Félagið Ísland-Palestína hefur boðað til samstöðugöngu laugardaginn 14. mars og verður gengið frá Skólavörðuholti. Hefst gangan klukkan 14:00 og mun stoppa við Austurvöll.
Gangan ber yfirskriftina „NEI! VIÐ HELFÖR ÍSRAELS OG BANDARÍKJANNA“
„Ísraelsríki og Bandaríkin halda áfram fjöldamorðum á saklausum borgurum Palestínu og Líbanon, og hafa nú með árásum sínum á Íran enn á ný gert heiminum ljóst að þeir skeyta engu um alþjóðalög eða mannúð. Á Gaza er ekkert vopnahlé heldur manngerð hungursneyð, landræningjar eru að taka yfir Vesturbakkann og allsherjar árás eru gerðar daglega á lífsnauðsynlega innviði í Palestínu, Líbanon og Íran. Hundruðir þúsunda verða myrtir ef brjálæðið verður ekki stöðvað strax. Ísrael og Bandaríkin treysta á þögult samþykki Evrópuþjóða eins og Íslands til að halda áfram glæpum sínum gegn saklausu fólki. Fjölmennum því öll sömul í samstöðugöngu gegn þessari helför Ísraels og Bandaríkjanna frá Skólavörðuholti laugardaginn 14. mars klukkan 14,“ segir í tilkynningu félagsins.


Komment