
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu sinnti fjölmörgum útköllum í gær og nótt, þar á meðal vegna umferðarlagabrota, þjófnaðar og eignaspjalla.
Leigubílstjóri óskaði eftir aðstoð lögreglu eftir að maður kýldi í rúðu á bifreið hans og kastaði einnig flösku í leigubifreiðina. Þegar lögregla kom á vettvang var maðurinn farinn.
Tilkynnt var um innbrot í geymslu við heimahús í miðbænum. Málið er nú til rannsóknar hjá lögreglu.
Lögregla hafði afskipti af ökumanni sem grunaður var um akstur undir áhrifum fíkniefna. Við leit fundust tveir hnífar og piparúði í fórum hans. Maðurinn var handtekinn og fluttur á lögreglustöð en látinn laus að lokinni skýrslutöku.
Þá missti ökumaður bifreiðar stjórn á ökutæki sínu við akstur og hafnaði á ljósastaur. Ökumaður og farþegi voru flutt á slysadeild til aðhlynningar.
Í öðru tilviki stöðvaði lögregla ökumann sem var að aka undir áhrifum fíkniefna og án gildra ökuréttinda. Hann var látinn laus að lokinni blóðsýnatöku.
Tilkynnt var um umferðarslys í Hafnarfirði, en ekki urðu slys á fólki.
Lögregla hafði einnig afskipti af þremur ökumönnum sem voru sviptir ökuréttindum. Einn þeirra reyndist jafnframt vera undir áhrifum fíkniefna.
Í öðru tilviki var ökumaður stöðvaður fyrir akstur án gildra ökuréttinda. Þá voru filmur í hliðarrúðum bifreiðarinnar og var ökutækið því boðað í skoðun.
Tilkynnt var um þjófnað í matvöruverslun og var málið afgreitt á vettvangi.
Þá stöðvaði lögregla annan ökumann sem grunaður var um akstur undir áhrifum fíkniefna og án gildra ökuréttinda. Hann var látinn laus að lokinni blóðsýnatöku.
Að lokum voru skráningarmerki fjarlægð af einu ökutæki þar sem það hafði ekki verið fært til aðalskoðunar.

Komment