
Andrea Kristín Unnarsdóttir hefur verið dæmd í fangelsi en málið var tekið fyrir í Héraðsdómi Reykjavíkur.
Hún var ákærð fyrir að hafa fyrir skjala- og umferðarlagabrot með því að hafa, mánudaginn 9. júní 2025 í heimildarleysi og blekkingarskyni haft skráningarnúmer á bifhjóli af gerðinni Harley-Davidson, sem bera átti annað skráningarnúmer og ekið því þannig á röngum skráningarmerkjum og svipt ökurétti um Reykjanesbraut við Arnarnesbrú í Garðabæ.
Andrea hefur ítrekað verið dæmd áður fyrir glæpi sína og hafa margir þeirra ratað í fjölmiðla í gegnum árin vegna alvarleika þeirra. Gekk hún lengi undir nafninu Andrea „slæma stelpa“ í samfélaginu.
Hún játaði brot sitt og var dæmd í fjóra mánuði í fangelsi.
Þá þarf hún að greiða verjanda sínum 176.700 krónur.
Komment