
Lögregla sinnti í gærkvöldi og nótt fjölda útkalla á höfuðborgarsvæðinu þar sem meðal annars komu upp mál tengd þjófnaði, akstri undir áhrifum áfengis og fíkniefna, umferðaróhappi og fíkniefnabrotum.
Lögregla var tvisvar kölluð til vegna þjófnaðar í verslunum. Í báðum tilvikum var málið leyst á vettvangi.
Alls voru sjö ökumenn stöðvaðir í umferðinni grunaðir um akstur undir áhrifum áfengis eða fíkniefna. Þeir voru allir látnir lausir að lokinni sýnatöku.
Lögregla sinnti einnig umferðaróhappi þar sem bifreið hafði verið ekið á ljósastaur. Ökumaðurinn hafði yfirgefið vettvang þegar lögregla kom á staðinn en fannst skömmu síðar og var handtekinn grunaður um akstur undir áhrifum áfengis.
Í miðbæ Reykjavíkur var einn einstaklingur handtekinn eftir að hafa ráðist á dyravörð. Við leit á manninum fundust fíkniefni og var hann fluttur á lögreglustöð þar sem hann var vistaður í fangaklefa þar til hann verður hæfur til skýrslutöku.
Annar einstaklingur var handtekinn grunaður um sölu og dreifingu fíkniefna. Sá var einnig grunaður um akstur án ökuréttinda auk annarra brota sem tengjast fíkniefnasölunni.
Þá var ökumaður stöðvaður í akstri grunaður um akstur undir áhrifum fíkniefna. Við leit í bifreið hans fundust meint fíkniefni í einhverju magni og vaknaði grunur um að hann hygðist selja efnin. Viðkomandi var vistaður í fangageymslu í þágu rannsóknar málsins.
Í öðru tilviki var ökumaður stöðvaður grunaður um akstur undir áhrifum bæði fíkniefna og áfengis. Hann reyndist einnig sviptur ökuréttindum en var látinn laus að lokinni sýnatöku.
Að lokum var enn einn ökumaður stöðvaður grunaður um akstur undir áhrifum fíkniefna og var hann einnig látinn laus eftir sýnatöku.
Komment