Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

„Gísli er Gísli og hann er gangandi kraftaverk“

„Gísli er Gísli og hann er gangandi kraftaverk“
„Lífið er bara mjög gott, hefur bara aldrei verið svona fínt. Kominn tími til og ég get meira að segja talað um hvernig mér líður,“ segir Gísli, í við­tali við Mannlíf.

Gísli Már Helgason var 12 ára gam­all þegar faðir hans lést af slys­förum. Bugaður af sorg full­orðn­að­ist hann hratt, og fimm árum seinna þegar mið­ill sagð­ist vera með skila­boð frá föður hans að handan ákvað ung­ling­ur­inn að treysta því.  Í stað þess að bera skila­boð frá látnum föður segir Gísli mið­il­inn hafa brotið á sér, og það hafi markað líf hans. Mörgum árum síðar reyndi hann sjálfs­víg og í margar vikur var honum vart hugað líf.

Í við­tali við Mannlíf segir Gísli frá föð­ur­miss­inum, dómi yfir ger­anda, sjálfs­vígstil­raun­inni, og sál­ar­friðnum og ást­inni sem hann býr að í dag.

Sjá einnig: Inga birtir slá­andi myndir af Gísla Má berj­ast fyrir lífi sínu: „Ég ákvað greini­lega að besta leiðin væri að deyja“

Inga Sæland Mynd / Hallur Karlsson

„Gísli er Gísli og hann er gangandi kraftaverk“

Inga Sæland, þing­maður og for­maður Flokks fólks­ins, hefur komið fram og fjallað um mál Gísla, eftir að dómur féll yfir Þórhalli. Inga er föð­ur­systir Gísla og sú fyrsta sem hann trúði fyrir fundi þeirra Þórhalls.

„Hann er búinn að skila skömminni og vill koma fram og segja sögu sína,“ sagði Inga í við­tali við útvarps­þátt­inn Bítið á Bylgj­unni mið­viku­dag­inn 10. júní.

Inga rekur kynni og sam­skipti Gísla og Þórhalls, en hún segir hann hafa verið fjöl­skyld­unni mik­ill stuðn­ingur eftir að bróðir hennar, faðir Gísla, lést.

Hún segir aðferðir Þórhalls við að „koma skila­boð­unum áfram“ hafa verið und­ar­legar. „Það þurfti að nudda hann [Gísla] og strjúka voða mikið og opna allar rásir svo að pabbi ætti betra aðgengi að honum,“ segir Inga og bætir við að Þór­hallur hafi sagt frænda hennar að faðir hans stæði fyrir aftan hann. „Það þarf ekk­ert meira frá því að segja að hann hrein­lega fer niður á dreng­inn og fró­aði honum í ofaná­lag. Þetta var það mikil slökun sem hann þurfti á að halda til þess að pabbi hans kæm­ist til hans … Eftir það var þessi litli strákur bara flak. Við vissum nátt­úr­lega ekki neitt, fjöl­skyldan. Þögg­un­ar­taktíkin sem hér hefur ríkt alltaf var nátt­úr­lega algjör.“

Sjá einnig: „Pabbi er alltaf með mér“

Rauf þögnina 12 árum seinna

Inga segir að tólf árum seinna hafi Gísli hringt í hana hágrát­andi um miðja nótt og sagt henni frá. „Þá var hann til­bú­inn að tala og sagð­ist vilja kæra hann [Þórhall]. Ég sagð­ist geta hjálpað honum, sem ég og gerði, var komin með lög­mann og þetta var að fara í þetta ferli á þessum tíma. Þá brotn­aði hann alveg niður aftur og treysti sér ekki til að standa í þessu og bara vildi það ekki.“

Gísli reyndi síðan að svipta sig lífi nokkrum árum seinna. „Ég man ekki hvort þetta voru átta vikur, honum var haldið í önd­un­ar­vél og móðir hans kom frá Danmörku þarna strax. Þeir voru með hann í önd­un­ar­vél­inni bara til þess að halda honum gang­andi á meðan hún væri að kveðja hann. Það voru þau skila­boð sem við fengum. Við­bót­ar­skila­boðin voru þau að þegar virt­ist vera eitt­hvað líf með honum væri þetta ekk­ert hann. Í dag erum við þakk­lát fyrir að Gísli er Gísli og hann er gang­andi krafta­verk.“

Inga skrif­aði færslu á Facebook um Gísla, og birti myndir af honum berj­ast fyrir lífi sínu eftir sjálfs­vígstil­raun­ina. Inga seg­ist hafa skrifað færsl­una í kjöl­far dóms­ins yfir Þórhalli, en seg­ist ekki hafa haft geð í sér til þess að lesa dóm­inn. Hún segir Gísla og móður hans hafa fagnað nið­ur­stöð­unni meðal ann­ars með færslum á sam­fé­lags­miðlum.

„Vikum saman var honum haldið sof­andi í önd­un­ar­vél á milli heims og helju og fjösl­kyldan und­ir­búin undir það versta. Sam­m­fallin lungu og öll lík­ams­starfs­semi hætt og hann í raun dáinn það lengi að okkur var gefin engin von um að hann kæmi til baka. Þrátt fyrir að hafa gengið í gegnum allar þessar raunir,orð­inn að beina­grind sem þurfti að gang­ast undir langa end­ur­hæf­ingu er Gísli hetja og gang­andi krafta­verk í dag. Loksins er Þór­hallur Guð­munds­son á leið bak við lást og slá þar sem okkur öllum í fjöl­skyld­unni finnst hann eiga heima og hvergi ann­ars staðar,“ segir Inga í færslu sinni.

Fólk með sjálfs­vígs­hugs­anir er minnt á Hjálp­ar­síma Rauða kross­ins, 1717, og net­spjallið. Þjálfaðir og reynslu­miklir sjálf­boða­liðar á öllum aldri svara þeim sím­tölum og spjöllum sem ber­ast. Fullum trún­aði er heitið, núm­erið er ókeypis og opið allan sól­ar­hring­inn.
Píeta sam­tökin bjóða einnig upp á þjón­ustu í síma 552-2218 fyrir fólk í sjálfs­vígs­hættu og með sjálfs­skaða­hegðun.

Lestu nánar um málið í Mannlífi

Lestu við­talið við Gísla í Mannlífi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina