Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

„Börnin dæla í mig jákvæðum styrk“

„Börnin dæla í mig jákvæðum styrk“
Alma Geirdal Mynd / Hákon Davíð Björns­son

Alma Geirdal greind­ist með brjóstakrabba­mein aðeins 38 ára gömul. Eftir með­ferð var hún krabba­meins­laus í tæp tvo ár en þá greind­ist hún aftur og í þetta sinn er engin lækn­ing. Alma hefur fengið upp­gef­inn tím­ann sem hún á eftir, hún er í líkn­andi lyfja­með­ferð á heim­ili sínu og seg­ist kveðja sátt þegar kallið kemur. Í við­tali við Mannlíf ræðir hún bar­átt­una, for­dómana sem hún verður fyrir í heil­brigð­is­kerf­inu og krabba­meinslyfið sem olli miklum kvölum og auka­verk­unum, en gerði henni ekk­ert gagn.

Alma á þrjú börn sem búa nú öll hjá feðrum sínum, dóttur sem er tví­tug og syni sem eru 16 og 11 ára. Einnig á hún tvö stjúp­börn, dóttur sem er 15 ára og son sem er 10 ára, sem unnust­inn Guð­mundur Sig­varðs­son á. Börnin vita öll af veik­indum Ölmu.

„Þau eru bara úr stáli, þetta eru sterk­ustu ein­stak­lingar sem ég þekki og þau fara í gegnum þetta á ein­hverju sem ég veit ekki hvað er. Þau eru mömmu sinni mikið inn­an­handar og dæla í mig jákvæðum styrk,“ segir Alma og bætir við að hún hafi ráð­fært sig við sál­fræð­ing um hvað og hversu mikið börnin ættu að fá að vita um stöð­una. „Mér var ráð­lagt að leyfa börn­unum að vera þátt­tak­endur og ekki leyna þau neinu, þau hlusta og þau vita. En samt að miða við þeirra aldur og þroska. Yngstu tveir syn­irnir þurfa til dæmis ekki að vita allt. En börnin sjá mig veika, sjá mig fara á spít­ala og verða að vita af hverju það er. Ég gæti ekki verið án barn­anna, og þau eru mjög háð mér núna þegar ég er svona veik, ég finn að þau vilja ekki missa af tíma með mér.“

„Það er hryll­ingur að grein­ast svona ung, að eiga allt lífið fram undan og allt í einu að eiga það ekki fram undan.“

Aðspurð hvort hún eigi fleiri að í veik­indum sínum svarar Alma að hún sé rosa­lega heppin með fjöl­skyldu sína, systk­ini sín fjögur og for­eldra, og tengda­fjöl­skyldu, og liðið hennar, eins og hún kallar þau, séu henni mjög sterkt stuðn­ings­net. „Þau eru rosa­lega dug­leg að halda utan um mig, umhyggjan er svo mikil og ég þarf á henni að halda. Það er líka stór hópur af mökum systk­ina minna og börnum þeirra, og ég er heppin, ég er rosa­lega heppin kona. Mér finnst hrika­legt að hugsa til þeirra sem hafa ekk­ert bak­land.“

Sjá einnig: „Mig langar ekki að deyja en ég verð að gera það með reisn“

„Dauðinn má ekki vera feimnismál“

„Það er hryll­ingur að grein­ast svona ung, að eiga allt lífið fram undan og allt í einu að eiga það ekki fram undan. Það er bara hryll­ingur þegar ég á ung börn og stjúp­börn,“ segir Alma aðspurð um það hvernig sé að vera ung kona í blóma lífs­ins og grein­ast með krabba­mein.

„Ég varð svo fegin frels­inu og svo von­góð þegar ég fékk þær fréttir að ég væri krabba­meins­frí eftir fyrra skiptið. Ég ætl­aði ein­hvern veg­inn að gleypa lífið og ég gerði það. Ég náði því í fyrra að ferð­ast aðeins með börnin mín og er rosa­lega glöð yfir því. En það var eins og legð­ist svört þoka yfir það allt þegar ég greind­ist aftur. Og tím­inn bara stöðvast þegar þú færð svona fréttir. Þess vegna langar mann að gera allt og upp­lifa allt og ein­hvern veg­inn lifa líf­inu rosa­lega lif­andi, en svo er fót­unum kippt undan manni og ég hef hrein­lega ekki ork­una.“

„Ég er komin með tím­ann, fjögur ár, aðeins skemur eða aðeins lengur, og það má segja frá því.“

Alma bætir við að í fyrri atrennu hafi hún verið fasta­gestur hjá bæði Krafti og Ljósinu, en núna sé hún ein­fald­lega of veik og skorti orku til að leita sér aðstoðar og félags­skapar þar. „Það er ein­hvern veg­inn þannig að þegar þú grein­ist með krabba­mein, þá kynnistu fólki með krabba­mein. Eftir að ég greind­ist hef ég misst vini úr krabba­meini, maður horfir á eftir rosa­lega mörgum og mér finnst vera mikil aukn­ing í því að ungt fólk grein­ist, sem er hryll­ingur.“

Læknar hafa sagt Ölmu hvað hún eigi langt eftir ólifað og hún hagg­ast ekki þegar hún segir blaða­manni frá því. „Ég vil ekki að það sé feimni við dauð­ann í þessu við­tali, bara alls ekki, ég fer sátt. Ég er komin með tím­ann, fjögur ár, aðeins skemur eða aðeins lengur, og það má segja frá því,“ segir Alma og bætir við að almennt þegar brjóstakrabba­mein hefur dreift sér á þann hátt sem það hefur gert hjá henni séu fjögur ár tím­inn sem gef­inn er.

Sjá einnig: Alma var látin taka gagns­laust lyf í 18 mán­uði

„Ég ein­blíni ekki á þessa dag­setn­ingu en ég er rosa­lega raunsæ og mjög með­vituð um stöð­una, en ég hef til­einkað mér að lifa í núinu og lifa eftir núvit­und og tel mig gera það vel. Ég hug­leiði og er svona að passa upp á sál­ina og upp á mig,“ segir Alma og segir sitt mottó að gera það sem henni finnst gott og gaman, borða það sem henni finnst gott og njóta með börn­unum, fjöl­skyld­unni og unnust­anum Gumma.

„Lífið hefur gefið mér mikið, ég hef upp­lifað margt, ég á ynd­is­leg börn sem ég hef komið á legg, mjög sterka barns­feður sem ég veit að munu hugsa vel um börnin mín, fjöl­skylda mín mun umvefja þau ást og ég hef ekki áhyggjur. Ég er nátt­úr­lega skít­hrædd við að deyja, mig langar ekki að deyja en ég verð að gera það með reisn og ég ætla að gera það.“

Lestu við­talið í heild sinni í nýjasta tölu­blaði Mannlíf.

Alma skrifar um bar­áttu sína í Facebook-hópnum: Alman vs. cancer. Þeir sem vilja styðja Ölmu geta lagt inn á reikn­ing : 0130-05-064210, kennitala : 060979-3759.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi