Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Veitingahús laga sig að breyttu landslagi – ekkert bendir til þess að kórónaveiran berist með matvælum

Mikil áskorun býður veit­inga­staða vegna útbreiðslu COVID-19 og sam­komu­banns­ins. Starfs­fólk þeirra gerir þó allt sem í þeirra valdi stendur til að aðlag­ast aðstæðum og dæmi eru um að veit­inga­staðir bjóði nú fólki að sækja mat eða að fá hann heimsend­ann.

Veitingahús laga sig að breyttu landslagi – ekkert bendir til þess að kórónaveiran berist með matvælum

„Heilsa og öryggi starfs­manna og við­skipta­vina okkar er í fyr­ir­rúmi og við tökum þessu ástandi að sjálf­sögðu alvar­lega,“ segir Krist­jana Þura Berg­þórs­dóttir, eig­andi og veit­inga­stjóri VON mat­hús og bar.

„Á sama tíma erum við líka að læra nýja hluti á hverjum degi. Þessi óvissa er erfið á rekstr­ar­legum grund­velli, eins og hjá mörgum öðrum fyr­ir­tækjum í land­inu. Sér­stak­lega þar sem við vitum ekki hversu lengi þetta ástand varir. Við erum enn þá með opið og ætlum að reyna að halda það út eins og við getum, á meðan það er nóg að gera, eða þar til annað kemur í ljós. Við erum lít­ill vinnu­staður og má því mjög lítið út af bregða. Við erum auð­vitað öll að upp­lifa ýmis­konar til­finn­ingar og óvissu þessa dag­ana.“

Þakklát þeim sem halda áfram að koma

Krist­jana segir að þau fylgi eins og aðrir ítar­lega leið­bein­ingum yfir­valda varð­andi COVID-19 og ákveðnar breyt­ingar hafi tekið gildi hjá Von mat­húsi þriðju­dag­inn 17. mars.

„Sótt­hreinsi­stöðvar voru nú þegar til staðar, en einnig hafa öll þrif verið enn ítar­legri. Sótt­hreinsun hurð­ar­húna, afgreiðslu- og posa­kerfis og ann­arra snertiflata þrifin og sótt­hreinsuð með enn reglu­legra milli­bili eða á milli kúnna. Mat­seðlar hafa verið plast­aðir og eru þrifnir eftir hverja notkun og við bjóðum við­skipta­vinum einnig að skoða mat- og drykkj­ar­seðil á vef­síð­unni. Enda flest allir með síma á sér. Svo hvetjum við fólk til þess að þvo sér eða spritta. Við erum búin að fækka sætum og auka bil á milli borða, svo lengra sé á milli við­skipta­vina. Það er líka alltaf hægt að taka mat með heim, þar sem við tökum nú tak­mark­aðan fjölda í sæti,“ útskýrir Krist­jana.

„Við erum öll í þessu saman og tökum einn dag í einu.“

„Við erum mjög þakk­lát okkar kúnnum og fastakúnnum sem hafa haldið áfram að koma, þrátt fyrir ástandið í heim­inum. Það er enn þá mik­il­vægt að leyfa sér að lifa og njóta. Við erum öll í þessu saman og tökum einn dag í einu. Við úti­lokum þó ekki að breyt­ingar verði gerðar á opn­un­ar­tíma,“ segir Krist­jana.

Krist­jana Þura Berg­þórs­dóttir, eig­andi og veit­inga­stjóri VON mat­hús og bar, og Einar Hjalta­son, yfir­mat­reiðslu­maður og eig­andi. Mynd/Heiðdís Guðbjörg Gunn­ars­dóttir

Tóku brönsinn út

Á Mími restaur­ant á Hótel Sögu er búið að fækka úr 80 manna sal niður í 50 manna sal og tveggja metra bil er á milli borða.

„Við erum nátt­úr­lega alltaf með áherslu á hrein­læti en það hefur auð­vitað verið brýnt í ljósi aðstæðna. Það er sótt­hreinsir inni í eld­húsum og frammi í sal, kokkar og þjónar eru með hanska við alla fram­leiðslu og þegar mat­ur­inn er bor­inn fram til gesta. Við höfum tekið út Brunch-hlað­borð og bjóðum í stað­inn upp á hádeg­is­seðil. Öllu starfs­fólki okkar sem er í áhættu­hópi er ráð­lagt að halda sig heima,“ segir Snædís Jóns­dóttir, mat­reiðslu­maður og vakt­stjóri á Mími restaur­ant Hótel Sögu.

Snædís Jóns­dóttir, mat­reiðslu­maður og vakt­stjóri á Mími restaur­ant Hótel Sögu. Mynd/Hákon Davíð Björns­son

Fólk í einangrun á ekki að búa til mat fyrir aðra

Margir velta örugg­lega fyrir sér hvort smit geti borist með mat­vælum en á vef land­læknis segir meðal ann­ars að ekk­ert bendi til þess að kór­óna­veiran ber­ist með mat­vælum skv. áliti mat­væla­ör­ygg­is­stofn­unar Evrópu, COVID-19 sé ekki mat­ar­bor­inn sjúk­dómur en þeir sem eru í ein­angrun ættu þó ekki að útbúa mat fyrir aðra. Þar segir jafn­framt: „Veiran þrífst ekki í ávöxtum og græn­meti, né öðrum mat­vælum. Hins vegar gæti hún setið á yfir­borði eftir úða­smit (hnerra eða hósta frá sýktum ein­stak­lingi) en ekki er vitað hversu lengi. Mjög ólík­legt er þó að hún nái að ber­ast milli landa með ávöxtum og græn­meti. Mat­væla­stofnun hvetur neyt­endur, nú sem áður, til að skola vel ávexti og græn­meti fyrir neyslu.“ Enn­fremur er tekið fram á vef­síðu land­læknis að ólík­legt sé að menn smit­ist af COVID-19 við snert­ingu mat­væla­um­búða. Hand­þvottur eftir versl­un­ar­ferð sé góð venja og ætíð skuli fylgja leið­bein­ingum um hand­þvott og smit­varnir.

Á vef Mat­væla­stofn­unar, mast.is, segir að fyr­ir­tæki eigi að fylgja hefð­bundnum þrifa­á­ætl­unum í eld­húsum og mat­væla­vinnslum. Algeng sótt­hreinsi­efni, þar með talið þau sem inni­halda alkó­hól, valdi því að kór­óna­veiran verður óvirk. „Kór­óna­veiran smit­ast ekki með mat­vælum en vegna hættu á smiti milli manna getur verið nauð­syn­legt að þrífa og sótt­hreinsa sér­stak­lega yfir­borð og áhöld sem margir snerta með stuttu milli­bili. Fyr­ir­tæki ættu að fara yfir verk­lag við þrif og/eða þrífa oftar en venju­lega búnað sem margir nota.“

Friðgeir Ingi Eiríks­son, annar eig­andi Eiriks­son Brass­erie.

Veitingastaðir laga sig að breytt landslagi

Fjöl­margir veit­inga­staðir sem alla jafna senda ekki mat heim eða gefa sig ekki út fyrir að afgreiða mat út úr húsi hafa í ljósi ástands­ins breytt út af van­anum. Veit­inga­stað­ur­inn Eiriks­son Brass­erie býður til dæmis upp á að fólk panti mat­inn heim og þá annað hvort hoppi starfs­fólkið út í bíl með mat­inn eða heimsendi hann. Það er frí heim­send­ing en 30% afsláttur ef fólk sækir og Friðgeir Ingi segir að við­tök­urnar við þessu fyr­ir­komu­lagi hafi slegið öll met.

Reykja­vík Meat býður nú upp á Take away á 15% kynn­ing­araf­slætti. „Núna á þessum sér­stökum tímum höfum við ákveðið að byrja með take away-þjón­ustu. Þar sem sumir vilja ekki sitja inn á veit­inga­stöðum þá hafið þið mögu­leik­ann að taka með ykkur heim,“ segir á Facebook-síðu Reykja­vík Meat.

Á Facebook-síðu Sumac segir að eins og allir lands­menn hafi Sumac tekið skila­boð yfir­valda mjög alvar­lega. „Ekki bara þessi sem setja okkur eðli­legar skorður í ljósi stöð­unnar heldur líka þau frá yfir­lög­reglu­þjón­inum Víði um að „við skulum ekki hætta að vera til“.

Mynd / Aldís Páls­dóttir

Starfs­fólkið hefur því lengt bil á milli borða, gert hand­spritt aðgengi­legt og komið upp verk­lagi það þar sem allir almennir snertifletir á staðnum líkt og hand­rið, hurð­ar­húnar, fata­hengi, greiðslu­posar og slíkt eru þrifin reglu­lega með sótt­hreinsi­efni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Mannlífið

Myndir
Mannlífið

Novasvellið rís á Ing­ólfs­torgi

Jólin nálgast óðfluga
Mannlífið

Opn­un­ar­veisla Bryggju­húss­ins að hefj­ast

Mannlífið

Mæður sem taka sjálfur eiga dætur sem vilja frekar fegr­un­ar­að­gerðir

Mannlífið

Hvers vegna eru börn oft að segja þessa setn­ingu?

Mannlífið

Bæj­ar­há­tíðin Í tún­inu heima stendur með miklum blóma í Mos­fellsbæ

Mannlífið

Bangsa­fé­lagið heldur upp á afmæli með stór­há­tíð og nýrri keppni