
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hafði afskipti af nokkrum málum í dag, þar á meðal vegna umferðarlagabrota, þjófnaðar og brota á áfengislögum.
Í miðbænum var ökumaður kærður fyrir að aka um göngugötu. Í Reykjavík voru tveir aðilar handteknir í aðskildum málum; annars vegar ökumaður grunaður um ölvunar- og vímuakstur og hins vegar einstaklingur sem hlýddi ekki fyrirmælum lögreglu og er einnig grunaður um brot á áfengislögum.
Þá var tilkynnt um þjófnað í matvöruverslun í Kópavogi. Í Breiðholti varð minni háttar umferðaróhapp, en ekki er talið að alvarleg meiðsl hafi orðið á fólki.
Í Grafarvogi var ökumaður einnig handtekinn grunaður um ölvunar- og vímuakstur.
Lögreglan sinnti auk þess almennu umferðareftirliti þar sem nokkrir ökumenn voru kærðir fyrir ýmis umferðarlagabrot, meðal annars notkun farsíma við akstur og fyrir að vera ekki spenntir í öryggisbelti.
Komment