Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Vill afsögn ríkislögreglustjóra

Rík­is­lög­reglu­stjóri hefði getað vikið lög­reglu­manni, sem var kærður fyrir barn­a­níð, tíma­bundið frá störfum að mati nefndar um eft­ir­lit með lög­reglu. Halldóra Bald­urs­dóttir, móðir stúlku sem kærði mann­inn, vill afsögn Haralds Johann­es­sen rík­is­lög­reglu­stjóra vegna máls­ins.

Nú hefur nefndin loks kom­ist að þeirri nið­ur­stöðu að Rík­is­lög­reglu­stjóri hefði getað vikið mann­inum frá störfum á meðan rann­sókn stóð. Hún sér þó ekki ástæðu til að senda Rík­is­lög­reglu­stjóra til­mæli um aðgerðir vegna máls­ins. Hluti gagn­anna sem Mannlíf hefur undir höndum.

Mannlíf hefur fjallað ítar­lega um mál þriggja ungra stúlkna sem kærðu fyrr­nefndan lög­reglu­mann fyrir kyn­ferð­is­brot, en mál stúlkn­anna voru felld niður vegna ónægra sann­anna. Maðurinn var ekki leystur frá störfum meðan á rann­sókn stóð og starfar enn í lög­regl­unni. Móðir einnar stúlkunnar, Halldóra Bald­urs­dóttir sendi í kjöl­farið nefnd um eft­ir­lit með lög­reglu bréf þar sem hún gerði alvar­legar athuga­semdir við máls­með­ferð­ina í máli dóttur. Nú hefur nefndin loks kom­ist að þeirri nið­ur­stöðu að Rík­is­lög­reglu­stjóri hefði getað vikið mann­inum frá störfum á meðan rann­sókn stóð. Hún sér þó ekki ástæðu til að senda Rík­is­lög­reglu­stjóra til­mæli um aðgerðir vegna máls­ins. Telur nefndin því ekki ástæðu til frek­ari athafna í til­efni af erindi Halldóru. Þetta kemur allt fram í gögnum sem Mannlíf hefur undir höndum.

Sumarbústaðarferð sem breyttist í martröð

Eins og kun­ugt er fjall­aði Mannlíf fyrst fjöl­miðla um málið þegar Halldóra prýddi for­síðu blaðs­ins á síð­asta ári ásamt Helgu Elínu dóttur sinni. Í blað­inu sögðu þær frá meinta kyn­ferð­is­brot­inu, sem Helga Elín segir hafa átt sér stað árið 2007 í sum­ar­bú­staða­ferð með þáver­andi bestu vin­konu hennar, Kiönu Sif, móður hennar og lög­reglu­mann­inum, sem þá var stjúp­faðir Kiönu, auka vina­hjóna þeirra. Helga Elín var á barns­aldri þegar hún fór í ferð­ina og í sam­tali við Mannlíf sagð­ist Halldóra hafa séð miklar breyt­ingar á dóttur sinni eftir ferð­ina. „Hún varð veru­lega kvíðin. Hún gat til dæmis ekki gengið ein heim úr skól­anum án þess að vera með mig í sím­anum. Ef hún sá mann bíða í strætó­skýli varð hún að vera með mig í sím­anum á leið­inni heim. Helga hætti að umgang­ast umrædda skóla­systur eftir þessa ferð. Ég man ekki hversu oft hún kom á stökki inn til mín á nótt­unni þegar hana var að dreyma illa. Hún varð hrædd við karl­menn.“

Halldóra hafði sam­band við barna­vernd og sagð­ist gruna að eitt­hvað hefði komið fyrir dóttur sína en fékk þau ráð að þrýsta ekki á hana, ekki spyrja hana heldur leyfa henni að koma fram með þetta sjálfri og það var það sem hún gerði. Fjórum árum síðar var Halldóra boðuð á fund í skóla dóttur sinnar, þar sem henni var sagt að Helga Elín hefði trúað vin­konu sinni fyrir því að stjúp­faðir skóla­systur þeirra hefði beitt hana kyn­ferð­is­legu ofbeldi í sum­ar­bú­staða­ferð fjórum árum áður. Vinkonan hvatti Helgu Elínu til að segja frá og saman fóru þær til umsjón­ar­kenn­ara síns. Eftir fund­inn var málið strax sett í far­veg, það kært til lög­reglu og rann­sókn hófst.

Fleiri stúlkur stigu fram og kærðu manninn

Ekki nóg með það heldur kærði önnur stúlka, Lovísa Sól, sama lög­reglu­mann fyrir kyn­ferð­is­brot á sínum tíma og sömu­leiðis stjúp­dóttir hans, fyrr­nefnd Kiana Sif, en hún steig einnig fram og rakti sögu sína af mann­inum í Mannlífi, skömmu eftir við­talið við Halldóru og Helgu Elínu. Þar sagði Kiana Sif meðal ann­ars: „Ég svaf alltaf uppi í rúmi hjá mömmu þegar hann var að vinna. Þegar hann færði mig á milli rúma man ég eftir að hann byrj­aði að þukla brjóstin á mér. Ég var vak­andi en lét sem ég svæfi. Ég vissi að þetta var ekki rétt en ég sagði ekki neitt. Ég var lítil og hafði ekki vit á því að þetta væri óeðli­legt. Síðan fór þetta að vinda upp á sig … Eitt kvöldið tók hann það skref að koma inn í her­bergið mitt og snerta mig …Þegar ég bað hann um að hætta sagði hann að þetta væri bara leynd­ar­málið okkar,“ sagði Kiana í við­tal­inu.

Kiana Sif. Mynd / Heiðdís Guðbjörg Gunn­ars­dótt­irþ

Málin þrjú voru hins vegar látin niður falla vegna ónægra sann­anna. Halldór, móðir Helgu Elínar hefur mikið út á rann­sókn máls­ins að setja og skrif­aði hún bréf til fyrr­nefndrar nefndar um eft­ir­lit með lög­reglu þar sem hún óskaði eftir því að máls­með­ferðin verði skoðuð og gripið til við­eig­andi ráð­staf­ana.

„Málin voru ekki rann­sökuð saman sem hefði styrkt stað­fastan fram­burð stúlkn­anna og málin í heild. Fram kemur í rann­sókn­ar­gögnum að mað­ur­inn saki stelp­urnar um sam­særi gegn sér. Ekkert var gert til að hrekja slíkt. Aðra stúlk­una þekki ég ekki en hin hafði verið vin­kona Helgu. Með því að skoða Facebook-sam­skipti þeirra var aug­ljóst að þær höfðu ekki verið í neinum sam­skiptum fyrr en eftir að málið kom upp. Við rann­sókn máls­ins var mikið lagt upp úr nákvæmri tíma­setn­ingu sum­ar­bú­staða­ferð­ar­innar og ég lagði fram síma­gögn sem sýndu sím­töl milli mín og síma þeirra fyrir umrædda helgi. Ég mundi að Helga hafði hringt úr síma for­eldra skóla­systur sinnar þegar hún bað um að fá að fara í ferð­ina. Sam­skipti voru ekki við þau hvorki fyrr né síðar og því var tíma­setn­ingin nokkuð nákvæm. Mér fannst nákvæm tíma­setn­ing ekki skipta öllu máli, heldur að þessi atburður gerð­ist. Sak­born­ingur lagði hins vegar fram ósann­reynt vinnu­vott­orð sem nið­ur­fell­ing máls­ins byggði meðal ann­ars á. Excel-skjal sem sýndi að hann hefði verið í vinn­unni á þessum tíma. Excel-skjal sem hann sendir lög­fræð­ingi sínum sem áframsendir það. Ég meina, í hvaða ban­ana­lýð­veldi heldur slíkt skjal fyrir dómi? Hver sem er getur farið inn í vinnu­stundir og breytt stimp­il­klukk­unni eftir á. Ekkert annað var skoðað til að sjá hvort lög­reglu­mað­ur­inn hefði í raun verið í vinn­unni umrædda helgi,“ sagði Halldóra í fyrr­nefndu við­tali við Mannlíf.

