Anna Kristjánsdóttir, fyrrverandi vélstjóri og einn fyndnasti Íslendingur 21. aldar, greinir frá því í pistli á Facebook að ung íslensk stúlka hafi verið rænd á Tenerife en Anna býr þar.
„Ég skrapp út á Babylon í gærkvöldi. Þegar þangað var komið voru Daggi og Birna þegar mætt sem og ung íslensk stúlka hágrátandi og miður sín. Örfáum mínútum áður hafði karlmaður ráðist að henni og rænt hana hálsfesti sem hún hafði borið um hálsinn. Þetta var þó áður en skyggja tók rétt við tröppurnar frá stígnum Calle Paris og niður að hótelinu Atlantida. Antonio barþjónn á Babylon hringdi í lögregluna, en það var of mikið að gera til að þeir gætu sinnt þessu útkalli enda karnival í gangi þessa dagana,“ skrifar Anna á Facebook.
„Skömmu síðar komu frænkur stúlkunnar á Babylon og varð af hinn ánægjulegasti kvöldfundur þrátt fyrir hræðilega byrjun á kvöldinu.“
Tenerife er einn vinsælasti ferðamannastaður Íslendinga og ferðast þúsundir landsmanna til eyjunnar á hverju ári. Þá búa einnig margir Íslendingar á spænsku eyjunni.


Komment