
Kristinn Hrafnsson, ritstjóri WikiLeaks, gagnrýnir harðlega yfirlýsingar Pete Hegseth, varnarmálaráðherra Bandaríkjanna, um hernaðaraðgerðir gegn Íran í færslu sem hann birti á Facebook í gær.
Í færslunni segir Kristinn að á blaðamannafundi hafi Hegseth lýst yfir að stríðið gegn Íran yrði háð án takmarkana. Hann hafi jafnframt lofað Ísrael en gagnrýnt önnur bandalagsríki Bandaríkjanna.
„Við eru þakklátir fyrir skýr markmið Ísraels. Öflugir samstarfsmenn, eins og við höfum sagt frá upphafi, eru góðir samstarfsmenn, ólíkt svo mörgum af hefðbundnum bandamönnum okkar sem núa saman höndum, grípa um perlurnar sínar og hika og þrátta um beitingu valds“, er haft eftir varnarmálaráðherranum í færslunni.
Kristinn bendir einnig á að Hegseth hafi gefið í skyn að Bandaríkin myndu líta fram hjá gagnrýni alþjóðastofnana. Á sama tíma, segir hann, hafi Donald Trump forseti niðurlægt Sameinuðu þjóðirnar með því að senda forsetafrúnna, Melaniu Trump, til að opna fund í Öryggisráði þeirra.
Samkvæmt Kristni sagði Hegseth einnig: „Bandaríkin eru, óháð því hvað svokallaðar alþjóðastofnanir segja, að hefja banvænustu og nákvæmustu loftárásaherferð í sögunni. B-2 sprengjuvélar, orrustuþotur, drónar, eldflaugar og að sjálfsögðu leynilegar aðgerðir, allt á okkar forsendum, með hámarksheimildum.“
Kristinn telur að með þessum ummælum sé verið að boða stríð án hefðbundinna takmarkana. Í færslunni vitnar hann jafnframt í orð varnarmálaráðherrans: „Engar heimskulegar reglur um beitingu valds. Engin þjóðaruppbyggingarflækja. Engin lýðræðisuppbyggingarþvæla. Ekkert „pólitískt rétthugsað” stríð.“
Færslu sinni lýkur Kristinn á orðunum: „Velkomin í sturlaðan heim.“

Komment