1
Stjórnandinn

Rík af reynslu og auðmjúk eftir röð áfalla

2
Fólk

Selja miðbæjargimstein með sér bílastæði

3
Innlent

Veiðimaður ákærður

4
Innlent

Segir frá ofbeldi fyrrverandi tengdadóttur

5
Fólk

Með fallegri húsum Reykjavíkur á sölulista

6
Menning

Hinn vannýtti rababari

7
Pólitík

Vilja sterkari og skýrari hagsmunagæslu

8
Pólitík

Þorgerður Katrín ræddi við varaþjóðaröryggisráðgjafa Trump

Til baka

Segir frá ofbeldi fyrrverandi tengdadóttur

Stúlkan hafi hótað öllu illu og lagt piltinn í lífshættu.

Brynja Baugsdóttir TIkTok
Brynja BaugsdóttirOpnaði sig á TikTok um ofbeldissamband sem sonur hennar lenti í.
Mynd: TikTok brynja.baugs

Brynja Ýr Baugsdóttir, sem birti frásagnir á TikTok af ofbeldi sem 18 ára sonur hennar varð fyrir í nánu sambandi, stígur fram í viðtali við Vísi um helgina og segir alla söguna af margs konar ofbeldi af hendi kærustunnar.

Kærastan hafi meðal annars slegið hann ítrekað meðan hann keyrði bíl, hótað að svipta sig lífi og síðan bætt í ofbeldishegðunina.

Stúlkan hafi síðan keyrt bíl sonar hennar próflaus og klesst hann. Þá hafi foreldrar stúlkunnar varað Brynju við sambandinu.

Í desember kærðu þau stúlkuna fyrir líkamsárás.

„Það gerðist eftir að sonur minn kom heim einn daginn með glóðarauga og ég fór með hann til læknis til að fá áverkavottorð,“ segir hún við Vísi.

Brynja segir að fyrrverandi kærastan hafi haldið áfram að áreita son hennar og nýja kærustu hans. Þá hafi hún hótaði henni, beðið son hennar að drepa sig, hótað nýju kærustunni lífláti og svo framvegis, undir eigin aðgangi og öðrum aðgöngum á samfélagsmiðlum.

„Ég ætla svo mikið að eyðileggja líf ykkar,“ sagði stúlkan við Brynju, samkvæmt skilaboðum sem hún birtir á TikTok.

„Svaraðu mér annars verður vesen fyrir þig kona,“ segir stúlkan síðan öðrum í skilaboðum. Þá segist hún aldrei ætla að hætta.

Drengurinn hefur sótt sér sálfræðiaðstoð eftir reynsluna, er hræddur og líður eins og hann þurfi alltaf að vera vakandi.

Í umfjöllun Vísis kemur fram að 29 prósent drengja sem höfðu verið í sambandi á unglingsárunum hefðu orðið fyrir einhvers konar ofbeldi í sambandinu, en 41 prósent stúlkna.

Þá sýni rannsóknir að drengir segi síður frá ofbeldinu.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Þorgerður Katrín ræddi við varaþjóðaröryggisráðgjafa Trump
Pólitík

Þorgerður Katrín ræddi við varaþjóðaröryggisráðgjafa Trump

„Við höfum verið að horfa upp á vaxandi togstreitu í alþjóðasamskiptum“
Vilja sterkari og skýrari hagsmunagæslu
Pólitík

Vilja sterkari og skýrari hagsmunagæslu

Með fallegri húsum Reykjavíkur á sölulista
Myndir
Fólk

Með fallegri húsum Reykjavíkur á sölulista

Rík af reynslu og auðmjúk eftir röð áfalla
Viðtal
Stjórnandinn

Rík af reynslu og auðmjúk eftir röð áfalla

Selja miðbæjargimstein með sér bílastæði
Myndir
Fólk

Selja miðbæjargimstein með sér bílastæði

Hver er Lúkas Geir?
Nærmynd
Innlent

Hver er Lúkas Geir?

Fluttur með sjúkrabíl eftir slys í Laugardalnum
Innlent

Fluttur með sjúkrabíl eftir slys í Laugardalnum

Stefán Einar segir ESB vera eins og „fötluð frænka“
Pólitík

Stefán Einar segir ESB vera eins og „fötluð frænka“

Tengdasonur Íslands glæsilegur í veislu Vanity Fair
Fólk

Tengdasonur Íslands glæsilegur í veislu Vanity Fair

Segir ummæli Sigmundar þau ljótustu sem íslenskur stjórnmálamaður hefur sagt
Innlent

Segir ummæli Sigmundar þau ljótustu sem íslenskur stjórnmálamaður hefur sagt

Innlent

Segir frá ofbeldi fyrrverandi tengdadóttur
Innlent

Segir frá ofbeldi fyrrverandi tengdadóttur

Stúlkan hafi hótað öllu illu og lagt piltinn í lífshættu.
Segir ummæli Sigmundar þau ljótustu sem íslenskur stjórnmálamaður hefur sagt
Innlent

Segir ummæli Sigmundar þau ljótustu sem íslenskur stjórnmálamaður hefur sagt

Hver er Lúkas Geir?
Nærmynd
Innlent

Hver er Lúkas Geir?

Fluttur með sjúkrabíl eftir slys í Laugardalnum
Innlent

Fluttur með sjúkrabíl eftir slys í Laugardalnum

Loka auglýsingu