
Snjósleðinn í ljósum logumSleðinn var ótryggður að sögn Birnu
Mynd: TikTok-skjáskot
Söngkonan Birna Berg lenti heldur betur í kröppum dansi um páskana en eldur kviknaði í snjósleða sem hún var á uppi á Mosfellsheiði.
Birna BergBirna hefur meðal annars komið fram á Las Vegas-sýningu Geirs Ólafssonar
Mynd: Instagram
Birna birti nokkur myndskeið af brennandi snjósleðanum, sem var í eigu föður hennar. Fram kemur í myndskeiðunum að sleðinn er ótryggður en samkvæmt texta við eitt af myndböndunum, sprakk sleðinn stuttu eftir að eldurinn kviknaði.
Samkvæmt Birnu rétt slapp hún af snjósleðanum en reykur byrjaði að rjúka upp úr honum og þrjátíu sekúndum síðar var hann alelda. Hér fyrir neðan má sjá eitt af myndskeiðunum:
@birna_berg Jæja þetta var mjög flottur sleði samt RIP #iceland #fyrirþig #fyrirþigsiða #ísland #fyp ♬ original sound - Birna Berg
Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment