Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

„Það hafa fundist smitaðir einstaklingar hérna allt um kring“

„Það hafa fundist smitaðir einstaklingar hérna allt um kring“
Guðlaug Böðv­ars­dóttir.

Guðlaug Böðv­ars­dóttir býr ásamt ítölskum manni sínum og tveimur ungum sonum í smá­bænum Castelluchio í Lombar­diu-hér­að­inu á Ítalíu þar sem gripið hefur verið til mik­illa aðgerða til að reyna að hefta útbreiðslu kór­óna­veirunnar. Hún segir bæj­ar­búa skelf­ingu lostna og að margir fari vart út úr húsi vegna ótta við að smit­ast.

„Ég veit ekki hvernig mér líður,“ segir Guðlaug spurð hvernig líðan fylgi því að vera á þessu svæði núna. „Þetta er allt eitt­hvað svo skrýtið. Það hefur ekki greinst neitt smit hér í bænum enn þá, en það er búið að loka skólum og leik­skólum, banna messu­hald í kirkjum og fella niður alls kyns sam­komur. Þeir lok­uðu til dæmis heilsu­gæsl­unni strax á mánu­dag­inn og báðu fólk að hringja eða fara beint á neyð­ar­mót­tök­una ef eitt­hvað væri að. Þeir réðu ekki lengur við álagið. Fólk verður nátt­úr­lega skít­hrætt um leið og það finnur fyrir ein­hverjum ein­kennum og flýtir sér til læknis um leið.“
Í Castelluchio búa um fimm þús­und og fimm hund­ruð manns en nálægðin við aðra smá­bæi er mikil og Guðlaug, sem er heima­vinn­andi hús­móðir, segir svæðið vera nokkurn veg­inn í miðju þess svæðis þar sem smit hafa fund­ist. „Það hafa fund­ist smit­aðir ein­stak­lingar hérna allt um kring,“ segir hún. „Svo við bara kross­leggjum fingur og vonum það besta.“

„Fólk verður nátt­úr­lega skít­hrætt um leið og það finnur fyrir ein­hverjum ein­kennum og flýtir sér til læknis um leið.“

Afgreiðslufólk með grímur og sótthreinsilög

Spurð hvort búið sé að loka versl­unum og öðrum vinnu­stöðum í bænum segir Guðlaug að það sé búið að loka nokkrum stöðum. „Í dag var til dæmis bar sem Kín­verjar reka hér lokað,“ segir hún. „Það voru allir hættir að vilja fara þangað. Nokkrum búðum hefur líka verið lokað og götu­mark­að­ur­inn sem er alltaf hér á mið­viku­dögum var nán­ast tómur í dag.“
Guðlaug segir það gegn­um­gang­andi í bænum að fólk haldi sig heima hjá sér ef það þurfi ekki nauð­syn­lega að reka ein­hver erindi. Versl­un­ar­mið­stöðvar séu nán­ast tómar og annað eftir því. Ekki sé þó algengt að fólk sé með grímur fyrir and­lit­inu, nema starfs­fólk í opin­berum stofn­unum og apó­tekum. „Við þurftum að ná í nafn­skír­teini fyrir yngri son okkar áðan og í þeirri rík­is­stofnun sem sér um það var starfs­fólkið allt með hanska og pass­aði sig að koma ekki of nálægt við­skipta­vin­unum. Fólkið sem vinnur í apó­tek­unum er allt með grímur og sprey­brúsa með sótt­hreins­andi efni sem það sprautar á afgreiðslu­borðið um leið og það hefur afgreitt hvern og einn við­skipta­vin.“

Segir mikið að fyrst búið sé að loka kirkjum

Synir Guð­laugar eru þriggja ára og sjö mán­aða og hún segir þá allt of unga til að gera sér neina grein fyrir ástand­inu. Sá eldri sé þó leiður yfir því að mega ekki fara á leik­skól­ann sinn en honum hefur verið lokað til 2. mars að minnsta kosti. Hún segir eig­in­mann sinn hins vegar finna fyrir því að fólk frá þessu svæði Ítalíu sé ekki vel­komið í öðrum hlutum lands­ins. „Hann er tækni­fræð­ingur sem vinnur fyrir stórt fyr­ir­tæki við að setja upp og gera við vélar í alls kyns fyr­ir­tækjum og mörg fyr­ir­tæki sem eru ekki á þessu svæði eru búin að loka fyrir það að þeir sem komi til að vinna fyrir þá séu frá Norður-Ítalíu.“
En er ótt­inn áþreif­an­legur í dag­legum sam­skiptum fólks? „Já, hann er það. fólk forð­ast hvert annað eins og það getur. Um dag­inn sá ég lítið barn æla á gólfið í stór­mark­aði þar sem fólk var að hamstra nauð­synjar og það bara braust út algjör móð­ur­sýki,“ útskýrir Guðlaug. „Fólk bregst engan veg­inn rök­rétt við í þessum aðstæðum, ótt­inn stjórnar öllu. Það segir kannski mest um ástandið að það sé búið að banna messur,“ bætir hún við. „Þá er sko eitt­hvað mjög mikið að ef Ítalir banna fólki að koma í kirkj­una sína.“

Sjá einnig: Fjöl­skyldu­fríið breytt­ist í martröð: Upp­skurður, RS-vírus, sand­stormur og kór­óna­veira

Nánari umfjöllun í helg­ar­blað­inu Mannlíf.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Hann mætti ekki við þingfestingu málsins
Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

„Þegar ég sat á Alþingi fékk ég yfir mig gríðarlega reiði vegna útlendingamála. Haturspósta, persónulegar árásir og líflátshótanir.“
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