1
Innlent

Sigmundur dæmdur fyrir „ósiðlegt og lostugt athæfi“ utandyra

2
Minning

Bryndís Björg Guðmundsdóttir er látin

3
Innlent

Íranir ákærðir fyrir skjalafals

4
Innlent

Daníel endaði á sjúkrahúsi eftir hundsbit í Árbænum

5
Innlent

Arnar Þór varpar fram samsæriskenningu um skotárásina á Trump

6
Heimur

Stjórnandi tæknirisa drukknaði í Volguá

7
Heimur

Ung kona opnar sig um ljósabekkjafíkn

8
Innlent

Stórar breytingar hjá Sýn

9
Heimur

Krónprins Noregs einnig sagður tengjast Epstein

10
Fólk

Nágrannaferð Lindu Ben gekk stórkostlega

Til baka

Uppstoppuð dýr settu svip sinn á fermingarveislu Tinnu

„Ég var smá stressuð“

Tinna Rún ferming
Tinna Rún JónasdóttirEr í dag að læra lögfræði í HR.
Mynd: Aðsend

Nú er fermingartímabilið hafið og ákvað Mannlíf því að heyra í nokkrum bráðskemmtilegum einstaklingum til að spyrja þá út í þeirra upplifun af fermingum. Bænir, gjafir og Jesús sjálfur.

Næst til að svara fermingarspurningum Mannlífs er Tinna Rún Jónasdóttir, lögfræðinemi og fyrirsæta.

Hver var þín upplifun af fermingarfræðslunni?

Mér fannst fermingafræðslan vera mjög áhugaverð og smá skrýtin þar sem ég var þá ekki alveg búin að átta mig á þessari sögu sem lá að baki fræðslunnar. Mér fannst fermingafræðslan vera ótrúlega skemmtileg og fræðandi þar sem hún fékk mann til þess að pæla í hlutum tengdum bæði lífinu og dauðanum. Minnir að við hittumst einu sinni í viku og vorum að fara yfir fræðslu og sögur um það sem var talið æðra mannkyninu. Síðan auðvitað fórum við í messur sem voru þó nokkrar, held að maður þurfti að fara í minnsta lagi sirka 10 sinnum í messu! Sá sem að fór með fermingafræðsluna gerði hana einstaklega skemmtilega og held að það sé ein af megin ástæðum fyrir því að þetta var jákvæð upplifun (Shoutout á Hjalta). Ég fermdist með vinum mínum og fannst það örugglega skemmtilegasti parturinn af öllu, fá að hlægja og hafa gaman af þessu öllu.

Tinna Rún Jónasdóttir
Tinna er einnig fyrirsæta
Mynd: Hafsteinn Snær Þorsteinsson

Hvernig var veislan?

Veislan var frekar stór þar sem ættingjar komu og þekkti maður ekki alveg alla á þeim tíma. Ég var með allskonar veitingar og auðvitað var hent í eina stóra kjúklingasúpu af honum Sigga kokk, ásamt fjölmörgum kökum Veislan var haldin í stóra salnum í Laugarnesskóla þar sem uppstoppuðu dýrin fylgdust með fjörinu.

Tinna Rún ferming 2
Spilaði á klarínett í eigin fermingu
Mynd: Aðsend

Hvernig leið þér í athöfninni?

Athöfnin  var haldin í Laugarneskirkju og var mjög falleg. Mér fannst þetta meira flipp heldur en eitthvað sem ég þurfti að taka mikið mark á þá. Ég var smá stressuð yfir því að þurfa að læra texta utanað og þurfa tala fyrir framan alla en fékk síðan að vita að ég mætti vera með blað og lærði engann texta utanað. Mjög metnaðarfull en það er bara fyndið að hugsa út í það. Pínu fyndið að ég var búin að kaupa kjól en hann var svo gegnsær að ég þurfti að kaupa nýjan. Prófaði síðan fermingakjólinn um daginn og ég passaði í hann!

Vorum líka nokkrar sem að spiluðum saman á klarínett í teitum og meðal annars fermingunni minni. Hún Vilborg Jónsdóttir skólahljómsveitarstjóri var alltaf mikil fyrirmynd og er þakklát fyrir að hún hafi gefið sér tíma í að mæta í ferminguna mína, hennar er sárt saknað.

Hvenær fórstu síðast í fermingu og hjá hverjum?

Held að ég hafi farið árið 2024 síðast í fermingu hjá frænda mínum. Mér er ekki boðið í neinar fermingar á þessu ári og ég er eiginlega bara mjög fegin því ég borða alltaf þangað til ég get ekki hreyft mig.

Kaka
Mynd: Aðsend
Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Nágrannaferð Lindu Ben gekk stórkostlega
Myndir
Fólk

Nágrannaferð Lindu Ben gekk stórkostlega

Skelltu sér reglulega í golf
Dóttir Peter Falk fannst látin í Los Angeles
Heimur

Dóttir Peter Falk fannst látin í Los Angeles

Eiríkur fékk nafnlaust skammarbréf í pósti
Innlent

Eiríkur fékk nafnlaust skammarbréf í pósti

Svíar munu sekta samfélagsmiðla fyrir „morðauglýsingar“
Heimur

Svíar munu sekta samfélagsmiðla fyrir „morðauglýsingar“

Rússneskur embættismaður fannst látinn í bíl sínum
Heimur

Rússneskur embættismaður fannst látinn í bíl sínum

Hildur gefur eftir borgarstjórastólinn
Slúður

Hildur gefur eftir borgarstjórastólinn

Fyrrum kærasti Kim Kardashian segist hafa sofið hjá mörg þúsund konum
Heimur

Fyrrum kærasti Kim Kardashian segist hafa sofið hjá mörg þúsund konum

James Comey ákærður vegna ljósmyndar af skeljum
Heimur

James Comey ákærður vegna ljósmyndar af skeljum

Þriðjungur vill leyfa smásölu áfengis utan ÁTVR
Innlent

Þriðjungur vill leyfa smásölu áfengis utan ÁTVR

Íranir ákærðir fyrir skjalafals
Innlent

Íranir ákærðir fyrir skjalafals

Starfsmaður fargaði líki konu í dýragarði
Heimur

Starfsmaður fargaði líki konu í dýragarði

Börn allt niður í 10 ára handtekin í stórri lögregluaðgerð í Evrópu
Heimur

Börn allt niður í 10 ára handtekin í stórri lögregluaðgerð í Evrópu

Fólk

Nágrannaferð Lindu Ben gekk stórkostlega
Myndir
Fólk

Nágrannaferð Lindu Ben gekk stórkostlega

Skelltu sér reglulega í golf
Ólafur Darri í Apple-myndbandi
Myndband
Fólk

Ólafur Darri í Apple-myndbandi

Verðlaunadómari selur parhús í Laugardalnum
Myndir
Fólk

Verðlaunadómari selur parhús í Laugardalnum

Huginn Þór tekinn til gjaldþrotaskipta
Fólk

Huginn Þór tekinn til gjaldþrotaskipta

Ældi eftir Vikuna með Gísla Marteini
Fólk

Ældi eftir Vikuna með Gísla Marteini

Höllin lækkuð um 45 milljónir
Myndir
Fólk

Höllin lækkuð um 45 milljónir

Loka auglýsingu