Arna Magnea Danks
„Við erum bara fólk eins og annað fólk“
Arna Magnea Danks
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Fólk

Björk Guð­munds­dóttir er ólétt

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

„Nándin við föður ekki síður mikilvæg“

Feður yfir fimm­tugu.

„Nándin við föður ekki síður mikilvæg“
|
Björn með börn­unum sínum Birtu, 18 ára, Loga, 13 ára, Birnu, 7 ára, og Ástu, 4 ára.

Björn Karlsson, for­stjóri Mann­virkja­stofn­unar og Dósent við Umhverfis- og bygg­ing­ar­verk­fræði­deild Háskóla Íslands, er 58 ára og á fjögur börn á aldr­inum 4-18 ára. Hann er ein­stæður faðir en seg­ist svo hepp­inn að eiga tvær góðar barns­mæður. Björn er einn af fjórum mönnum úr Félagi eldri feðra sem eru í við­tali í nýjasta tölu­blaði Mannlífs.

„Ég var mjög seinn að læra það hvernig maður býr til börn og var fer­tugur þegar fyrsta barnið fædd­ist. Það varð gríð­ar­leg gleði að eign­ast loks­ins barn. Sýnin á til­gang lífs­ins breytt­ist í einu vet­fangi og þró­að­ist síðan áfram í rétta átt. Ég var 54 ára þegar yngsta dóttirin fædd­ist og það var ekki síður ynd­is­legt en þegar sú fyrsta fædd­ist. Ég hef alltaf verið „eldri faðir“ og for­gangs­röðun föð­ur­hlut­verks­ins og umhyggju fyrir börnum eykst bara með aldr­inum,“ segir Björn sem á börnin Birtu, 18 ára, Loga, 13 ára, Birnu, 7 ára, og Ástu, 4 ára.

„Ég tók fæð­ing­ar­or­lof vegna fyrstu þriggja barn­anna. Þegar fjórða barnið fædd­ist þá hafði fæð­ing­ar­or­lofs­styrkur verði skor­inn mjög mikið niður, eftir efna­hags­hrunið, svo að ég tók í stað­inn út allt sum­ar­leyfi sem ég átti inni til tveggja ára, og fékk þannig tæp­lega þriggja mán­aða fæð­ing­ar­or­lof án mik­illar tekju­skerð­ingar.“

Hann segir að for­gangs­röð­unin breyt­ist í líf­inu með hækk­andi aldri. „Rúmlega fer­tugur flutti ég heim til Íslands eftir meira en tveggja ára­tuga búsetu erlendis, búinn að klára dokt­ors­próf, sinna alþjóð­legum vís­inda­störfum og búinn að skrifa þær helstu bækur sem ég vildi skrifa. Þá þegar var manni orðið ljóst að for­eldra­hlut­verkið er mik­il­væg­ara en starfs­fram­inn. Ég tel að að mörgu leyti betra að vera kom­inn á þenna aldur með ung börn. Einna helst vegna þess að þegar menn eru yngri freist­ast þeir ef til vill til að for­gangs­raða öllu hinu sem menn vilja gera, og þá sér­stak­lega starfs­frama eða þess að afla fjár­muna fyrir fjöl­skyld­una, sem er að vísu mjög skilj­an­legt.“

Sam­fé­lags­legir for­dómar
Björn seg­ist finna sér­stak­lega fyrir miklum stuðn­ingi og hvatn­ingu með­bræðra sinna og nán­ustu fjöl­skyldu við því að vera faðir á þessum aldri. „Ynd­is­legt fólk. Móðirin hefur auð­vitað alveg ein­stakt og náið sam­band við ung­barnið fyrstu 1-2 árin, hún hefur jú gengið með barnið og gefur því brjóst, hlut­verk sem við karl­menn­irnir tökum seint að okkur. En varð­andi umönnun barna sem eru orðin eldri en þetta þá er nándin við föð­ur­inn ekk­ert síður mik­il­væg. Ég hef fundið fyrir for­dómum í þá átt að karl­menn almennt séu ekki jafn mik­il­vægir for­eldrar og konur. Að heim­ili föð­ur­ins sé nokk­urs­konar helgar-heim­ili, að hann sé helgar-pabbi og föður fjöl­skyldan helgar-fjöl­skylda, en að móð­irin sé aðal­for­eldrið, með aðal­heim­ilið og aðal­fjöl­skyld­una. Margir í heil­brigð­is­kerf­inu, mennta­kerf­inu og bara almennt í þjóð­fé­lag­inu virð­ast hafa óskap­lega gam­al­dags sýn á föð­ur­hlut­verkið. Báðar barns­mæður mínar eru sem betur fer vel upp­lýstar hvað þetta varðar, við hugsum fyrst og fremst um vellíðan barn­anna þegar tökum ákvarð­anir um umgengni og slíkar ákvarð­anir geta tekið breyt­ingum eftir aðstæðum.“

Björn seg­ist alltaf hafa sofið frekar lítíð og hafi í gegnum tíð­ina oft fundið fyrir þreytu, inn á milli. „Þetta hefur lítið breyst síð­ast­liðna ára­tugi. Það er auð­vitað mjög krefj­andi að vera for­eldri smá­barna og smá­barna­for­eldrar eru almennt oft þreyttir, skilj­an­lega svo. En þetta er kær­leiksvinna, maður sér ekki eftir einni sek­úndu. Ég mæli ein­dregið með að menn eign­ist börn, almennt. Og ekki verra að gera það þegar menn hafa tekið út starfs­frama og hafa for­gangs­raðað tíma sínum betur. Föð­ur­hlut­verkið gefur mér mögu­leik­ann á að gefa kær­leika og umhyggju. Óborg­an­legt,“ segir Björn og bætir hlægj­andi við að lokum: „Svo máttu taka það fram að fyr­ir­spurnir um hjú­skap­ar­stöðu og aðra einka­hagi eru vel­komnar á sam­fé­lags­miðl­inum Facebook.“

Viðtalið við Hallgrím Helgason.

Texti / Ragn­hildur Aðal­steins­dóttir
Mynd / Hákon Davíð Björns­son

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Létu greipar sópa í Bónus, ELKO og Kids Coolshop

Annar glæpamannanna hafði sakaferil að baki en hinn hafði ekki áður gerst sekur um þjófnað
Heimur

Segir Net­anyahu þrýsta á Trump um kjarn­orku­árás

Pólitík

Reykja­vík ætlar að snúa millj­arða­halla í afgang á aðeins einu ári

Heimur

Úkraínsk dróna­árás olli miklum eldi í rúss­neskri olíu­hreinsi­stöð

Landið

Sváfu undir berum himni og heill­uð­ust af íslenska hálend­inu

Innlent

Innlent

Getur munað rúmum 22 þús­und krónum á umfelgun fólks­bíls

ASÍ ráðleggur fólki að óska eftir staðfestu heildarverði.
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Kona á fimm­tugs­aldri ákærð fyrir að aug­lýsa vændi á Akureyri

Innlent

Fór í búð í Graf­ar­vogi en end­aði í fanga­geymslu

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu