Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Alma var látin taka gagnslaust lyf í 18 mánuði

Alma var látin taka gagnslaust lyf í 18 mánuði
Alma Geirdal

Alma Geirdal greind­ist með brjóstakrabba­mein aðeins 38 ára gömul. Eftir með­ferð var hún krabba­meins­laus í tæp tvo ár en þá greind­ist hún aftur og í þetta sinn er engin lækn­ing. Alma hefur fengið upp­gef­inn tím­ann sem hún á eftir, hún er í líkn­andi lyfja­með­ferð á heim­ili sínu og seg­ist kveðja sátt þegar kallið kemur. Í við­tali við Mannlíf ræðir hún bar­átt­una, for­dómana sem hún verður fyrir í heil­brigð­is­kerf­inu og krabba­meinslyfið sem olli miklum kvölum og auka­verk­unum, en gerði henni ekk­ert gagn.

Eftir að Alma lauk krabba­meins­með­ferð með­ferð í fyrsta sinn var hún sett á lyfið Tamox­ifen, en lyfið á að draga um 30-50 pró­sent úr líkum á því að krabba­mein taki sig upp aftur. Það var henni því mikið áfall að kom­ast að því að lyf sem hún hafði tekið í eitt og hálft ár gerði ekk­ert gagn.

Sjá einnig: „Mig langar ekki að deyja en ég verð að gera það með reisn“

„Þegar ég greind­ist fyrst var ég greind með horm­óna­næmt krabba­mein, með 4 pró­sent horm­óna­næmi og ég var sett á Tamox­ifen. Lækn­ir­inn minn gaf mér þetta lyf örugg­lega í þeirri fullu trú að það væri rétt,“ segir Alma. „Og ég bara trúði henni, þar til ég komst að því einu og hálfu ári seinna í við­tali hjá nýja krabba­meins­lækn­inum mínum að krabba­meinið hafi ekki verið horm­óna­næmt og lyfið hafi því ekk­ert gert fyrir mig, ég hefði eins getað drukkið vatn.“

„Ég var bara brjál­æð­is­lega reið og öll fjöl­skylda mín líka.“

Lyfið hafði miklar og alvar­legar auka­verk­anir. „Það getur valdið önd­un­ar­erf­ið­leikum sem ég fékk nokkrum sinnum, hjart­slátt­ar­trufl­unum, fóta­ó­eirð, hár­missi, ófrjó­semi, sem það olli í mínu til­viki því ég fór á breyt­inga­skeiðið með alls konar erf­iðum auka­verk­unum.“

Hvernig leið þér að fá þessar upp­lýs­ingar eftir að hafa gengið í gegnum þessar miklu auka­verk­anir? „Ég var bara brjál­æð­is­lega reið, og öll fjöl­skylda mín líka. Við erum búin að fá sjúkra­skýrsl­una mína í hendur og erum að skoða hver næstu skref verða, hvort sem ég geri eitt­hvað eða fjöl­skylda mín. Ég vil bara kanna þetta betur og rétt minn, ég þarf að gera þetta fyrir mig og aðra sem gætu jafn­vel lent í sömu stöðu, en í dag veit ég ekki um aðra sem hafa lent í þessu. Við höfum ekki til­kynnt málið til Land­lækn­is­emb­ætt­is­ins en við munum gera það.“

Sjá einnig: „Börnin dæla í mig jákvæðum styrk“

„Þetta er endastöðin“

Þegar Alma greind­ist í fyrra skiptið var hún með fram­tíð­ar­á­ætl­anir, svona eins og flestir sem eiga lífið fram undan. „Ég útskrif­að­ist sem ljós­mynd­ari árið 2011, vann eitt­hvað aðeins við það og gaf út ljós­mynda­bók sem var loka­verk­efni mitt í ljós­mynda­skól­anum hjá Sissu. Ég var nýflutt til Reykja­víkur eftir að hafa búið í Ólafsvík í þrjú ár. Ég var að vinna í edrú­mennsku minni og starf­aði á sam­býli fyrir ein­hverfa sem mér fannst mjög gaman. Hafði sett mér það mark­mið að í sept­em­ber 2018 ætl­aði ég aftur í þá vinnu, en það átti allt eftir að breyt­ast.“

Í byrjun júlí árið 2018 greind­ist Alma aftur með krabba­mein, hún fann hnút í bring­unni og þann 22. júlí fór hún í aðgerð þar sem hann var fjar­lægður. „Skýr­ingin var bara sú að æxlið hefði dreift sér, það var ekki í skurð­svæð­inu frá fyrri aðgerð. Oft ger­ist það að skurð­brún­irnar sýkj­ast, en svo var ekki hjá mér, það bara kom fjög­urra senti­metra hnútur,“ segir Alma sem fékk sýk­ingu eftir aðgerð­ina og fór í 15 skipta geisla­með­ferð. „Með­ferðin gekk mjög hratt og ég fékk sýk­ingu aftur, þetta er mjög þrá­lát sýk­ing og rosa­lega erfitt að vinna á henni. Svo mán­uði seinna fund­ust fleiri mein og síðan bara aftur og aftur. Það var tekin sú ákvörðun að gera ekk­ert meira, ég er á lyfjum heima, sem er svokölluð líkn­andi með­ferð, ég fór ekki í geisla og ég var ekki skorin aftur og það verður ekki skorið meira. Þetta er orðið fjórða stigs mein, þetta er enda­stöðin.“

Lestu við­talið í heild í nýjasta tölu­blaði Mannlífs.

Alma skrifar um bar­áttu sína í Facebook-hópnum: Alman vs. cancer. Þeir sem vilja styðja Ölmu geta lagt inn á reikn­ing : 0130-05-064210, kennitala : 060979-3759.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina