
Mynd: Thennicke
Samkvæmt tilkynningu frá Landsneti er aukin hætta á eldingum á stórum hluta landsins í kvöld.
Samkvæmt tilkynningu eru líkur á eldingum frá Kirkjubæjarklaustri og vestur á Snæfellsnes frá klukkan 18:00 í dag, og fram til miðnættis.
Fram kemur að mestar líkur séu á eldingum milli skýja, en þó geti sumar þeirra náð til jarðar. Sérstaklega er bent á að slíkar eldingar geti haft áhrif á raflínur og tengivirki.
Landsnet hvetur fólk til að fylgjast vel með veðri og sýna aðgát á meðan viðvörunin er í gildi.
Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment