Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu varar við vasaþjófum sem eru á ferðinni í umdæminu um þessar mundir en greint er frá því í tilkynningu frá lögreglu.
Á annan tug mála hafa verið tilkynnt til lögreglu undanfarna daga þar sem símum, greiðslukortum, myndavélum og öðrum verðmætum var stolið af ferðamönnum á miðborgarsvæðinu, þ.e. við Hallgrímskirkju, á Skólavörðustíg og Laugavegi.
Vegna þessa hefur lögreglan aukið eftirlit á svæðinu.
Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa


Komment