
Sema Erla Serdaroglu, stjórnmálafræðingur og baráttukona, segir rannsókn lögreglu á fjársöfnun fyrir Palestínu hafa staðið yfir í tvö ár án niðurstöðu og telur málið vera pólitískar ofsóknir. Þetta kemur fram í færslu sem hún birti í dag á samfélagsmiðlum.
Sema rifjar upp að í dag, 4. mars, séu liðin tvö ár síðan kæra var lögð fram gegn henni og Maríu Lilju Ingveldar-Þrastardóttur Kemp vegna fjársöfnunar sem ætlað var að hjálpa Palestínufólki að komast frá Gaza til Íslands, í miðju þjóðarmorði Ísraela.
„Í dag, þann 4. mars 2026, eru tvö ár síðan Einar S. Hálfdánarson, hæstaréttarlögmaður og endurskoðandi, „leyfði sér að bera fram kæru“ á hendur mér og Maríu Lilju Ingveldar-Þrastardóttur Kemp vegna „meintrar refsiverðar háttsemi“ okkar við fjársöfnun,“ skrifar hún.
Söfnunin var landssöfnun til að koma Palestínufólki með dvalarleyfi á Íslandi undan stríðinu á Gaza og til fjölskyldna sinna hér á landi. Að sögn Semu Erlu söfnuðust um 90 milljónir króna og um 200 einstaklingar, flest konur og börn, komust til landsins.
„Niðurstaðan var sú að um 90 milljónir söfnuðust og um 200 einstaklingar, flest konur og börn, komust undan þjóðernishreinsunun og öll þau sem höfðu eða hafa síðan fengið útgefið dvalarleyfi af íslenskum yfirvöldum komu til landsins,“ segir hún.
Samtökin Solaris – hjálparsamtök fyrir hælisleitendur og flóttafólk á Íslandi, sem Sema Erla er í forsvari fyrir, voru í lagalegu forsvari fyrir söfnunina og að sögn Semu Erlu komu fjöldi sjálfboðaliða að verkefninu.
Í kærunni sakaði Einar þau meðal annars um brot á lögum um opinberar fjársafnanir, mútugreiðslur og brot á lögum um peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka. Sema segir þó að þegar hún mætti í skýrslutöku hjá lögreglu árið 2024 hafi komið í ljós að engin sönnunargögn fylgdu kærunni.
„Þegar ég og lögmaður minn báðum um að sjá þau sönnunargögn sem fylgdu kærunni var okkur tjáð að það væru engin gögn,“ skrifar hún og bætir við að hún hafi þá spurt „hvern fjandann ég væri eiginlega að gera þarna.“
Málið hefur verið fellt niður tvisvar sinnum af lögreglu en tekið aftur upp eftir kærur til ríkissaksóknara. Í dag er það til rannsóknar í þriðja sinn og Sema segir að hún og María Lilja hafi enn stöðu sakbornings.
Hún segir jafnframt að öll gögn um söfnunina hafi verið afhent yfirvöldum, þar á meðal reikningsyfirlit, kvittanir og skýrslu sem endurskoðandi yfirfór.
Sema telur að málið hafi haft veruleg áhrif á líf þeirra sem í því hafa lent.
„Við höfum nú setið undir ríkisofbeldi í tvö ár og verið þvingaðar til þess að takast á við alls konar áreiti og árásir, hindranir, aðdróttanir og ærumeyðingar,“ skrifar hún.
Hún segir jafnframt að sú staðreynd að málið hafi staðið yfir svo lengi án niðurstöðu sé „áfellisdómur yfir íslensku samfélagi, lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu og dómskerfinu.“
Að hennar mati bendir allt til þess að kæran hafi verið pólitískt drifin.
„Það er ekki hægt að komast að annarri niðurstöðu en að hér er fyrst og fremst um pólitískar ofsóknir á hendur mér og Maríu Lilju að ræða,“ skrifar hún.

Komment