Viðskiptavinur World Class í Dalshrauni er ekki sáttur við viðbrögð við kvörtun sem hann sendi fyrirtækinu. Þannig er mál með vexti að hann sá að einhver hafði skorið út hakakross í gufunni í líkamsræktarstöðinni sem er staðsett í Hafnarfirði og fannst viðskiptavininum óásættanlegt að slíkt væri uppi og að fólk eigi ekki þurfi að horfa upp á þetta hatur í sinn garð. Það sé alveg nóg af því fyrir.
Samkvæmt viðskiptavininum lét hann fyrirtækið ítrekað vita og talaði við stöðvarstjórann í Dalshrauni og fyrsta skipti sem hann hafi látið vita hafi verið í byrjun apríl 2024. „Ég er búinn að ítreka þetta við þá en ekkert gerist. Mér finnst að þeir hefðu átt að bregðast við samdægurs eða í það minnsta næsta dag,“ sagði viðskiptavinurinn við Mannlíf.
Í svari World Class sagði Aðalbjörg Guðjónsdóttir að búið væri að fjarlægja hakakrossinn en samkvæmt heimildum Mannlífs var hann ennþá upp í síðustu viku.