Landhelgisgæslan varar við því að stórstreymt verður næstkomandi laugardag og því há sjávarstaða yfir helgina.
Fram kemur í tilkynningu frá Landhelgisgæslunni að samhliða stórstreyminu, spái Veðurstofa Íslands hvössum vindi af suðlægum áttum næstu daga en jafnfram gera ölduspár ráð fyrir mikilli ölduhæð suður og vestur af landinu yfir helgina og fram á mánudag.
Segir gæslan að af þeim sökum megi gera ráð fyrir talsverðum áhlaðanda við sunnan- og vestanvert landið og að sjávarhæð geti orðið hærri en útreikningar á sjávarföllum gefa til kynna. Hvetur Landhelgisgæslan til aðgæslu við sjávarsíðuna og á hafi úti og að hugað verði að bátum og skipum í höfnum.