1
Fólk

Guðmundur Ingi opnar sig um krabbameinsgreiningu

2
Pólitík

Bjarni Ben fær aukavinnu hjá ríkinu

3
Innlent

Birgir Rafn valinn fram yfir 20 manns

4
Fólk

Fimm hlutir sem konur taka strax eftir hjá karlmönnum

5
Peningar

Íslandsbanki stefnir Húsvíkingi vegna láns sem tekið var í appi

6
Fólk

Þriggja hæða einbýlishús í Eyjum leitar nýrra eigenda

7
Innlent

Enginn þingmaður þáði boðsmiða á NAZA

8
Innlent

Lögmaður dæmds morðingja segir fangelsisvistina neikvæða

9
Innlent

Vinsælir barnabílstólar innkallaðir vegna öryggishættu

10
Innlent

Þrír ökumenn fluttir á sjúkrahús

Til baka

Lögreglan telur að minkunum hafi verið sleppt af ásetningi

Óskar eftir vitnum og myndefnum úr bifreiðum

Lögreglan
Mynd: BHJ

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu telur að óprúttinn aðili eða aðilar hafi staðið að því að hleypa hundruðum minka úr minkabúinu Dalsbúi í Mosfellsdal snemma í morgun. Nú er leitað vitna og myndefnis sem gæti varpað ljósi á málið.

Í tilkynningu frá lögreglu kemur fram að rannsóknin beinist að mannaferðum í Mosfellsdal frá miðnætti og þar til tilkynning um strok minkanna barst laust eftir klukkan sjö í morgun.

Lögreglan telur líklegt að sá eða þeir sem stóðu að verknaðinum hafi verið á ferð á bifreið og lagt henni einhvers staðar á svæðinu áður en minkunum var sleppt.

Því er sérstaklega óskað eftir því að þeir sem kunna að hafa upptökur úr ökutækjamyndavélum eða öryggismyndavélum á svæðinu fari yfir myndefni sitt. Lögreglan nefnir meðal annars Þingvallaveg, Hlaðgerðarkotsveg, Reykjahlíðarveg, Æsustaðaveg, Æsustaðaland, Hraðastaðaveg, Helgadalsveg og Dalsbúsveg sem svæði sem rannsóknin nær til.

Þeir sem kunna að búa yfir upplýsingum eða myndefni eru beðnir um að senda það á netfangið [email protected], ásamt nafni og símanúmeri, eða hafa samband við lögreglu í síma 444-1000.

Fyrr í dag kom fram að nokkur hundruð minkar hefðu sloppið úr Dalsbúi og að skotvopnum yrði beitt við að fanga dýrin. Rannsókn lögreglu bendir nú til þess að um refsiverðan verknað kunni að hafa verið að ræða.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Vinur sagður í hættu eftir árás
Innlent

Vinur sagður í hættu eftir árás

Þrír ökumenn fluttir á sjúkrahús
Innlent

Þrír ökumenn fluttir á sjúkrahús

Vilhjálmur prins vill ekkert hafa með Harrý bróður sinn að gera
Heimur

Vilhjálmur prins vill ekkert hafa með Harrý bróður sinn að gera

Birgir Rafn valinn fram yfir 20 manns
Innlent

Birgir Rafn valinn fram yfir 20 manns

Judi Dench neyðist til að leggja leikferilinn á hilluna
Heimur

Judi Dench neyðist til að leggja leikferilinn á hilluna

Ragnar Þór boðar frekari breytingar á fæðingarorlofi
Pólitík

Ragnar Þór boðar frekari breytingar á fæðingarorlofi

Vinsælir barnabílstólar innkallaðir vegna öryggishættu
Innlent

Vinsælir barnabílstólar innkallaðir vegna öryggishættu

Fyrrum eiginmaður Katie Price sýknaður af nauðgunarákærum
Heimur

Fyrrum eiginmaður Katie Price sýknaður af nauðgunarákærum

Fimm hlutir sem konur taka strax eftir hjá karlmönnum
Fólk

Fimm hlutir sem konur taka strax eftir hjá karlmönnum

Tíu menn vernduðu Jason Alexander þegar skothvellur heyrðist í nágrenninu
Myndband
Heimur

Tíu menn vernduðu Jason Alexander þegar skothvellur heyrðist í nágrenninu

Fyrrverandi eiginkonan mætti á heimilið og hóf skothríð
Heimur

Fyrrverandi eiginkonan mætti á heimilið og hóf skothríð

Maður látinn eftir smit af veiru sem leggst á búfé
Heimur

Maður látinn eftir smit af veiru sem leggst á búfé

Bjarni Ben fær aukavinnu hjá ríkinu
Pólitík

Bjarni Ben fær aukavinnu hjá ríkinu

Innlent

Vinur sagður í hættu eftir árás
Innlent

Vinur sagður í hættu eftir árás

Lögmaður dæmds morðingja segir fangelsisvistina neikvæða
Innlent

Lögmaður dæmds morðingja segir fangelsisvistina neikvæða

Þrír ökumenn fluttir á sjúkrahús
Innlent

Þrír ökumenn fluttir á sjúkrahús

Birgir Rafn valinn fram yfir 20 manns
Innlent

Birgir Rafn valinn fram yfir 20 manns

Vinsælir barnabílstólar innkallaðir vegna öryggishættu
Innlent

Vinsælir barnabílstólar innkallaðir vegna öryggishættu

Ólafur Ragnar segir hagvöxt ekki segja alla söguna
Innlent

Ólafur Ragnar segir hagvöxt ekki segja alla söguna

Loka auglýsingu