Glúmur Baldvinsson
„Þetta verða löng málaferli“
Glúmur Baldvinsson
Fólk

Eitt eft­ir­minn­an­leg­asta hús lands­ins sett á sölu

Pólitík

Inga Sæland hjólar í borg­ar­stjórn

Innlent

Móðir á Íslandi í laga­legri sjálf­heldu vegna föður sem eng­inn finnur

Innlent

Kóka­ín­farm­ur­inn komst ekki lengra en til Kefla­víkur

Fólk

Fjórar ástæður fyrir því að þú færð auð­veld­lega mar­bletti

Heimur

„Ég var ekki full­klæddur og fólk úti gat horft beint inn um svefn­her­berg­is­glugg­ann minn!“

Heimur

Dán­ar­or­sök leik­ar­ans Anthony Clark komin fram

Innlent

Fluttur ælandi með sjúkra­bíl

Heimur

Einka­dóttir leikkon­unnar Lisu Maxwell látin, 27 ára að aldri

Heimur

Tveir heið­ursverðir hnigu niður við hlið Macrons í opin­berri mót­töku

Ekki hægt að slá föstu að illa hafi verið farið með börn á Vöggustofu

Skýrsla um Vöggu­stofu Thor­vald­sens­fé­lags­ins kynnt

Skýrsla Vöggustofunefndar var kynnt í dag
Skýrsla Vöggu­stofu­nefndar var kynnt í dag Vöggu­stofu­nefnd ásamt borg­ar­stjóra og full­trúum Rétt­lætis Mynd: Reykjavíkurborg

Sjálf­stæð og óháð nefnd, sem Reykja­vík­ur­borg skip­aði til að kanna starf­semi Vöggu­stofa Thor­vald­sens­fé­lags­ins á árunum 1974 til 1979, kynnti í dag nið­ur­stöður sínar. Um er að ræða fram­halds­at­hugun sem gerð var í kjöl­far fyrri skýrslu um starf­semi vöggu­stofa í Reykja­vík á árunum 1949–1973.

Nið­ur­stöður nefnd­ar­innar eru í meg­in­at­riðum þrí­þættar. Í fyrsta lagi segir í skýrsl­unni að ekki verði slegið föstu að börn sem dvöldu á vöggu­stof­unni á tíma­bil­inu 1974–1979 hafi sætt illri með­ferð í skiln­ingi laga nr. 45/2022. Í öðru lagi kemur fram að máls­með­ferð barna­vernd­ar­yf­ir­valda við ákvarð­anir um vistun barna á stofn­un­inni hafi oft ekki verið í sam­ræmi við gild­andi lög. Í þriðja lagi er bent á að opin­bert eft­ir­lit með starf­sem­inni hafi verið afar tak­markað og ekki í sam­ræmi við laga­kröfur á þessum tíma.

Alls dvöldu 236 börn á Vöggu­stofu Thor­vald­sens­fé­lags­ins á árunum 1974–1979. Börn voru ekki vistuð þar eftir febr­úar 1979, en þá var stofn­unin sam­einuð Vist­heim­ili barna að Dalbraut 12 í Reykja­vík.

Nefndin telur að aðstæður barna, aðbún­aður, umönnun og mögu­leikar for­eldra til heim­sókna hafi verið með betri hætti á þessu tíma­bili en á árunum fyrir 1967, sem fjallað var um í fyrri skýrslu. Athug­unin bendir jafn­framt til þess að þá hafi ekki lengur verið við lýði starfs­hættir sem almennt settu starfs­fólki skorður í umönnun barna eða tak­mörk­uðu sér­stak­lega mögu­leika þess til að sinna þörfum ein­stakra barna.

Þrátt fyrir þetta kemur fram að ýmsum þáttum hafi verið ábóta­vant. Næt­ur­vaktir virð­ast hafa verið fálið­aðar miðað við aldur og þarfir barn­anna, og almennt hafi skort fag­lega grein­ingu og vinnu til að mæta sér­þörfum barna, svo sem barna með fötlun, eldri barna, barna sem komu úr erf­iðum aðstæðum eða voru vistuð ítrekað. Þá kemur fram að í sumum til­vikum hafi börn dvalið mjög lengi á vöggu­stof­unni.

Í skýrsl­unni er einnig sér­stak­lega fjallað um afdrif barn­anna sem vistuð voru á stofn­un­inni á umræddu tíma­bili. Þar má finna upp­lýs­ingar um hversu mörg börn voru síðar vistuð á öðrum stofn­unum eða fóru í fóstur, auk upp­lýs­inga um dán­ar­tíðni og tíðni örorku innan hóps­ins.

Nánari upp­lýs­ingar um nið­ur­stöður nefnd­ar­innar, afdrif barn­anna og til­lögur um úrbætur er að finna í skýrslu nefnd­ar­innar, sem er aðgengi­leg í heild sinni á vef Reykja­vík­ur­borgar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

1
Minning

Lárus Heið­ars­son lát­inn

Lárus Heið­ars­son, skóg­ar­bóndi og fyrr­ver­andi odd­viti Fljóts­dals­hrepps, var bor­inn til grafar á föstu­dag. Hann lést 28. októ­ber síð­ast­lið­inn eftir skamma en erf­iða bar­áttu við bráða­hvít­blæði. Aust­ur­frétt greindi frá and­lát­inu. Lárus gegndi fjöl­mörgum trún­að­ar­störfum fyrir Fljóts­dals­hrepp og sat í sveit­ar­stjórn frá árinu 2010, fyrst sem vara­odd­viti og síðar odd­viti. Hann kom einnig að mótun Svæð­is­skipu­lags Aust­ur­lands og var í stjórn Sambands...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Kom með ólög­legan grænan varn­ing í far­angrinum

Fíkniefnin vógu 11.720 grömm og voru ætluð til söludreifingar
Fólk

Selja fal­legt fjöl­skyldu­hreiður með heitum potti og stórum garði

Heimur

Stefan Holm ákærður fyrir lík­ams­árás eftir árás á Emil Persson

Innlent

Innlent

Morg­un­blaðið aftur gagn­rýnt fyrir mynda­notkun við frétt

Gauti B. Eggertsson gagnrýnir að fánar Palestínu og hinsegin fólks hafi fylgt frétt um ofbeldi gegn stúlkum í Reykjanesbæ.
Innlent

Ung­lingur stakk mann í síð­una og réðst á annan með járn­röri

Innlent

Trufl­anir hjá Microsoft hafa áhrif á starf­semi MAST

Innlent

Nýtt trú­fé­lag skráð á Íslandi

Innlent

Reykja­vík breytt­ist í risa­stórt bíla­stæði

Innlent

Gunnar Smári segir frá sárs­auka­fullum dögum og svefn­lausum nóttum