Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Enn strangt eftirlit á Ítalíu – verðir mæla líkamshita fólks

Enn strangt eftirlit á Ítalíu – verðir mæla líkamshita fólks
Guðlaug Böðv­ars­dóttir.

„Það hefur nú ekki mikið breyst hérna,“ segir Guðlaug Böðv­ars­dóttir, sem býr í bænum Castelluchio í Lombar­diu-hér­að­inu, spurð hvaða áhrif til­slak­anir sem gerðar voru á útgöngu­banni á Ítalíu í gær, 4. maí, hafi haft á líf íbú­anna.

„Fólk má jú fara út núna, en ég veit ekki hversu mikið frelsi það er að fara út með grímu og hanska,“ heldur Guðlaug áfram. „En þetta er samt byrjun, það er búið að opna kirkju­garð­inn og fólk má fara þangað þrjá daga í viku. Með grímu og hanska, auð­vitað og það standa verðir í hlið­inu og mæla hvort fólk sé með hita og ef hann er hærri en 37.5 gráður fær það ekki að fara inn í garð­inn. Sama gildir ef fólk fer með ruslið í Sorpu eða yfir landa­merki á milli hér­aða innan Ítalíu, þar eru verðir í vega­tolla­skýlum sem mæla hita þeirra sem eru í bíl­unum og senda þá sem eru með of mik­inn hita aftur til baka. Og auð­vitað líka þá sem ekki hafa ein­hverja gilda ástæðu til að fara milli hér­aða. Það er nefni­lega enn bannað að fara út fyrir Lombar­diu nema það sé algjör­lega nauð­syn­legt vegna vinnu eða ann­ars.“

Innilokuð heima í sextíu og einn dag

Guðlaug segir að þrátt fyrir að heim­ilt hafi verið í gær að fara út hafi hún ekki nýtt sér þann mögu­leika ennþá. „Ég sé ekki alveg hvernig ég á að fá syni mína, þriggja ára og tíu mán­aða, til að vera með grímur,“ segir hún og hlær. „Það væri þá eitt­hvað krafta­verk ef þær yrðu kyrrar á and­litum þeirra meira en fimm mín­útur.“

Til­slak­an­irnar verða end­ur­metnar eftir sjö daga og þá kemur í ljós hvort fleiri hömlum verði aflétt eða hvort algjört útgöngu­bann verði sett á aftur. „Svo er búið að gefa það út að skólar og leik­skólar muni ekki byrja aftur fyrr en í sept­em­ber, svo eldri sonur minn er ekki að fara aftur á leik­skól­ann sinn fyrr en þá,“ segir Guðlaug. „Eftir til­slak­an­irnar í dag má fólk heim­sækja fjöl­skyldu­með­limi eða kærustur og kærasta en það er allt og sumt, það er enn bannað að heim­sækja vini og kunn­ingja.“

„Ég sé ekki alveg hvernig ég á að fá syni mína, þriggja ára og tíu mán­aða, til að vera með grímur.“

Mannlíf tal­aði fyrst við Guðlaugu í lok febr­úar, á fyrstu dögum útgöngu­banns­ins, og hún hefur sem sagt alfarið verið heima hjá sér síðan, er þetta ekki orðið nán­ast óbæri­legt ástand?

„Já, ég var einmitt að telja dag­ana áðan,“ segir Guðlaug og and­varpar. „Þetta er orð­inn sex­tíu og einn dagur sem við höfum verið heima. Og ég verð að segja að ég er eig­in­lega gjör­sam­lega búin á því, þetta hefur tekið rosa­lega á. Við erum svo heppin að vera með stóran garð og getum verið þar eins og við viljum, en það að geta ekki talað við annað fólk eða farið að kaupa mjólk, það er bara miklu meira en að segja það.“

Í sam­tali við Mannlíf þann 9. mars sagð­ist Guðlaug lifa í von­inni um að geta komið í heim­sókn heim til Íslands í sumar en sú von er nú slokknuð. „Við förum ekki neitt úr landi, það er ljóst,“ segir hún. „Við erum að kross­leggja fingur að við getum kannski farið til Suður-Ítalíu seinna í sumar, til að skipta aðeins um umhverfi, en það er algjör­lega óljóst hvort það verður leyfi­legt. Við vitum í raun­inni ekk­ert hvert fram­haldið verður og sú óvissa er eig­in­lega verst af öllu.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð