
Régine Bazile hefur verið dæmd fyrir fíkniefniefnalagabrot en málið var tekið fyrir í Héraðsdómi Reykjaness.
Unga konan var ákærð fyrir fíkniefnalagabrot, með því að hafa, sunnudaginn 25. janúar 2026, staðið að innflutningi á samtals 103,37 grömmum af metamfetamíni á kristalformi, með styrkleika 81%, ætluðu til söludreifingar hér á landi í ágóðaskyni en fíkniefnin flutti ákærða til Íslands sem farþegi með flugi frá París, Frakklandi, til Keflavíkurflugvallar, falin í hátalara sem fannst í ferðatösku ákærðu.
Bazile játaði brot sitt skýlaust en hún hefur ekki gerst sek um refsivert athæfi áður á Íslandi en hún er franskur ríkisborgari.
„Af fyrirliggjandi gögnum verður ekki ráðið að ákærða hafi verið eigandi nefndra fíkniefna eða tekið þátt í skipulagningu á kaupum og innflutningi þeirra til Íslands með öðrum hætti en þeim að samþykkja að flytja efnin til landsins gegn greiðslu,“ segir meðal annars í dómnum.
Hún var dæmd í 2 mánaða fangelsi og þarf að greiða 1.221.598 krónur í sakarkostnað.

Komment