
Fyrrum NFL ofurstjarnan Adrian Peterson lenti í slagsmálum við pókerspilara eftir ágreining vegna pókers og átökin náðust öll á upptöku
Atvikið átti sér stað 27. maí síðastliðinn á meðan Peterson og aðrir voru að spila póker í JokerStars, sem er klúbbur í Houston í Texas. Peterson segir að hann og vinur hans hafi lent í deilum við spilaborðið og „eitt leiddi af öðru,“ og þeir fóru að slást.
Á myndbandinu sést hvernig mennirnir skipta á höggum í nokkrar sekúndur, jafnvel eftir að maður reyndi að aðskilja þá. Peterson fékk röð af höggum í andlitið í byrjun slagsmálanna, en náði sjálfur að hitta nokkrum sinnum.
Eftir að slagsmálunum lauk mátti sjá að andlit beggja manna voru blóðug en Peterson hélt þó fram að hann hefði fengið meiðsl sín eftir að hafa dottið á stól en ekki vegna höggs.
Peterson viðurkenndi að hafa verið undir áhrifum áfengis, en fullyrti að það hefði ekki verið orsök slagsmálanna. „Ég og gaurinn erum góðir núna,“ sagði Peterson. „Við höfum þekkst lengi. Þetta var bókstaflega eins og bræðraslagur. Við vorum ósammála, skiptumst á orðum og höggum – og ekkert meira.“
Peterson sagði að eftir slagsmálin hafi þeir náð sáttum. „Mér leið mjög illa,“ sagði hann. „Þetta er atvik sem ég sé eftir.“
Lögreglan var ekki kölluð til að rannsaka málið.
Peterson var lengi einn af bestu leikmönnum NFL-deildarinnar og var valinn besti leikmaður hennar árið 2012 þegar hann lék með Minnesota Vikings.
Komment