1
Heimur

Boeing þarf að borga fjölskyldu farþega tæpa fjóra milljarða

2
Heimur

Létust eftir að hafa gefið sambandinu annað tækifæri

3
Innlent

Einn fluttur á bráðamóttöku eftir slys

4
Fólk

Glatt á hjalla hjá Hannesi

5
Sport

Tveir íslenskir golfvellir eru á meðal þeirra bestu í heimi

6
Heimur

Michiel Vandeweert er látinn aðeins 28 ára gamall

7
Innlent

Gífurlega óheppinn ferðamaður lenti í bobba

8
Innlent

Morðingja sleppt lausum

9
Fólk

Selja fallega höll í Garðabæ

10
Heimur

Sorgleg ástæða á bak við andlitslyftingu áhrifavalds

Til baka

Liam Payne sagður hafa misst stjórn á sér skömmu fyrir andlátið

Tvær kynlífsverkakonur voru með honum daginn sem hann lést

Liam Payne
Liam PayneLiam féll til bana aðeins 31 árs að aldri.
Mynd: TOBIAS SCHWARZ / AFP

Liam Payne, fyrrverandi söngvari One Direction, á að hafa misst stjórn á sér undir áhrifum áfengis og fíkniefna á síðustu klukkustundunum fyrir andlát sitt. Þetta kemur fram í skýrslum tveggja kynlífsverkakvenna sem segjast hafa verið með honum daginn sem hann lést.

Payne, sem var 31 árs, lést 16. október 2024 eftir að hafa fallið um 14 metra af svölum á þriðju hæð CasaSur Palermo-hótelsins í Buenos Aires í Argentínu.

Samkvæmt gögnum sem Mail on Sunday segist hafa undir höndum voru konurnar, Aldana Serrano og Lucila Goitea, yfirheyrðar af lögreglu skömmu eftir andlátið. Þær sögðust hafa verið kallaðar á hótelið af Payne fyrr um daginn og að kynmök þeirra hefðu farið fram með samþykki allra aðila.

Konurnar sögðu að Payne hefði orðið æ æstari þegar honum tókst ekki að greiða þeim umsamda upphæð, 5.000 bandaríkjadali, jafnvirði um 618.000 króna, þar sem hann hefði ekki haft aðgang að reiðufé.

Þær halda því fram að hann hafi brotið dýrt Rolex-gullúr sitt, sem metið var á um 30 þúsund pund, og sagt að hann gæti „keypt tíu slík úr“. Þá hafi hann slegið sjónvarp hótelherbergisins þrisvar sinnum með hnefanum.

Að sögn kvennanna róaðist Payne síðar, féll á hnén og bað þær um að vera áfram. Hann hafi sagt að „peningar gerðu hann ekki hamingjusaman“, sungið eigin lög undir áhrifum áfengis og síðar beðið þær um kókaín.

Eiturefnarannsókn sem gerð var eftir andlátið leiddi í ljós að Payne var með áfengi, kókaín og róandi lyfið Klonopin í blóði sínu þegar hann féll til bana.

Payne hafði verið í Argentínu í rúmar tvær vikur á meðan hann beið eftir endurnýjun bandarískrar vegabréfsáritunar. Fyrstu tvær vikurnar dvaldi hann þar með kærustu sinni, Kate Cassidy, og vini sínum Rogelio „Roger“ Nores. Samkvæmt fréttinni var hann edrú á þeim tíma, en eftir að þau fóru bæði frá Argentínu á hann að hafa farið að hegða sér óútreiknanlega.

Hann flutti sig af Park Hyatt-hótelinu yfir á CasaSur Palermo eftir að hafa að sögn skemmt hótelherbergi og lent í deilum við starfsfólk.

Konurnar sögðust hafa átt í erfiðleikum með samskipti við Payne þar sem hann talaði aðeins ensku en þær spænsku og því hafi þær notast við þýðingarforrit.

Þær sögðust hafa dvalið hjá honum í um tvær klukkustundir áður en þær óskuðu á ný eftir greiðslu. Í stað þess hafi hann boðið þeim Rolex-úrið sitt, sem hann hafi síðan brotið þegar þær neituðu að taka við því.

Þær yfirgáfu hótelið skömmu fyrir klukkan fjögur síðdegis. Samkvæmt frásögn þeirra hélt Payne áfram að hegða sér undarlega áður en hann fór aftur inn á herbergi sitt.

Hann féll til bana klukkan 17:07 sama dag. Konurnar segjast ekki hafa vitað af andláti hans fyrr en þær sáu fréttir af því á samfélagsmiðlum og gáfu síðar skýrslu til lögreglu.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Munurinn á því að særast og byggja sjálfsmynd sína á sársauka
Fólk

Munurinn á því að særast og byggja sjálfsmynd sína á sársauka

Þegar sárin fá að stjórna framtíðinni
Slagsmál í einu þekktasta veitingahúsi Beverly Hills
Myndband
Heimur

Slagsmál í einu þekktasta veitingahúsi Beverly Hills

Jennifer Lopez bjargaði Matthew McConaughey úr miklum vandræðum
Heimur

Jennifer Lopez bjargaði Matthew McConaughey úr miklum vandræðum

Staðgöngumóðir fæddi barn gegn vilja líffræðilegra foreldra
Heimur

Staðgöngumóðir fæddi barn gegn vilja líffræðilegra foreldra

15 ára handtekinn vegna eldsvoða sem tveir létust í
Heimur

15 ára handtekinn vegna eldsvoða sem tveir létust í

Magnús Már ráðinn framkvæmdastjóri
Fólk

Magnús Már ráðinn framkvæmdastjóri

Ungur maður látinn eftir hálsstungu á Kanarí
Heimur

Ungur maður látinn eftir hálsstungu á Kanarí

Tveir íslenskir golfvellir eru á meðal þeirra bestu í heimi
Sport

Tveir íslenskir golfvellir eru á meðal þeirra bestu í heimi

Tók fyrrum sambýliskonu kverkataki og kýldi hana
Innlent

Tók fyrrum sambýliskonu kverkataki og kýldi hana

Selja skrifstofu glæsilegustu útfararstofu landsins
Myndir
Fólk

Selja skrifstofu glæsilegustu útfararstofu landsins

Lögreglan hjálpaði virkilega óheppnum manni
Innlent

Lögreglan hjálpaði virkilega óheppnum manni

Heimur

Slagsmál í einu þekktasta veitingahúsi Beverly Hills
Myndband
Heimur

Slagsmál í einu þekktasta veitingahúsi Beverly Hills

Konurnar slógu og spörkuðu hvor í aðra og enduðu um tíma á gólfi veitingastaðarins
Sorgleg ástæða á bak við andlitslyftingu áhrifavalds
Myndir
Heimur

Sorgleg ástæða á bak við andlitslyftingu áhrifavalds

Jennifer Lopez bjargaði Matthew McConaughey úr miklum vandræðum
Heimur

Jennifer Lopez bjargaði Matthew McConaughey úr miklum vandræðum

Staðgöngumóðir fæddi barn gegn vilja líffræðilegra foreldra
Heimur

Staðgöngumóðir fæddi barn gegn vilja líffræðilegra foreldra

15 ára handtekinn vegna eldsvoða sem tveir létust í
Heimur

15 ára handtekinn vegna eldsvoða sem tveir létust í

Ungur maður látinn eftir hálsstungu á Kanarí
Heimur

Ungur maður látinn eftir hálsstungu á Kanarí

Loka auglýsingu