Glúmur Baldvinsson
„Þetta verða löng málaferli“
Glúmur Baldvinsson
Fólk

Eitt eft­ir­minn­an­leg­asta hús lands­ins sett á sölu

Pólitík

Inga Sæland hjólar í borg­ar­stjórn

Innlent

Móðir á Íslandi í laga­legri sjálf­heldu vegna föður sem eng­inn finnur

Innlent

Kóka­ín­farm­ur­inn komst ekki lengra en til Kefla­víkur

Fólk

Fjórar ástæður fyrir því að þú færð auð­veld­lega mar­bletti

Heimur

„Ég var ekki full­klæddur og fólk úti gat horft beint inn um svefn­her­berg­is­glugg­ann minn!“

Heimur

Dán­ar­or­sök leik­ar­ans Anthony Clark komin fram

Innlent

Fluttur ælandi með sjúkra­bíl

Heimur

Einka­dóttir leikkon­unnar Lisu Maxwell látin, 27 ára að aldri

Heimur

Tveir heið­ursverðir hnigu niður við hlið Macrons í opin­berri mót­töku

Hildur vill ekki sjá grænlenska fánann við ráðhúsið

Borg­ar­full­trúi Sjálf­stæði­flokks­ins gagn­rýnir það sem hann kallar „fána­borg fárán­leik­ans“

Hildur Björnsdóttir
Hildur Björns­dóttir Hildur er ósátt með hug­mynd meiri­hlut­ans Mynd: Víkingur

Hildur Björns­dóttir, borg­ar­full­trúi Sjálf­stæð­is­flokks­ins, gagn­rýnir harð­lega áform meiri­hluta borg­ar­stjórnar Reykja­víkur um að draga fána Græn­lands að húni við Ráðhús Reykja­víkur, til við­bótar við fána Palest­ínu og Úkraínu. Hún segir borg­ar­stjórn vera að fara út fyrir sitt hlut­verk og kall­aði til­lög­una „fána­borg fárán­leik­ans“ í Facebook-færslu sem hún birti fyrir stundu.

Í færsl­unni bendir Hildur Björns­dóttir á að þótt samúð Íslend­inga standi með Græn­lend­ingum eigi borg­ar­stjórn ekki að blanda sér í utan­rík­is­mál. „Vissu­lega er hugur okkar allra hjá vinum okkar á Græn­landi – en borg­ar­stjórn hefur ekk­ert með utan­rík­is­mál að gera og ætti almennt ekki að flagga erlendum þjóð­fánum við Ráðhúsið, nema við opin­berar heim­sóknir,“ skrifar hún.

Hildur rifjar jafn­framt upp að hún hafi sjálf lagt fram til­lögu fyrir átta mán­uðum um að íslenski fán­inn yrði dreg­inn að húni við Ráðhúsið alla daga árs­ins, án þess að hún hafi fengið afgreiðslu. „Meiri­hlut­inn hefur ekki enn treyst sér til að afgreiða til­lög­una. Það er hins vegar lítið hik í vinstr­inu þegar kemur að fána­borg erlendra þjóð­fána,“ segir hún.

Að hennar mati er of miklum tíma varið í tákn­ræn mál á kostnað raun­veru­legra verk­efna borg­ar­innar. Hún bendir á að borg­ar­ráð muni funda í þriðja sinn um málið á fimmtu­dag og gagn­rýnir þá for­gangs­röðun. „Tímanum eytt í dygða­skreyt­ingar meðan borg­ar­búar bíða lausna við þeim fjöl­mörgu áskor­unum hvers­dags­ins sem borg­ar­stjórn getur leyst – sam­göngu­vand­anum, leik­skóla­vand­anum, hús­næð­is­vand­anum,“ skrifar hún.

Í lok færsl­unnar kallar Hildur eftir póli­tískum breyt­ingum í borg­inni og segir að nú sé tíma­bært að skipta um kúrs. „Það er kom­inn tími á breyt­ingar. Nýtt fólk með nýjar áherslur. Meiri­hluta sem skilur kjarn­ann frá hism­inu – skilur verk­efnið og setur íbúa Reykja­víkur í for­gang.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

1
Minning

Lárus Heið­ars­son lát­inn

Lárus Heið­ars­son, skóg­ar­bóndi og fyrr­ver­andi odd­viti Fljóts­dals­hrepps, var bor­inn til grafar á föstu­dag. Hann lést 28. októ­ber síð­ast­lið­inn eftir skamma en erf­iða bar­áttu við bráða­hvít­blæði. Aust­ur­frétt greindi frá and­lát­inu. Lárus gegndi fjöl­mörgum trún­að­ar­störfum fyrir Fljóts­dals­hrepp og sat í sveit­ar­stjórn frá árinu 2010, fyrst sem vara­odd­viti og síðar odd­viti. Hann kom einnig að mótun Svæð­is­skipu­lags Aust­ur­lands og var í stjórn Sambands...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Kom með ólög­legan grænan varn­ing í far­angrinum

Fíkniefnin vógu 11.720 grömm og voru ætluð til söludreifingar
Fólk

Selja fal­legt fjöl­skyldu­hreiður með heitum potti og stórum garði

Heimur

Stefan Holm ákærður fyrir lík­ams­árás eftir árás á Emil Persson

Pólitík

Pólitík

„Ef það má bjóða ein­hverjum bit­urð og kven­fyr­ir­litn­ingu, endi­lega lesið Moggann í dag“

Björn Þorláksson segir málflutning fyrrverandi ráðherra geta skaðað bæði Morgunblaðið og Sjálfstæðisflokkinn.
  • Pólitík

    Segir fyr­ir­spurnir Guðlaugs Þórs eðli­legar en hafnar sam­an­burð­inum við Pírata

  • Pólitík

    Jódís segir Sverri snúa út úr orðum sínum

  • Pólitík

    Daði Már segir svar um fundi án for­stjóra hafa verið óná­kvæmt

  • Pólitík

    Vill stofna sann­girn­is­bóta­sjóð vegna illrar með­ferðar á börnum í vistun

  • Pólitík

    „Það var stór­kost­legt að vakna í morgun“