
Haft hefur verið samband við borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins vegna um sextíu íslenskra ríkisborgara sem staddir eru á svæðum sem átökin í Mið-Austurlöndum hafa haft áhrif á en greint er frá þessu í tilkynningu frá stjórvöldum
Tilkynning yfirvalda
Flest málin varða Íslendinga í Dubai í Sameinuðu arabísku furstadæmunum, og þá hefur borgaraþjónustan m.a. á sínu borði mál er varða tvo íslenska ríkisborgara í Íran sem og nokkurn hóp Íslendinga í Barein. Stærstur hluti þessa hóps hefur fasta búsetu þar ytra.
Flug liggur nú að mestu niðri í heimshlutanum og komast umræddir einstaklingar því hvergi flugleiðina, ekki frekar en tugþúsundir alþjóðlegra ferðalanga sem eru strandaglópar sökum loftrýmislokana.
Borgaraþjónustan hefur veitt umræddum einstaklingum upplýsingar og aðstoð eftir fremsta megni, en möguleikar á aðstoð takmarkast eðlilega af því að Ísland heldur ekki úti sendiráðum í heimshlutanum.
Fólk sem hyggur á brottför hefur verið hvatt til að fylgjast með þegar lofthelgin opnast á ný til að tryggja sér tafarlaust sæti með farþegaflugi um leið og tækifæri gefst.
Tilmæli borgaraþjónustunnar, sem eru í takt við tilmæli norrænna borgaraþjónusta, eru m.a. að fylgjast náið með staðbundnum fjölmiðlum, virða tilmæli yfirvalda og leita til flugfélaga sem það átti bókað flug með.
Utanríkisráðuneytið fylgist grannt með þróun mála í heimshlutanum og á í nánu samstarfi við Norðurlöndin sem og sendiráð þeirra á áhrifasvæðum sem meta stöðuna jafnóðum með sinni staðbundnu þekkingu.
Þá hefur einnig einhver fjöldi Íslendinga orðið fyrir ferðaröskunum annarstaðar í heiminum þar sem flugvellirnir í Doha og Dubai eru mikið notaðir fyrir millilendingar.
Utanríkisráðuneytið gefur ekki út ferðaviðvaranir, en bendir þess í stað á ferðaviðvaranir Norðurlandanna. Þau hafa uppfært ferðaráð sín til margra ríkja í Mið-Austurlöndum um helgina til að vara alfarið við öllum ferðum þangað eða ráða frá öllum ónauðsynlegum ferðum.

Komment