Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

„Yngjandi og mannbætandi“

Feður yfir fimm­tugu.

„Yngjandi og mannbætandi“
|
Jakob Frímann með dætrum sínum Katrínu Borg, 5 ára, og Jarúnu Júlíu, 10 ára.

Jakob Frímann Magn­ús­son, tón­list­ar­maður og fram­kvæmda­stjóri Mið­borg­ar­innar okkar, var 59 ára gam­all þegar hann eign­að­ist yngsta barnið sitt en þá voru liðin 35 ár síðan elsta dóttir hans fædd­ist. Jakob er einn af fjórum úr Félagi eldri feðra sem eru í við­tali í nýjasta tölu­blaði Mannlífs.

„Ég var 34 ára þegar Bryndís mín kom í heim­inn og til­finn­ingin var stór­kost­leg. Mér fannst ég upp­lifa krafta­verk og upp­lifunin var miklu stærri og magn­aðri en ég bjóst við,“ segir Jakob sem á fjórar dætur; Katrínu Borg, 5 ára; Jarúnu Júlíu, 10 ára; Bryndísi, 30 ára og Ernu Guðrúnu sem hann ætt­leiddi og er nú 40 ára. Eig­in­kona Jakobs og móðir yngstu dætrana er Birna Rún Gísla­dóttir við­skipta­fræð­ingur sem starfar hjá Arion banka.

„Þegar Katrín Borg fædd­ist var ég 59 ára og upp­lifunin var afar sterk sem fyrr. Eins og mér fannst ég njóta þess í botn þegar frum­burð­ur­inn kom í heim­inn þá virð­ist mér ég nú hafa meiri þroska og burði til þess að njóta þess til hlítar frá degi til dags að eiga ung börn. Það hefur satt að segja veitt mér alveg ólýs­an­lega gleði og við­var­andi ham­ingju sem ég þakka af auð­mýkt á degi hverjum. Ég er á þeim stað í líf­inu núna, að ég nýt upp­lif­un­ar­innar svo sterk­lega að mig hefði í raun aldrei órað fyrir því. Við erum alveg ein­stak­lega heppin með börnin okkar og leggjum okkur fram um að rækta þau sem best við getum, fyrst og fremst með því að umvefja þau ómældum kær­leika. Það er ekki til neitt dásam­legra í líf­inu en að halda á barn­inu sínu og umvefja það umhyggju og ást í sinni tær­ustu mynd.

Vinir og ætt­ingjar hafa sam­glaðst okkur frá fyrsta degi og ég hef aldrei fundið fyrir efa­semdum eða for­dómum neins konar, þvert á móti. Ég á frá­bæra konu með stóra og skemmti­lega fjöl­skyldu. Þaðan er nú stoð­kerfi fjöl­skyld­unar fyrst og fremst sprottið; ótal svil­konur, frænkur og vin­konur reiðu­búnar að passa döm­urnar okkar þegar svo ber undir, að ekki sé minnst á mína frá­bæru tengda­móður Sig­ur­laugu Þórð­ar­dóttur, hana ömmu Systu, sem ávallt er boðin og búin þegar mikið liggur við.“

Mælir með þessu
Jakob seg­ist ekki finna fyrir þreytu, heldur þvert á móti. „Ég bý sem betur fer yfir mik­illi orku og hef alltaf gert. Það hefur tví­mæla­laust gefið mér aukna orku að eign­ast þessar ljós­verur mínar og gleði­gjafa. Börnin héldu í raun ekki vöku fyrir okkur nema rétt eftir fæð­ingu, vorið 2007 og haustið 2012. Ég mæli ein­dregið með því við þá sem eiga ungar heil­brigðar konur og hafa til þess aðstæður, að eign­ast börn fram eftir aldri. Það er að mínu mati bæði yngj­andi, mann­bæt­andi og ein­stak­lega gef­andi. Föð­ur­hlut­verkið er nú einu sinni hið mik­il­væg­asta í mínu lífi og ég elska börnin mín alveg óend­an­lega. Að svæfa þau yngstu með frum­sömdum ævin­týrum og vakna með þeim á morgn­ana og aka í skól­ann, það eru bestu stundir dags­ins. Þetta eru svo ómet­an­leg lífs­gæði að mig hefði aldrei órað fyrir því hve mik­illar gæfu ég yrði aðnjót­andi. Ég hlakka til hvers nýs dags með þessum elskum öllum. Við erum afar sam­rýmd fjöl­skylda og njótum hins ein­falda í líf­inu saman, ekki síður en að ferð­ast og skemmta okkur við söng og leik. Lífið er sann­ar­lega ljúft þeim föður sem hér er ann­ars vegar.“

Viðtölin við Hallgrím Helgason og Björn Karlsson.

Texti / Ragn­hildur Aðal­steins­dóttir
Mynd / Hákon Davíð Björns­son

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Að lokinni fimm vikna þjálfun hafa nemendurnir réttindi til að kafa niður á 30 metra dýpi
Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina