lífinu hefur breytt mér að því leytinu að ég er þroskaðri. Ég er varari um mig og ég geng aðeins hægar um allar dyr, gleðinnar dyr jafnt sem aðrar. Ég er reynslunni ríkari að því leyti. En ég má samt ekki hætta að vera ég sjálfur. Við höfum verið að tala um þetta framboð. Ég hefði ekkert verið að bjóða mig fram árið 2022 og 2023. En ég er tilbúinn í dag þannig að ég tel mig vera búinn að læra og styrkjast.“

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Netanyahu vill nota rafmyntir til að komast hjá refsiaðgerðum
Heimur

Netanyahu vill nota rafmyntir til að komast hjá refsiaðgerðum

Seðlabankastjóri Ísraels er á öðru máli.
Skelfilegar ásakanir á hendur föður Meghan Markle rannsakaðar á Filippseyjum
Heimur

Skelfilegar ásakanir á hendur föður Meghan Markle rannsakaðar á Filippseyjum

Pentagon afhjúpar leyniskjöl um Roswell
Heimur

Pentagon afhjúpar leyniskjöl um Roswell

Sveinn Rúnar gagnrýnir viðbrögð við stuðningi Íslands við Úkraínu
Innlent

Sveinn Rúnar gagnrýnir viðbrögð við stuðningi Íslands við Úkraínu

Sorg: Hvað er hún og hvernig tekst maður á við hana?
Skoðun

Dávur í Dali

Sorg: Hvað er hún og hvernig tekst maður á við hana?

Hlýlegt og mikið endurnýjað fjölskylduhús komið á sölu
Myndir
Fólk

Hlýlegt og mikið endurnýjað fjölskylduhús komið á sölu

Vopnaður maður truflaði tökur á nýrri kvikmynd með Michael B. Jordan
Heimur

Vopnaður maður truflaði tökur á nýrri kvikmynd með Michael B. Jordan

Bæjarstjóri Suðurnesjabæjar segir fyrstu 75 dagana hafa verið eldskírn
Pólitík

Bæjarstjóri Suðurnesjabæjar segir fyrstu 75 dagana hafa verið eldskírn

Ætlar að birta eina brjóstamynd á dag þar til þjálfari Man Utd verður rekinn
Sport

Ætlar að birta eina brjóstamynd á dag þar til þjálfari Man Utd verður rekinn

„Þá komst ég að því að ég fæddist heilbrigður“
Viðtal
Fólk

„Þá komst ég að því að ég fæddist heilbrigður“

Ódýrt Icelandair-flug varð að 3.000 dala martröð
Heimur

Ódýrt Icelandair-flug varð að 3.000 dala martröð

Fólk

Hlýlegt og mikið endurnýjað fjölskylduhús komið á sölu
Myndir
Fólk

Hlýlegt og mikið endurnýjað fjölskylduhús komið á sölu

Húsið var reist árið 1970
Fimm hlutir sem konur taka strax eftir hjá karlmönnum
Fólk

Fimm hlutir sem konur taka strax eftir hjá karlmönnum

„Þá komst ég að því að ég fæddist heilbrigður“
Viðtal
Fólk

„Þá komst ég að því að ég fæddist heilbrigður“

Sveppi segist hafa bitið mann eftir deilur um reykingar
Myndband
Fólk

Sveppi segist hafa bitið mann eftir deilur um reykingar

Notalegt fjölskylduhús með á við garðinn til sölu
Myndir
Fólk

Notalegt fjölskylduhús með á við garðinn til sölu

Loka auglýsingu