Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

„Kvöldið áður en ég sagði frá misnotaði hann mig í seinasta skiptið“

„Kvöldið áður en ég sagði frá misnotaði hann mig í seinasta skiptið“
Kiana Sif. Mynd / Heiðdís Guðbjörg Gunn­ars­dótt­irþ|||||

Kiana Sif Limehouse var barn þegar brotið var ítrekað á henni kyn­ferð­is­lega, að hennar sögn. Meintur ger­andi var þáver­andi stjúp­faðir hennar, sá hinn sami og Helga Elín sagði í 12. tölu­blaði Mannlífs hafa mis­notað sig kyn­ferð­is­lega í sum­ar­bú­stað þegar hún var tíu ára gömul. Kiönu blöskrar að mað­ur­inn, sem er lög­reglu­maður, fái enn að starfa, en hún er ein þriggja stúlkna sem hafa sakað mann­inn um kyn­ferð­is­brot. Í kjöl­far erf­iðrar æsku leidd­ist Kiana út í fíkni­efna­neyslu og var farin að reykja kanna­bis dag­lega aðeins þrettán ára. Hún hefur verið edrú í þrjú ár og þarf að vinna í því á hverjum degi að elska sjálfa sig á ný.

„Ímynda ég mér stundum hvernig lífið hefði verið öðru­vísi ef þetta hefði ekki gerst? Já, algjör­lega. En maður lifir bara með því sem hendir mann. Föð­ur­ættin mín er mjög trúuð og hefur föð­ur­amma mín talað um að Guð sendi ein­ungis það til manns sem maður getur tek­ist á við. Ég er ekki eins trúuð og hún og get því miður ekki fundið neina rétt­læt­ingu á því sem gerð­ist,“ segir Kiana.

Hún verður 21 árs í nóv­em­ber, er að læra að verða félags­liði og vinnur á elli­heim­ili. Í fyrstu virð­ist sem henni finn­ist auð­velt, ef svo má segja, að tala um for­tíð sína. Hún er opin og ein­læg og segir frá barn­æsku sinni eins og hún sjái hana ljós­lif­andi fyrir sér. Kiana á banda­rískan föður og íslenska móður sem skildu þegar hún var þriggja ára gömul. Þá byrj­aði móðir hennar að vera með manni sem Kiana segir að hafi brotið á sér kyn­ferð­is­lega.

„Ég man enn í hvernig buxum hann var þetta skiptið“

„Ég fann alltaf fyrir því að ég var ekki tekin í sátt. Ég man að hann átti erfitt með að stjórna skapi sínu og ég var skömmuð fyrir minnstu hluti. Mín upp­lifun sem krakki var að ég væri bara fyrir,“ segir Kiana. Hún segir að þegar hún hafi nálg­ast kyn­þroska­ald­ur­inn hafi áhugi manns­ins á sér auk­ist.

„Ég svaf alltaf uppi í rúmi hjá mömmu þegar hann var að vinna. Þegar hann færði mig á milli rúma man ég eftir að hann byrj­aði að þukla brjóstin á mér. Ég var vak­andi en lét sem ég svæfi. Ég vissi að þetta var ekki rétt en ég sagði ekki neitt. Ég var lítil og hafði ekki vit á því að þetta væri óeðli­legt. Síðan fór þetta að vinda upp á sig. Hann bauð mér að smakka áfengi og ein­hverju síðar man ég eftir honum stand­andi í dyr­unum á her­berg­inu mínu þegar ég var sof­andi. Þá hafði hann verið að drekka og þukl­aði á sjálfum sér. Eitt kvöldið tók hann það skref að koma inn í her­bergið mitt og snerta mig. Hann setti putt­ana inn í pík­una á mér og hélt mér þannig að ég myndi ekki snúa mér við. Þegar ég bað hann um að hætta sagði hann að þetta væri bara leynd­ar­málið okkar. Ég man enn í hvernig buxum hann var þetta skiptið. Ég man enn hvernig rakspír­inn hans lyktaði,“ segir Kiana og augun fyll­ast af tárum. Konan sem ætl­aði að rekja þessa sögu án þess að láta bil­bug á sér finna getur ekki haldið aftur af tár­unum, enda enn að glíma við afleið­ingar ofbeldis og á eflaust eftir að takast á við þær alla ævi.

