1
Fólk

Selja algjörlega ásættanlegt einbýli á Kársnesi

2
Heimur

Karlmaður skar eigin kynfæri af og lést

3
Heimur

Maður lést eftir fall af kletti á Kanarí

4
Innlent

Átti í vafasömum samskiptum við börn

5
Innlent

Ökumaður kærður fyrir að aka um göngugötu

6
Pólitík

Sigmundur Davíð lofaði þjóðaratkvæðagreiðslu um ESB viðræður

7
Heimur

Mikill fjöldi látinn eftir sprengjuregn í Úkraínu

8
Pólitík

Meirihluti styður áframhaldandi viðræður Íslands við ESB

9
Heimur

Justin Bieber missti stjórn á skapi sínu

10
Innlent

Reykvíkingur kom lögreglunni á óvart með óútreiknanlegri hegðun

Til baka

Reykvíkingur kom lögreglunni á óvart með óútreiknanlegri hegðun

Hlíðar
ReykjavíkÍ morgun voru allir klefar lögreglunar í notkun.
Mynd: Víkingur

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu brást við nokkrum útköllum í dag, meðal annars vegna óspekta, umferðarlagabrota og handtaka vegna ölvunar og fíkniefnaneyslu.

Óljós tilkynning barst lögreglu um öskur og læti frá íbúð í Reykjavík. Þegar lögregla kom á vettvang sáust brotnir munir fyrir aftan húsið og stóð einn íbúi á svölum og öskraði. Þegar lögreglumenn reyndu að nálgast manninn í gegnum sameign hússins sprautaði hann slökkvitæki að þeim og kastaði því síðan niður stiga í átt að lögreglumönnunum. Lögreglu tókst að komast inn í íbúð mannsins þar sem hann ræddi við lögreglumenn en þótti óútreiknanlegur. Hann var handtekinn og vistaður í fangaklefa. Í íbúðinni sáust meðal annars hnífaför í vegg og merki um áfengis- og fíkniefnaneyslu. Maðurinn var vistaður í klefa þar til unnt verður að taka af honum skýrslu.

Þá barst tilkynning um glannalegan akstur á snjómoksturstæki. Við nánari athugun kom í ljós að ökumaðurinn var undir áhrifum vímuefna og jafnframt sviptur ökuréttindum. Hann var handtekinn og farið með hann í blóðsýnatöku.

Lögregla stöðvaði einnig mann við matvöruverslun í Kópavogi sem reyndist vera eftirlýstur og undir áhrifum áfengis. Við leit fannst útdraganleg kylfa í fórum hans. Maðurinn var handtekinn og vistaður í fangaklefa.

Í öðru máli var tilkynnt um ökumann sem hafði ekið á bifreið tilkynnanda og yfirgefið vettvang án þess að stöðva. Tilkynnandi elti bifreiðina heim til ökumannsins þar sem tveir menn voru í henni. Lögregla fann mennina síðar í íbúð þar sem annar þeirra hafði falið sig í fataskáp. Mennirnir neituðu báðir að hafa ekið bifreiðinni og reyndust báðir vera ölvaðir. Þeir voru handteknir og vistaðir í fangaklefa.

Að lokum aðstoðaði lögregla ökumann sem hafði ekið á ljósastaur með þeim afleiðingum að bifreiðin hafnaði utan vegar. Ökumaðurinn slapp óslasaður og bifreiðin reyndist enn ökufær.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Justin Bieber missti stjórn á skapi sínu
Myndband
Heimur

Justin Bieber missti stjórn á skapi sínu

Myndband náðist af söngvaranum í slæmu skapi
Sigmundur Davíð lofaði þjóðaratkvæðagreiðslu um ESB viðræður
Pólitík

Sigmundur Davíð lofaði þjóðaratkvæðagreiðslu um ESB viðræður

Mikill fjöldi látinn eftir sprengjuregn í Úkraínu
Heimur

Mikill fjöldi látinn eftir sprengjuregn í Úkraínu

Páfinn biður fyrir friði í Mið-Austurlöndum
Heimur

Páfinn biður fyrir friði í Mið-Austurlöndum

Karlmaður skar eigin kynfæri af og lést
Heimur

Karlmaður skar eigin kynfæri af og lést

Maður lést eftir fall af kletti á Kanarí
Heimur

Maður lést eftir fall af kletti á Kanarí

Tveir handteknir vegna „grunsamlegra tækja“ við heimili borgarstjóra New York
Heimur

Tveir handteknir vegna „grunsamlegra tækja“ við heimili borgarstjóra New York

Meirihluti styður áframhaldandi viðræður Íslands við ESB
Pólitík

Meirihluti styður áframhaldandi viðræður Íslands við ESB

Selja algjörlega ásættanlegt einbýli á Kársnesi
Myndir
Fólk

Selja algjörlega ásættanlegt einbýli á Kársnesi

Átti í vafasömum samskiptum við börn
Innlent

Átti í vafasömum samskiptum við börn

Ökumaður kærður fyrir að aka um göngugötu
Innlent

Ökumaður kærður fyrir að aka um göngugötu

Ræða frumvarp sem mun tvöfalda hámarksrefsingu vegna samkynhneigðar
Heimur

Ræða frumvarp sem mun tvöfalda hámarksrefsingu vegna samkynhneigðar

Innlent

Reykvíkingur kom lögreglunni á óvart með óútreiknanlegri hegðun
Innlent

Reykvíkingur kom lögreglunni á óvart með óútreiknanlegri hegðun

„Börnin fyrst, svo allt hitt”
Innlent

„Börnin fyrst, svo allt hitt”

Átti í vafasömum samskiptum við börn
Innlent

Átti í vafasömum samskiptum við börn

Ökumaður kærður fyrir að aka um göngugötu
Innlent

Ökumaður kærður fyrir að aka um göngugötu

Lögreglan varar við svikurum
Innlent

Lögreglan varar við svikurum

Bryndís stal sjö milljónum
Innlent

Bryndís stal sjö milljónum

Loka auglýsingu