1
Innlent

Ríkislögreglustjóri tjáir sig um ummæli Stefáns Einars

2
Innlent

Segist „ekkert hafa að fyrirgefa“ eiginmanni sem hlaut dóm fyrir nauðgun á 14 ára stúlku

3
Innlent

Móðir Elínar yfirgaf heimilið eftir slagsmál við föðurinn

4
Pólitík

Oddviti Miðflokksins vill loka MAST

5
Heimur

TikTok-stjarna látin eftir lýtaaðgerð

6
Heimur

Bændur mótmæla fjöldaaflífun búfjár í Rússlandi

7
Innlent

Svikapóstar sendir í nafni þekktra fyrirtækja

8
Heimur

Ellefu ára drengur ákærður fyrir að myrða litla bróður sinn

9
Heimur

Spítali kærir sjúkling sem neitar að fara

10
Heimur

Handtekinn eftir hættulega eftirför á Tenerife

Til baka

Sóleyju Tómasdóttur hótað af ofbeldismanni

„Maðurinn hefur bæði beitt konur ofbeldi og ofsóknum“

Sóley Tómasdóttir
Sóley TómasdóttirVar borgarfulltrúi í Reykjavík í mörg ár.
Mynd: Skjáskot/RÚV

Í pistli sem Sóley Tómasdóttir, fyrrum borgarfulltrúi og baráttukona, birtir á heimasíðu sinni greinir hún frá því að henni hafi borist hótun fyrr í vikunni en var það gert símleiðis.

Setur borgarfulltrúinn fyrrverandi hótunina í samhengi við heimildarmyndina Inside the Manosphere eftir Louis Theroux en myndin hefur vakið mikla athygli á undanförum dögum fyrir að sýna fyrirlitningu og andúð margra karlkyns áhrifavalda í garð kvenna. Sóley tekur reyndar fram að myndin hafi verið „löng og leiðinleg heimildarmynd um það sem svo margar konur hafa áður greint, útskýrt og gagnrýnt með miklu beittari hætti.“

Opnar hún sig svo um hótunina.

„Aðfaranótt þriðjudags vaknaði ég við símhringingu úr óþekktu íslensku númeri. Eftir að hafa reynt að hundsa látlausar hringingar og ansi mörg óaðlaðandi smáskilaboð var ekkert annað í stöðunni en að ræða við kauða. Við hjónin vorum bæði glaðvöknuð og satt að segja svolítið forvitin um það sem hann hefði að segja. Það reyndist hvorki vera fallegt, uppbyggilegt eða verðskuldað,“ skrifar Sóley.

„Ég er orðin svo gömul í þessum bransa að ég varð eiginlega ekkert hrædd. Stutt leit á netinu sýndi að maðurinn hefur bæði beitt konur ofbeldi og ofsóknum. Samt upplifði ég hann bara sem hálfgert grey sem er að glíma við heilmikið mótlæti og ákveður að taka vanlíðan sína út í símtali við mig,“ heldur hún áfram.

„Það er auðvitað óþolandi að ég skuli gera lítið úr ofbeldinu sem það er að hringja heim til fólks um miðjar nætur til að hóta því og úthúða. Ég veit að maðurinn er hættulegur. En það er líklega einhverskonar „survival mekanismi“, enda veit ég að ofbeldi gegn konum er almennt léttvægt fundið í samfélaginu. Bara að einhver karl myndi taka það að sér að afhjúpa svona karla. Þá myndi kannski eitthvað breytast. Tilraunir okkar kvenna hafa allavega ekki virkað.“

Ekki tilviljun

Sóley telur víst að maðurinn sem hótaði henni sé dyggur aðdáandi áhrifavalda mannhvelsins sem fjallað var um í myndinni og að hann trúi því einlæglega að mótlætið sem hann glímir við sé Sóleyju og öðrum femínistum að kenna. Þetta birtist síðan greinilega í unglingum á Íslandi í dag. Stelpur eigi að vera undirgefnar og strákar ríkir og stæltir.

Hún segir að ekkert af þessu sé tilviljun. „Kynjamisrétti og kvenfyrirlitning hefur alltaf verið vandamál, en áhrifavaldar mannhvelsins eru birtingarmynd bakslags sem hefur ofangreind áhrif. Þeir eru ekki bara í útlöndum, enda er internetið alþjóðlegt og þeir aldeilis ekki bara útlenskir. Um það hef ég áður skrifað og fullt af öðrum konum líka. Og einhverjir karlar, svo allrar sanngirni sé gætt. En það þarf meira til. Við þurfum öll að sporna við þessu rugli. Það er heilt samfélag í húfi,“ skrifar Sóley að lokum.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Einn látinn eftir sprenginguna í Korngörðum
Innlent

Einn látinn eftir sprenginguna í Korngörðum

Tveir aðrir eru á slysadeild en annar þeirra er alvarlega slasaður
Goðsögnin Chuck Norris er látin
Heimur

Goðsögnin Chuck Norris er látin

Breskur blaðamaður heppinn að sleppa lifandi frá loftárás Ísraelshers
Myndband
Heimur

Breskur blaðamaður heppinn að sleppa lifandi frá loftárás Ísraelshers

Ragga nagli varar við „endurkomu mjónulúkksins“
Fólk

Ragga nagli varar við „endurkomu mjónulúkksins“

Þýskt herskip við Vopnafjörð
Landið

Þýskt herskip við Vopnafjörð

Spítali kærir sjúkling sem neitar að fara
Heimur

Spítali kærir sjúkling sem neitar að fara

Guðmundur Árni og Kommúnistaflokkurinn ósammála um ástæðu Kínaferðar
Pólitík

Guðmundur Árni og Kommúnistaflokkurinn ósammála um ástæðu Kínaferðar

Fjórtán ára Svíi talinn sekur um morð og morðtilraun
Heimur

Fjórtán ára Svíi talinn sekur um morð og morðtilraun

Faðir stúlku sem lést úr heilahimnubólgu í Kent lýsir veikindunum
Heimur

Faðir stúlku sem lést úr heilahimnubólgu í Kent lýsir veikindunum

Birnir er enginn venjulegur gæi
Menning

Birnir er enginn venjulegur gæi

Óska eftir tilboðum í risastórt einbýli í Garðabæ
Myndir
Fólk

Óska eftir tilboðum í risastórt einbýli í Garðabæ

Nokkrir fluttir á slysadeild eftir alvarlegt vinnuslys í Korngörðum
Innlent

Nokkrir fluttir á slysadeild eftir alvarlegt vinnuslys í Korngörðum

Innlent

Einn látinn eftir sprenginguna í Korngörðum
Innlent

Einn látinn eftir sprenginguna í Korngörðum

Tveir aðrir eru á slysadeild en annar þeirra er alvarlega slasaður
Segist „ekkert hafa að fyrirgefa“ eiginmanni sem hlaut dóm fyrir nauðgun á 14 ára stúlku
Innlent

Segist „ekkert hafa að fyrirgefa“ eiginmanni sem hlaut dóm fyrir nauðgun á 14 ára stúlku

Sóleyju Tómasdóttur hótað af ofbeldismanni
Innlent

Sóleyju Tómasdóttur hótað af ofbeldismanni

Nokkrir fluttir á slysadeild eftir alvarlegt vinnuslys í Korngörðum
Innlent

Nokkrir fluttir á slysadeild eftir alvarlegt vinnuslys í Korngörðum

Drukknir ökumenn í aðalhlutverki
Innlent

Drukknir ökumenn í aðalhlutverki

Loka auglýsingu