„Mér þótti virki­lega vænt um hann. Hann var fyr­ir­myndin mín. Það særði mig svo ofboðs­lega mikið að mann­eskja sem mér þótti svo vænt um skyldi bregð­ast mér. Að horfa á ein­hvern sem föð­urí­mynd í lengri tíma og svo að þessi mann­eskja brjóti svona rosa­lega á þér. Það var bara sál­ar­morð. Ég hugs­aði bara: Gerði ég eitt­hvað rangt? Gaf ég of mikið af mér? Var ég of sexí? En ég var bara krakki. Ég var bara ég og ég gerði ekk­ert rangt,“ segir Kiana.

„Mig langar að vera fyr­ir­mynd fyrir stelpur og stráka og mig langar að hafa áhrif á að meira sé gert í þessum málum í okkar sam­fé­lagi og öðrum sam­fé­lögum,“ segir Kiana sem dreymir um að hjálpa öðrum þolendum kyn­ferð­is­of­beldis í fram­tíð­inni.

Sér eftir að hafa ekki gargað á hjálp

Mæðgurnar Helga Elín og Halldóra Bald­urs­dóttir sögðu, eins og fyrr segir, sögu sína í 12. tölu­blaði Mannlífs. Þær sögðu frá meintri mis­notkun á Helgu Elínu sem átti sér stað í sum­ar­bú­stað­ar­ferð, að þeirra sögn. Sum­ar­bú­stað­ar­ferð sem Kiana, ein af hennar bestu vin­konum, hafði boðið henni í.

Sjá einnig: „Rík­is­lög­reglu­stjóri brást dóttur minni“.

„Ég sat aftur í og stjúp­faðir minn keyrði. Ég var mjög spennt að fá vin­konu mína með upp í sum­ar­bú­stað og það var ofboðs­lega gaman hjá okkur. Við lékum okkur mikið og fórum í norna­leik. Við fífl­uð­umst við ein­hverja mýri og ég festi mig í henni. Það var alveg ógeðs­lega gaman hjá okkur,“ segir Kiana og brosir áður en hún verður þungt hugsi.

„Síðan kom vina­fólk mömmu og stjúppabba míns. Þau voru með dætur sínar með sér og við Helga vorum voða­lega dug­legar í mömmu­leik og svæfðum dæt­urnar og litla bróður minn. Síðan byrj­aði full­orðna fólkið að drekka en vina­hjónin komu með tvo fulla poka með sér af ein­hvers konar klám­efni. Við vorum nátt­úr­lega krakkar og for­vitnir um hvað væri í pok­unum en þá fengum við að vita að þetta væri ekki fyrir krakka. Við Helga sváfum á upp­blás­inni dýnu við hlið­ina á sóf­anum og þegar stjúpi minn og vinur hans héldu að við værum sofn­aðar byrj­uðu þeir að tala um kyn­líf. Það næsta sem ég man er að seinna um nótt­ina kom stjúpi minn fram og allt í einu greip Helga í hend­ina á mér og bað mig um að hjálpa sér. Ég stirðn­aði. Ég vissi nákvæm­lega hvað var að ger­ast en ég gerði ekki neitt. Eins ógeðs­legt og það hljómar þá var ég fegin að þetta væri ekki ég en í dag vildi ég að þetta hefði verið ég, í stað­inn fyrir að þetta kæmi fyrir ein­hvern annan. Daginn eftir vildi Helga fá að hringja í mömmu sína en hún fékk það ekki. Restin af ferð­inni er bara í móðu,“ segir Kiana. Í kjöl­farið flosn­aði upp úr vin­skapnum.

„Hún forð­að­ist mig og ég vissi alveg af hverju, en á sama tíma vissi ég það ekki. Ég skildi ekki af hverju hún vildi ekki tala við mig. Ég gerði ekki neitt,“ bætir Kiana við. Í dag eru þær Helga kunn­ingja­konur og finna styrk hvor í annarri.

„Við erum sterk­ari saman og við skiljum hvor aðra,“ segir Kiana. Hún er þakk­lát þeim mæðgum fyrir að hafa stigið fram í við­tali við Mannlíf og deilt sinni reynslu. „Mér fannst magnað að lesa við­talið við þær. Þær hafa sína hlið og ég hef mína. Þær gefa mér mik­inn drif­kraft. Mér þykir ofboðs­lega vænt um þær báðar,“ segir Kiana. En var erfitt að lesa við­talið?

„Nei, ekki beint erfitt. En það fékk mig til að hugsa til baka og ég gerði mér grein fyrir hvað þetta var slæmt. Ég lok­aði á þetta í svo langan tíma. Mér fannst ég bera ábyrgð á að þetta hefði komið fyrir hana svo lengi og því fylgdi mikil skömm. Mér fannst eins og ég hefði valdið henni von­brigðum og að ég hefði ekki verið sönn vin­kona. Í dag veit ég að þetta var ekki mér að kenna. Langt frá því. Hefði ég getað gargað og öskrað á hjálp? Já, en ég gerði það ekki. Það er ein mín stærsta eft­ir­sjá í líf­inu.“

Upplifði höfnun frá móður sinni

Eins og kom fram í Mannlífi sagði Helga ekki frá þessu meinta ofbeldi fyrr en þann 5. októ­ber árið 2011. Hún trúði vin­konu sinni í skól­anum fyrir þess­ari reynslu og í kjöl­farið var móðir hennar kölluð í skól­ann. Halldóra, móðir Helgu, sagði í við­tal­inu að breytt hegð­un­ar­mynstur dóttur hennar hefði skýrst við þessa upp­ljóstrun, en hegðun Kiönu tók einnig miklum breyt­ingum eftir að meint brot hófust.

„Ég var hætt að hafa áhuga á skól­anum. Ég byrj­aði að stel­ast í sígar­ettur. Ég hafði enga trú á mér og mig lang­aði ekki til að lifa. Ég vissi ekki hvernig ég ætti að tækla vanda­málin og þorði ekki að segja neitt því ég var hrædd við við­brögð fólks­ins í kringum mig. Ég hélt að eng­inn gæti elskað mig. Mér fannst eins og ég væri skemmd. Eftir fyrsta skiptið fór ég algjör­lega inn í skel. Ég fór að vera lengur úti á kvöldin og var slétt sama um allt og alla. Ég fór að stela rosa­lega mikið og finna flótta­leið til að þurfa ekki að hugsa um þetta. Ég fór að fikta við áfengi og kom mér í alls konar vand­ræði. Ég taldi mér trú um að ég væri bara geð­veik og var farin að finna fyrir miklum skap­sveiflum. Ég réð ekki við til­finn­ingar mínar og ofsareiði braust út,“ segir Kiana. Hún sagði loks frá ofbeld­inu þegar hún var ell­efu ára.

„Kvöldið áður en ég sagði frá mis­not­aði hann mig í sein­asta skiptið,“ segir hún og klökknar. „Daginn eftir mætti ég í skól­ann og ég man bara að ég sturl­að­ist. Það var eins og hefði verið kveikt á rofa í hausnum á mér. Ég kastaði borðum og stólum og síðan brotn­aði ég niður. Kenn­ar­inn minn skildi ekki hvað var í gangi og bauð mér að tala við skóla­hjúkr­un­ar­fræð­ing­inn, sem ég þáði. Ég gekk inn til hennar og vissi ekki hvort ég ætti að segja henni sann­leik­ann eða ekki. Síðan rann það upp fyrir mér að ég var alltaf að finna afsak­anir til að hitta hana. Mér var illt á ýmsum stöðum því ég var að reyna að finna ein­hvern annan stað fyrir verk­inn innra með mér. Þarna sagði ég henni að stjúppabbi minn hefði snert mig á stöðum sem hann ætti ekki að vera að snerta mig á. Hún benti á ýmsa staði á lík­am­anum og ég sagði já við þeim stöðum sem hún benti á. Síðan gaf hún í skyn að hún þyrfti að láta vita af þessu. Þá var eins og þús­und kílóum væri lyft af öxlum mínum og ég gat loks­ins andað. Þetta væri búið.“

Kiana er búin að vera edrú í þrjú ár.

Í kjöl­farið var móðir hennar kölluð á fund í skól­anum.

„Ég fór til hennar og horfði á hana. Hún horfði á mig eins og ég hefði brugð­ist henni. Ég fékk því­líka höfn­un­ar­til­finn­ingu. Það var hringt í ömmu mína og hún kom og náði í mig. Ég veit ekki hvar ég væri án hennar. Hún er dem­ant­ur­inn minn og mér þykir svo vænt um hana. Ég fór til hennar og móð­ur­systir mín bjó hjá henni á þessum tíma. Heima hjá ömmu brotn­aði ég algjör­lega niður. Ég fékk tauga­á­fall ell­efu ára. Ég náði ekki að sofa og starði bara út í loftið. Þær sögð­ust ætla að standa með mér í gegnum þetta allt og að þær elsk­uðu mig. Að þetta breytti ekki þeirra áliti á mér og að þetta væri ekki mér að kenna. Þær brugð­ust hár­rétt við og ég fékk alla þá ást sem ég átti að fá og þurfti á að halda. Á þessum tíma­punkti gerði ég mér ekki grein fyrir því að þetta væri bara rétt að byrja,“ segir Kiana og heldur áfram.

„Ég bjóst við því að ég þyrfti að tala við lögg­una, hann yrði hand­tek­inn og fengi það sem hann ætti skilið. Það sem gerð­ist var að ég fór í nokkur við­töl í Barna­húsi og var ekki einu sinni send í lækn­is­skoðun, þó að það væri bara einn dagur frá meintri mis­notkun,“ segir hún. Hún lifði í þeirri von að móðir hennar myndi loks horfast í augu við sögu hennar og trúa henni.

„Það skipti ekki máli hvað var sagt við hana, hún trúði mér ekki. Ég fékk það beint í and­litið að mamma elskaði mig ekki og að hún afneit­aði mér. Hún ætl­aði bara að vera með honum. Þarna mynd­að­ist tóma­rúm innra með mér. Ég sem stelpa á leið inn í ung­lings­árin fann í fyrsta sinn fyrir virki­legu hatri og reiði í garð mann­eskju sem átti bara að elska mig. Sem átti bara að vera til staðar fyrir mig. Og hún var það ekki. Það bók­staf­lega drap mig að innan.“

Flúði í heim eiturlyfja

Kiana hætti að vilja fara í við­töl í Barna­húsi og valdi frekar hug­ar­breyt­andi efni til að flýja raun­veru­leik­ann. Þrettán ára var hún byrjuð að reykja kanna­bis á hverjum degi og fjórtán ára héldu örvandi efni henni gang­andi.

„Þetta var rosa­lega góður flótti og ég væri að ljúga ef ég segði að mér hefði ekki fund­ist þetta skemmti­legt. Ég var mjög dug­leg þegar kom að fíkni­efnum og með mik­inn metnað fyrir neysl­unni,“ segir Kiana og bætir við að hún hafi snúið mönnum um fingur sér til að hafa efni á fíkn­inni.

„Það er auð­velt ef maður er ung og fal­leg stelpa. Þá þarf maður bara að gefa mönnum undir fót­inn og ég var mjög dug­leg að því þegar kom að fíkni­efnum. En ég gerði ekki meira, ekk­ert kyn­ferð­is­legt með þeim. Ég not­færði mér fólk og menn þegar ég var í neyslu. Ég hataði sjálfa mig. Sjálfseyð­ing­ar­hvötin var á milljón og sjálfs­á­litið ekk­ert. Ef ég elskaði mig ekki, hver ætti þá eftir að gera það? Ég sótt­ist eftir ást á öllum röngu stöð­unum. Ég fór að vera með eldri strákum, sér­stak­lega þeim sem gátu skaffað fyrir neysl­unni. Strákum sem ég not­aði til að gera hluti fyrir mig,“ segir Kiana. Eins og áður segir sagði Helga vin­kona hennar frá meinta ofbeld­inu þann 5. októ­ber, en Kiana sneri líf­inu við og hætti í neyslu þann 5. októ­ber fyrir þremur árum. Einskær til­viljun, en mik­il­vægur dagur í lífi þeirra beggja.

„Það var ann­að­hvort að duga eða drep­ast. Fíkni­efnin voru ástin í lífi mínu. Þau voru það eina sem elskaði mig, að ég hélt, en þau voru farin að bregð­ast mér. Mig lang­aði ekki að nota þau lengur. Ég hafði brotið svo mörg prinsipp og leið ömur­lega. Ég var búin að steikja í mér haus­inn. Vorið 2015 var ég tekin fyrir að reyna að koma fíkni­efnum til Vest­manna­eyja. Eftir það var ég edrú í heila fjóra mán­uði að leita mér að annarri fíkn. Ég leit­aði að stað­fest­ingu frá hinu kyn­inu en ég höndl­aði ekki sjálfa mig og fór aftur í sama farið og byrj­aði að nota aftur. Þetta var orðið mjög sorg­legt í end­ann. Seinasta djam­mið mitt var þannig að ég fór í bíó. Ég fór á Sicario sem fjallar um fíkni­efna­hring. Ég var svo biluð að ég hélt að allir í salnum væru í lögg­unni. Ég fór í með­ferð morg­un­inn eftir, fyrst til að friða alla í kringum mig en ekki fyrir sjálfa mig. Þetta var besta ákvörðun sem ég hef tekið. Inni á Vogi byrj­aði ég að finna fyrir til­finn­ingum. Ég var svo hrædd því allt kom upp aftur og ég þurfti að díla við hlut­ina. Ég fékk tauga­á­fall inni á Vogi. Kjálkinn á mér fest­ist og ég var í svo miklum frá­hvörfum að ég slef­aði. Mér leið eins og ég væri að kafna og að tungan í mér væri að leka niður í háls. Ég var svo ofboðs­lega hrædd og búin á því. Þá kom reiðin upp aftur og ég réð ekk­ert við hana. Ég var svo rosa­lega reið.“

„Ég trúði því að réttlætið myndi sigra“

Við hoppum aftur nokkur ár aftur í tím­ann þegar Helga ákvað að stíga fram og segja frá meintu kyn­ferð­is­of­beldi. Kiana segir að þá hafi kviknað smá­von­ar­glæta í brjósti hennar.

„Ég von­aði svo inni­lega að hún yrði heppn­ari en ég. Það var það eina sem ég von­aði. Þegar hún sagði frá komu tveir lög­reglu­menn heim til mín og ræddu við mig um mitt mál, hennar mál og mál þriðju stelpunnar. Ég vissi ekki af þriðju stelp­unni. Á því augna­bliki hefði ég getað logið ein­hverju en ég vildi vera hrein­skilin. Ég trúði því að rétt­lætið myndi sigra,“ segir Kiana, en þessar þrjár kærur á hendur mann­inum voru allar felldar niður. Honum var ekki vikið úr starfi meðan á rann­sókn mál­anna stóð og hélt starfi sínu innan lög­regl­unnar þegar málin voru látin niður falla.

„Ég skil þetta ekki. Voru orð mín ekki nóg? Eða hinna tveggja? Ég bara fatta þetta ekki,“ segir Kiana, en mál hennar og Helgu voru ekki rann­sökuð saman. „Auðvitað átti að rann­saka málin saman. Og auð­vitað átti að senda mig í lækn­is­skoðun þegar ég sagði frá til að athuga með inn­vortis áverka. Svo vill eng­inn taka ábyrgð á þessu,“ segir Kiana og bendir á þá stað­reynd að emb­ætti Rík­is­lög­reglu­stjóra og Rík­is­sak­sókn­ara hafi bent hvort á annað þegar móðir Helgu setti út á rann­sókn máls dóttur hennar í Mannlífi.

„Það benda allir hver á annan. Hvað ef þetta væri dóttir ein­hvers innan þess­ara emb­ætta? Eða sonur? Væru þetta við­brögðin þá? Ég efast um það. Ég fyllist við­bjóði að hugsa til þess að þessi maður fái enn að vinna innan veggja lög­regl­unnar. Að hann fái að vinna þar sem brotnir ein­stak­lingar leita sér hjálpar. Það gerir mig bil­aða. Rétt­ar­kerfið á Íslandi er til hábor­innar skammar. Það hefur ekki bara brugð­ist mér og Helgu, heldur svo ótal fleirum.“

Vill hjálpa öðrum þolendum

Kiana prýðir for­síðu Mannlífs.

Kiana glímir í dag við ýmsar þekktar afleið­ingar kyn­ferð­is­of­beldis. Hún kann illa á sam­skipti við fólk þar sem hún á erfitt með að greina mun­inn á réttu og röngu. Henni finnst óþægi­legt að snerta börn því hún er hrædd um að snerta þau á óvið­eig­andi hátt. Hún er með ofsa­kvíða og áfallastreituröskun. Hún er log­andi hrædd við að gera mis­tök. Hún hefur unnið mikið í sjálfri sér síð­ustu þrjú árin og meðal ann­ars leitað sér hjálpar hjá geð­læknum, sál­fræð­ingum og hjá Stíga­mótum.

„Ég vinn í því á hverjum degi að elska sjálfa mig. Mér finnst eins og ég kunni ekki að vera vin­kona. Að ég þurfi að æfa mig í því. Að ég þurfi að læra að vera systir. Ég get leitað mér hjálpar til að hjálpa sjálfri mér en hvað með rétt­lætið? Mig langar að berj­ast fyrir rétt­læt­inu í þessu máli en ég veit ekki hvernig ég á að gera það. Ég get ekki leitað til lög­regl­unnar því ég veit ekki hvernig ég á að fara að því að treysta henni í þessu máli. Það er sagt að rétt skuli vera rétt þegar kemur að lögum og reglum og þetta á að vera fólk sem á að vernda íbú­ana í land­inu. En það getur samt ekki opnað augun fyrir eigin breysk­leikum,“ segir Kiana sem dreymir um að hjálpa öðrum þolendum kyn­ferð­is­of­beldis í fram­tíð­inni.

„Mig langar að vera fyr­ir­mynd fyrir stelpur og stráka og mig langar að hafa áhrif á að meira sé gert í þessum málum í okkar sam­fé­lagi og öðrum sam­fé­lögum. Það er enn tabú að hafa lent í kyn­ferð­is­of­beldi, hvort sem það er nauðgun eða áreiti. Sam­fé­lagið er lokað og það breyt­ist ekk­ert nema við gerum eitt­hvað í því. Viljum við virki­lega að börn fram­tíð­ar­innar upp­lifi heim­inn svona? Að þau þurfi að lifa í stans­lausum ótta, að ekk­ert sé gert ef eitt­hvað kemur fyrir þau og hvort þau fái rétt­læti eða ekki? Það er nátt­úr­lega bara fárán­legt. Ég horfi á börnin í kringum mig sem ég elska ofboðs­lega mikið og finnst vont að sjá að þetta sé heim­ur­inn sem við bjóðum þeim upp á.“

„Ég er tilbúin að mæta því sem kemur“

Í dag býr Kiana hjá móður sinni, sem er ekki sátt við að dóttir sín stígi fram í þessu við­tali, að hennar sögn. Móðir hennar sleit fyrir nokkrum árum sam­vistum við mann­inn sem Kiana sakar um kyn­ferð­is­of­beldi, en að sögn Kiönu er sam­band þeirra mæðgna enn stirt á köflum.

„Mamma mín verður alltaf mamma mín. Ég elska hana og það mun aldrei breyt­ast. Það koma tíma­bil þar sem ég finn fyrir reið­inni og hatr­inu og mér finnst erfitt að geta ekki rætt þessa hluti við hana. Ég hef þurft að taka það í sátt að hún muni ekki ræða þetta. Ég stjórna henni ekki og ég ber ekki ábyrgð á ham­ingju ann­arra, ein­ungis minni eigin. Ég er mjög þakk­lát fyrir fjöl­skyldu mína. Svo ég tali nú ekki um vin­ina. Ég veit ekki hvar ég væri í dag ef ég ætti ekki þær vin­konur og vini sem ég á í dag. Þau taka mér eins og ég er og ég get verið ég sjálf í kringum þau,“ segir Kiana. Hún svaf lítið í nótt. Hún var með hug­ann við þetta við­tal. Þessa opin­berun sína. Hún seg­ist ekki stressuð fyrir því að Ísland fái að vita hennar sögu. Þótt það sé erfitt að rifja upp þennan sára tíma, segir hún það að vissu leyti gott. Ákveðinn létti.

„Ég er ekki stressuð fyrir við­brögð­unum sem ég á eftir að fá. Ég get ekki gert öllum til geðs. Kannski á ég eftir að fá fullt af jákvæðum við­brögðum en ég veit að ég á eftir að gera ein­hverja mjög reiða. Ég veit það, en ég vil koma hlut­unum frá mér eins og þeir eru. Rétt skal vera rétt og það sem kemur, kemur. Ég er til­búin að mæta því sem kemur.“

Málið í hnotskurn

Mæðgurnar Halldóra og Helga sögðu sína sögu fyrir tveimur vikum.

Lög­reglu­mað­ur­inn sem þrjár stúlkur sök­uðu um kyn­ferð­is­brot starf­aði áfram meðan á rann­sókn allra mál­anna þriggja stóð. Málin voru ekki rann­sökuð saman. Eftir að málin voru felld niður hélt lög­reglu­mað­ur­inn starf­inu. Í máli Helgu Elínar liggja fyrir skýrslur frá sér­fræð­ingum í Barna­húsi sem stað­festu að Helga Elín hefði orðið fyrir miklum skaða í umtal­aðri sum­ar­bú­stað­ar­ferð.

Eins og hefur komið fram voru vinur lög­reglu­manns­ins, sem er hátt­settur emb­ætt­is­maður hjá hinu opin­bera, og eig­in­kona hans með í sum­ar­bú­stað­ar­ferð­inni. Að sögn Halldóru Bald­urs­dóttur, móður Helgu Elínar, tók skýrslu­taka yfir vina­hjón­unum aðeins örfáar mín­útur og fór fram á skrif­stofu emb­ætt­is­manns­ins. Þau hjónin og eig­in­kona sak­born­ings báru fyrir sig minnis­leysi vegna áfeng­is­drykkju og nið­ur­fell­ing máls­ins var meðal ann­ars byggð á þeirra vitn­is­burði. Við rann­sókn máls­ins kom fram að klám­efni hafði verið haft fyrir börn­unum í umræddri sum­ar­bú­staða­ferð. Umrædd vina­hjón voru aldrei spurð út í klám­mynda­á­horfið og tölva sak­born­ings var ekki skoðuð. Þegar lög­regla skoð­aði sum­ar­bú­stað­inn fór hinn meinti kyn­ferð­is­af­brota­maður með á vett­vang.

Að sögn Halldóru kemur fram í rann­sókn­ar­gögnum að lög­reglu­mað­ur­inn hafi sakað stelp­urnar þrjár um sam­særi gegn sér og að ekk­ert hafi verið gert til að hrekja slíkt. Halldóra hefur óskað eftir því við Nefnd um eft­ir­lit með lög­reglu að máls­með­ferðin verði skoðuð. Eitt að því sem hún gagn­rýndi harð­lega var að þrátt fyrir að þrjár stúlkur hefðu kært lög­reglu­mann­inn hefðu málin ekki verið rann­sökuð saman og ekk­ert brugð­ist við full­yrð­ingum lög­reglu­manns­ins um að stúlk­urnar þrjár hefðu uppi sam­særi gegn sér.

Sjá einnig: Segist ekki hafa brugð­ist dóttur Halldóru.

Enginn tekur ábyrgð

Í við­tali í 12. tölu­blaði Mannlífs sagði Halldóra að henni hafi verið bent á að senda erindi á Harald Johann­es­sen rík­is­lög­reglu­stjóra, af þáver­andi lög­reglu­stjóra á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, Stefáni Eiríks­syni, þegar mál dóttur hennar kom upp. Í sam­tali við Mannlíf lýsti hún þeirri til­finn­ingu sinni að rík­is­lög­reglu­stjóri hafi brugð­ist henni og dóttur hennar, þar sem hann vildi „ekk­ert fyrir okkur gera.“

Embætti rík­is­lög­reglu­stjóra hefur and­mælt þeirri full­yrð­ingu Halldóru að rík­is­lög­reglu­stjóri, Haraldur Johann­es­sen, hafi brugð­ist dóttur Halldóru,

Haraldur Johann­es­sen hefur ekki viljað svara spurn­ingum Mannlífs per­sónu­lega um þetta mál. Samkvæmt yfir­lýs­ingu frá emb­ætti rík­is­lög­reglu­stjóra fór emb­ættið þess á leit við rík­is­sak­sókn­ara að fá afhent rann­sókn­ar­gögn máls­ins til þess að unnt væri að taka ákvörðun um hvort leysa skyldi lög­reglu­mann­inn frá emb­ætti um stund­ar­sakir eða að fullu. Rík­is­sak­sókn­ari hafn­aði erindi Embættis rík­is­lög­reglu­stjóra með vísan til heim­ild­ar­skorts í lögum. Sigríður J. Frið­jóns­dóttir rík­is­sak­sókn­ari sagði hins vegar í sam­tali við Stundina að rík­is­sak­sókn­ari hafi sent „rík­is­lög­reglu­stjóra allar upp­lýs­ingar um málið vegna fyr­ir­hug­aðrar ákvarð­ana­töku hans um það hvort veita ætti við­kom­andi lög­reglu­manni lausn frá störfum“.

Stefán Eiríks­son starf­aði sem lög­reglu­stjóri höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins meðan á rann­sókn máls­ins stóð. Stefán kveðst ekki hafa fylgst með umfjöllun um málið og neitar að tjá sig um það við blaða­menn Mannlífs.

Myndir / Heiðdís Guðbjörg Gunn­ars­dóttir
Förðun / Silja Dröfn Jóns­dóttir með vörum frá Urban Decay

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi