Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

„Aldrei of seint fyrir ást“

Feður yfir fimm­tugu.

„Aldrei of seint fyrir ást“
|
Hall­grímur með dóttur sína sem fædd­ist rétt fyrir síð­ustu jól.

Hall­grímur Helgason, rit­höf­undur og mynd­list­ar­maður, var nýlega orð­inn afi þegar hann eign­að­ist yngsta barnið sitt í des­em­ber síð­ast­liðnum. Þar með varð hann félagi í hinum gam­an­sama óform­lega félags­skap Félag eldri ferða, FEF, en til að hljóta inn­göngu verða menn að hafa náð 50 ára aldri þegar barnið fæð­ist. Í nýjasta tölu­blaði Mannlífs eru við­töl við fjóra menn úr þessu merka félagi.

„Ég var 58 ára þegar yngsta dóttirin fædd­ist og það var auð­vitað öðru­vísi en þegar ég eign­að­ist mitt fyrsta barn 34 árum áður. Þótt þetta væri mitt fjórða barn var þetta fyrsta barn Öglu, kon­unnar minnar, og þegar fólk er komið þetta langt út á lífs­hafið er ekki alltaf sjálf­gefið að börnin komi eftir pöntun. Við vorum búin að reyna nokkuð lengi og þegar það lukk­ast svo verður gleðin skilj­an­lega stærri. Maður upp­lifir þetta svo­lítið sem krafta­verk,“ segir Hall­grímur en maki hans er Þor­gerður Agla Magn­ús­dóttir bóka­út­gef­andi. Börnin hans heita Hall­gerður, 34 ára; Kári Daníel, 14 ára; Margrét María, 12 ára og það yngsta sem er nokk­urra vikna gömul stúlka og hefur ekki enn fengið nafn.

„Þegar fyrsta barnið fædd­ist var ég 25 ára gam­all og í fyrstu fannst manni þetta nú bara vesen. Það var ekki á plan­inu að eign­ast barn og ég man að mér leist ekk­ert á það á með­göng­inni. Ungur maður var óþol­in­móður og gerði allt til að forð­ast barn­eignir, eða næstum því allt … Fyrir honum voru barn­eignir bara hraða­hindrun á ferl­inum. Og svona hugs­aði maður sem sagt á þessum árum þegar feður voru almennt ekki að taka börnin aðra hverja viku og það hræði­lega hug­tak helg­arpabbi var rétt að verða til. Allt tal um hraða­hindrun var því bara djók. Þetta lenti allt á mömm­unum. Um leið og dóttir mín fædd­ist sá ég hversu vit­laus maður hafði verið. Þetta var auð­vitað það besta sem gat komið fyrir mann. En lífið er víst þarna til að kenna manni og með tím­anum sá maður hvað þetta var þrosk­andi og gef­andi og svo bara hrein­lega djúp-djöfilli-skemmti­legt. Það er nú bara þannig: Þegar maður eign­ast barn þá fattar maður fyrst hvað lífið gengur út á.“

Finnur fyrir þreytu
Hall­grímur hefur fengið góð við­brögð við því að eign­ast barn á þessum aldri. „Ég hef nú bara fundið fyrir gleði og heyrt hlátur. En hvað býr í þeim hlátri veit maður ekki alveg, sumum finnst þetta kannski fárán­legt. En við Íslend­ingar erum ekki nógu dug­legir að eign­ast börn, það er nú bara þannig, og því er nýjum ein­stak­lingi auð­vitað fagnað hér um slóðir.

Þegar maður er að nálg­ast sex­tugt er til­finn­ingin óneit­an­lega sú að nú sé farið að síga á seinni hlut­ann, nú sé maður að fara að lenda þessu, nú sé farið að kvölda. Þegar svo birt­ist lítið barn er það eins og skyndi­leg sól­ar­upp­rás síðla kvölds, það birtir yfir öllu og maður trúir ekki sínum eigin augum. Manni finnst maður yngj­ast um tutt­ugu ár, eða tutt­ugu ár hafi bæst aftan við líf manns, ég veit ekki alveg hvort það er. Ég var líka nýorð­inn afi, nán­ast orðin að for­tíð, en fæ svo allt í einu fram­tíð­ina í fangið. Viva la vida! Og þá er ég ekki að vísa í Coldplay lagið.“

Hann er sann­færður um að það sé betra fyrir börn á fyrsta ald­urs­skeiði að eiga for­eldra sem fara aldrei út að skemmta sér. „Af því að skemmt­unin er jú þau sjálf, en svo kemur sjálf­sagt að því að þau súpi hveljur þegar pabbi kemur á göngu­grind­inni í for­eldra­við­talið í gaggó og öskur­snýtir sér í gamlan tóbaks­klút frammi á skóla­gang­inum fyrir allra augum.

Ég neita því ekki að finna fyrir þreytu. Þegar nýja dóttirin vakti mig í fyrstu pela­vakt­ina klukkan fjögur um nótt leið mér eins og ein­hver væri að biðja mig að fara niður á Kaffibar og kaupa mér einn stóran. Ég ætl­aði nú bara varla að hafa mig upp. En svo fór þetta að venj­ast og sá gamli vaknar auð­vitað alltaf miklu fyrr en ungi mað­ur­inn. Annars mæða fyrstu mán­uð­irnir auð­vitað mest á móð­ur­inni og það er ekki enn farið að reyna veru­lega á mann.“

Allt annað er auka­at­riði
Föð­ur­hlut­verkið hefur alla tíð gefið Hall­grími mikið. „Sanna gleði. Og stolt. Ég hef verið mjög heppin með börn. Það er ekk­ert sem gleður meira en að elda fyrir svanga munna og sjá þá taka vel til matar síns, sjá þau síðan fara og skora mörk, fá góð ummæli frá kenn­urum eða halda sýn­ingar. Maður hefur líka svo gott af því að setja sjálfan sig til hliðar og standa á hlið­ar­lín­unni. Bara muna að vera ekki að hrópa mikið á dóm­ar­ann. Ég mæli líka með því að eign­ast börn á mínum aldri. Það er aldrei of seint fyrir ást.“

Hall­grímur segir afa­hlut­verkið að mörgu leyti ólíkt föð­ur­hlut­verk­inu. „Það var hlut­verk sem var nýtt fyrir mér og maður er enn að læra á, hversu mikið á maður að vera með í því og svo fram­vegis. Því miður er barna­barnið erlendis í vetur þannig að ég hef aðeins misst niður þráð­inn, en þær hitt­ust þó um dag­inn, 14 mán­aða barna­barn og 4 vikna barn, og var það mikið fagn­að­arundur,“ segir Hall­grímur.

Framundan er svo að hugsa vel um þá yngstu, koma henni út í kerru og von­andi á lappir fyrir jól. „Allt hitt er nú bara auka­at­riði. Að lokum vil bara þakka ÍVF klíník­inni í Glæsibæ (sem nú heitir Livio) fyrir frá­bært og vax­andi starf. Þau telja sig sjálf­sagt hafa hug­mynd um að vinna þeirra sé mik­ils metin en ég vil þó nota tæki­færið til að segja þeim að nei, þið munuð aldrei getað ímyndað ykkur hve stórar ham­ingjur þið hafið tendrað út um bæ og land.“

Texti / Ragn­hildur Aðal­steins­dóttir
Mynd / Hákon Davíð Björns­son

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Að lokinni fimm vikna þjálfun hafa nemendurnir réttindi til að kafa niður á 30 metra dýpi
Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina