Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

„Mig langar ekki að deyja en ég verð að gera það með reisn“

„Mig langar ekki að deyja en ég verð að gera það með reisn“
Alma Geirdal

Alma Geirdal greind­ist með brjóstakrabba­mein aðeins 38 ára gömul. Eftir með­ferð var hún krabba­meins­laus í tæp tvo ár en þá greind­ist hún aftur og í þetta sinn er engin lækn­ing. Alma hefur fengið upp­gef­inn tím­ann sem hún á eftir, hún er í líkn­andi lyfja­með­ferð á heim­ili sínu og seg­ist kveðja sátt þegar kallið kemur. Í við­tali við Mannlíf ræðir hún bar­átt­una, for­dómana sem hún verður fyrir í heil­brigð­is­kerf­inu og krabba­meinslyfið sem olli miklum kvölum og auka­verk­unum, en gerði henni ekk­ert gagn.

„Viltu kaffi?“ spyr Alma þegar við setj­umst við eld­hús­borðið á nota­legu heim­ili hennar í Hafn­ar­firði. Heim­il­is­hund­ur­inn leggst á fætur blaða­manns, sáttur við gest­inn sem er kom­inn í heim­sókn og spjallið hefst á því að spyrja hvernig Ölmu líði, akkúrat hér og nú.

„Mér líður ekk­ert rosa­lega vel í dag. Almennt er ég ótrú­lega brött and­lega, ég hef ein­hvern veg­inn náð að vera mjög jákvæð í gegnum þetta þó að ég sé raunsæ,“ segir Alma. „En lík­am­lega líður mér ekki vel, ég fór í aðgerð í des­em­ber og er að jafna mig eftir hana, þá löm­uð­ust smá­girnin í mér. Og í morgun fékk ég þær fréttir að meinið hafi stækkað. Í dag er krabba­meinið búið að dreifa sér milli vöðva á svæð­inu þar sem vinstra brjóstið var, tvö mein eru í hægra lunga og nokkur í hægri hol­hönd. Þetta er fjölgun á æxlum á sex vikum, þannig að and­lega hliðin er ekki mjög sterk í dag. Lík­am­lega líður mér aldrei vel, eftir að þetta ferli hófst, þessi önnur atrenna,“ segir Alma af yfir­vegun og bætir við að hún eigi aldrei verkja­lausan dag, og í raun meti hún verk­ina á mæli­kvarð­anum einn upp í tíu.

„Ég er á sterkjum lyfjum sem hjálpa gegn sárs­auka, en ég á aldrei verkja­lausa mín­útu. Ég er aldrei undir fimm, og yfir dag­inn er ég svona milli sex og átta,“ segir hún og vísar þar í fyrr­nefndan mæli­kvarða. „Svo bætt­ist þessi aðgerð við, ég er með stóran skurð eftir hana, 18 spor bara á mag­anum. Ég hef verið með æxli í bring­unni á milli brjóst­vöðva, það hefur verið að stríða mér og meiðir mig mikið núna.“

Sjá einnig: Alma var látin taka gagns­laust lyf í 18 mán­uði

Krabbameinið einfaldlega óheppni

Þegar Alma talar um meinið sem hún býr með, krabba­meinið sem tekur sér sífellt meira pláss í lík­ama hennar, talar hún iðu­lega um fyrri og seinni atrennu. Sú fyrri hófst í lok árs 2017 þegar Alma greind­ist með krabba­mein í vinstra brjósti.

„Það byrj­aði þannig að mig fór að verkja svo rosa­lega í brjóstið, slíkt er mjög sjald­gæft, en ég humm­aði það af mér í mánuð að fara til læknis. Hann fann ekk­ert, en pant­aði tíma í mynda­töku hjá Krabba­meins­fé­lag­inu. Ég frestaði tím­anum um mánuð, það liðu tveir og hálfur mán­uður frá fyrsta verk og þar til ég greind­ist í októ­ber 2017 og þá var æxlið orðið sex senti­metra stórt.“

„Mér fannst ég öðl­ast frelsi, ég var mjög ung þegar ég greind­ist, mjög ung þegar ég missti brjóstið, en þarna tók við algjört frelsi.“

Hjá Ölmu er engin ætt­ar­saga um brjóstakrabba­mein og eng­inn ætt­ingi hafði greinst með krabba­mein, fyrir utan afa hennar sem greind­ist háaldr­aður með blöðru­háls­kirtil­skrabba­mein. Hún hafði heldur ekki farið í neinar skoð­anir enda konur fyrst boð­aðar í brjósta­mynda­töku þegar þær verða fer­tugar.

„Ég fékk hnút í mjólk­ur­veg­inn fyrir 20 árum þegar ég var með dóttur mína á brjósti og það er það eina sem hvarflar að mér að geti verið ein­hver skýr­ing,“ segir Alma. „Læknar hafa ekk­ert fundið sem útskýrir hvernig krabba­meinið kom til og segja það bara óheppni.“

Alma fór í skurð­að­gerð mán­uði eftir grein­ingu þar sem vinstra brjóstið var fjar­lægt. Síðan tók við lyfja­með­ferð sem hún varð mjög veik af, og end­ur­hæf­ing. „Það tók mig 6-8 vikur að jafna mig, ég fór í 16 skipta lyfja­með­ferð sem gekk herfi­lega og ég var mikið veik. En síðan fór ég af fullum krafti í end­ur­hæf­ingu og á fjölda upp­byggj­andi nám­skeiða hjá Ljósinu, Krafti og Krabba­meins­fé­lag­inu, til að byggja upp sál­ina og lík­amann, svo ég gæti mætt aftur út í lífið og á vinnu­mark­að­inn sem sterk­ari ein­stak­lingur.“

Að lokum fékk Alma þann úrskurð að hún væri laus við krabba­meinið. „Mér fannst ég öðl­ast frelsi, ég var mjög ung þegar ég greind­ist, mjög ung þegar ég missti brjóstið, en þarna tók við algjört frelsi.“

Lestu við­talið í heild í nýjasta tölu­blaði Mannlífs.

Alma skrifar um bar­áttu sína í Facebook-hópnum: Alman vs. cancer. Þeir sem vilja styðja Ölmu geta lagt inn á reikn­ing : 0130-05-064210, kennitala : 060979-3759.

Sjá einnig: „Börnin dæla í mig jákvæðum styrk“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Tækið er sagt geta borið fjóra fullorðna einstaklinga
Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Svipuð atvik hafa komið upp við heimili Ragnars frá árinu 2023
Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti