1
Fólk

Gummi Ben selur glæsilegt endaraðhús

2
Innlent

„Slæma stelpan“ enn og aftur dæmd í fangelsi

3
Minning

Felix Ólafsson er fallinn frá

4
Pólitík

Landsliðshetja leiðir Miðflokkinn

5
Minning

Þorkell Jóelsson er látinn

6
Heimur

Meint fórnarlamb Epstein segir hann hafa verið föður

7
Innlent

Lögreglan gerði manni tilboð

8
Fólk

Þingmaður Miðflokksins rakst á „borgarstjóra New York“

9
Innlent

Reykvísk eiginkona vill skilja við „þræl fíknidjöfulsins“

10
Innlent

Fjórir Kínverjar til viðbótar ákærðir

Til baka

Reykvísk eiginkona vill skilja við „þræl fíknidjöfulsins“

Eignmaðurinn sást síðast skólaus, símlaus og auralaus á bensínstöð í Búlgaríu

Reykjavík
ReykjavíkMyndin tengist fréttinni ekki beint.
Mynd: Víkingur

Kona, búsett í Reykjavík, hefur stefnt eiginmanni sínum til að fá lögskilnað og vill hún fá fullt forræði yfir dóttur þeirra hjóna.

Í stefnunni stendur að konan hafi ítrekað flutt burt af heimili þeirra og hafi núna ekki búið saman með eiginmanni sínum í yfir eitt og hálft ár. Ástæða þess er að eiginmaðurinn er „þræll fíknidjöfulsins“ samkvæmt stefnunni og fer alltaf aftur og aftur í sama sporið, hann fer í meðferð og skömmu síðar fellur hann aftur í fíknipottinn. Hann hefur farið í á fimmta tug meðferða en er enn háður fíknidjöflinum. Konan getur ekki verið nálægt honum þegar hann er kominn í neyslu og það hafi skelfileg áhrif á dóttur þeirra. Jafnframt hafi það skelfileg áhrif á dóttur þeirra eftir að hún hefur umgengist föður sinn. Hún verði pirruð og reið.

Eiginmaðurinn hefur ekki beint lagt hendur á hana en beitir hana sína miklu andlegu ofbeldi þegar hann er í neyslu og þegar hann er nýkominn úr neyslutúrum sínum að sögn hennar. Þetta ofbeldi er það mikið að hún getur ekki verið í návígi við hann.

Þá hefur, samkvæmt stefnunni, ekki spurst til eiginmannsins frá 18. ágúst 2025, þegar hann sást síðast, skólaus, símlaus og auralaus á bensínstöð í Búlgaríu, eftir að honum hafði verið sleppt úr haldi lögreglu þar í landi. Kærasta hans sem var með honum í Búlgaríu á umræddum tíma hefur ekkert náð sambandi við hann og er komin heim og fór til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu til skýrslutöku. Lögreglan er að kalla eftir gögnum frá Búlgaríu. Allir telja að meiri líkur en minni séu á því að eiginmaðurinn sé fremur liðinn en lífs. Eiginkonan hefur reynt að fá leiðréttingu hjá Skattinum þar sem allar barnabætur hafa farið til eiginmannsins en ekki til hennar.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Eitt frumlegasta hús landsins komið á sölu
Myndir
Fólk

Eitt frumlegasta hús landsins komið á sölu

Helgi Magnús kominn aftur á stjá
Fólk

Helgi Magnús kominn aftur á stjá

Þurfti að fara í röntgen eftir Röntgen
Innlent

Þurfti að fara í röntgen eftir Röntgen

Þórir Einarsson er fallinn frá
Minning

Þórir Einarsson er fallinn frá

Hnífaræningi hótaði fólki
Innlent

Hnífaræningi hótaði fólki

Notaði bíla eins og fótbolta
Innlent

Notaði bíla eins og fótbolta

„Slæma stelpan“ enn og aftur dæmd í fangelsi
Innlent

„Slæma stelpan“ enn og aftur dæmd í fangelsi

Þorkell Jóelsson er látinn
Minning

Þorkell Jóelsson er látinn

Landsliðshetja leiðir Miðflokkinn
Pólitík

Landsliðshetja leiðir Miðflokkinn

Veitir 91 milljón í styrki
Pólitík

Veitir 91 milljón í styrki

Ísland tekur þátt í máli fyrir Alþjóðadómstólnum
Pólitík

Ísland tekur þátt í máli fyrir Alþjóðadómstólnum

Borgin svarar loksins ákalli íbúa Laugardals
Innlent

Borgin svarar loksins ákalli íbúa Laugardals

Innlent

Reykvísk eiginkona vill skilja við „þræl fíknidjöfulsins“
Innlent

Reykvísk eiginkona vill skilja við „þræl fíknidjöfulsins“

Eignmaðurinn sást síðast skólaus, símlaus og auralaus á bensínstöð í Búlgaríu
Borgin svarar loksins ákalli íbúa Laugardals
Innlent

Borgin svarar loksins ákalli íbúa Laugardals

Þurfti að fara í röntgen eftir Röntgen
Innlent

Þurfti að fara í röntgen eftir Röntgen

Hnífaræningi hótaði fólki
Innlent

Hnífaræningi hótaði fólki

Notaði bíla eins og fótbolta
Innlent

Notaði bíla eins og fótbolta

„Slæma stelpan“ enn og aftur dæmd í fangelsi
Innlent

„Slæma stelpan“ enn og aftur dæmd í fangelsi

Loka auglýsingu