Segir klámefni hafa verið haft fyrir börnunum

Þá sagði hún einnig að sak­born­ing­ur­inn hafi farið með á vett­vang þegar sum­ar­bú­stað­ur­inn var rann­sak­aður. Vinahjón sak­born­ings voru með í ferð í umræddri sum­ar­bú­staða­ferð, en vinur manns­ins er hátt­settur emb­ætt­is­maður hjá hinu opin­bera. Skýrslu­taka yfir þeim fór fram á skrif­stofu emb­ætt­is­manns­ins, að sögn Halldóru, og báru þau hjónin við minnis­leysi vegna drykku. Nið­ur­fell­ing máls­ins var meðal ann­ars byggð á þeim vitn­is­burði að sögn Halldóru, en við rann­sókn máls­ins kom fram að klám­efni hafði verið haft fyrir börn­unum í ferð­innni. Þá gagn­rýnir Halldóra að skýrslur úr Barna­húsi hafi ekki haft meira vægi.

„Fyrir liggja skýrslur frá sér­fræð­ingum í Barna­húsi, sál­fræð­ingum sem sér­hæfa sig í áföllum barna og læknum sem stað­festa að Helga varð fyrir miklum skaða í þess­ari sum­ar­bú­staða­ferð. Mér finnst óskilj­an­legt að þessar skýrslur hafi ekk­ert vægi haft þegar tekin var ákvörðum um fram­hald máls­ins. Rétt­ar­kerfið er hand­ó­nýtt þegar kemur að börnum. Það stíga enda­laust upp tröll sem segja að allir séu sak­lausir uns sekt er sönnuð. Þá spyr ég: Hvað þarf til að sanna sekt? Ég er með barn sem búið er að segja frá í Barna­húsi. Hún er trú­verðug, hún hefur öll ein­kenni þess að hafa orðið fyrir broti. Hvað þarf meira?“

„Vildi ekkert fyrir okkur gera“

Þegar að málið kom upp sendi Halldóra póst á þáver­andi lög­reglu­stjóra á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, Stefán Eiríks­son. Hann vís­aði erind­ingu á Harald Johann­es­sen, rík­is­lög­reglu­stjóra. Í sam­tali við Mannlíf lýsti Halldóra þeirri til­finn­ingu sinni að rík­is­lög­reglu­stjóri hafi brugð­ist henni og dóttur hennar, þar sem hann vildi „ekk­ert fyrir okkur gera.“

Haraldur Johann­es­sen hefur ekki viljað svara spurn­ingum Mannlífs per­sónu­lega um þetta mál. Samkvæmt yfir­lýs­ingu frá emb­ætti rík­is­lög­reglu­stjóra fór emb­ættið þess á leit við rík­is­sak­sókn­ara að fá afhent rann­sókn­ar­gögn máls­ins til þess að unnt væri að taka ákvörðun um hvort leysa skyldi lög­reglu­mann­inn frá emb­ætti um stund­ar­sakir eða að fullu. Rík­is­sak­sókn­ari hafn­aði erindi Embættis rík­is­lög­reglu­stjóra með vísan til heim­ild­ar­skorts í lögum. Sigríður J. Frið­jóns­dóttir rík­is­sak­sókn­ari sagði hins vegar í sam­tali við Stundina að rík­is­sak­sókn­ari hafi sent „rík­is­lög­reglu­stjóra allar upp­lýs­ingar um málið vegna fyr­ir­hug­aðrar ákvarð­ana­töku hans um það hvort veita ætti við­kom­andi lög­reglu­manni lausn frá störfum.“

Stefán Eiríks­son starf­aði sem lög­reglu­stjóri höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins meðan á rann­sókn máls­ins stóð. Stefán sagð­ist ekki hafa fylgst með umfjöllun um málið þegar Mannlíf hafði sam­band við hann og neit­aði að tjá sig um það við blaða­menn Mannlífs.

Síðan þá hefur málið verið til skoð­unar hjá nefnd­inni sem hefur loks, eftir miklar tafir, kom­ist að fyrr­greindri nið­ur­stöðu.

Í kvöld­fréttum RÚV rétt í þessu sagði Halldóra, móður Helgu Elínar, að hún vilji að Haraldur Johann­es­sen, rík­is­lög­reglu­stjóri segi af sér vegna máls­ins.

Þess má geta að lög­reglu­mað­ur­inn, sem var kærður fyrir brot gegn fyrr­nefndum þremur stúlkum og sýkn­aður, starfar enn innan lög­regl­unnar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