Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Rekinn í þrígang fyrir andstöðu við kvótann

Rekinn í þrígang fyrir andstöðu við kvótann

Ólafur Jónsson afla­skip­stjóri segir Þorstein Má Bald­vins­son hafa beitt sig afkomu­of­beldi.

Þorstein Már Bald­vins­son, for­stjóri Samherja. Mynd / Samherji

„Ég er bara einn af mörgum sem hafa mátt þola afkomu­of­beldi af hendi Þor­steins Más,” segir Ólafur Jónsson, fyrr­ver­andi skip­stjóri á ísfiski­tog­ar­anum Viðey RE, um sam­skipti sín við Þorstein Má Bald­vins­son, for­stjóra Samherja. Ólafur var mik­ill afla­skip­stjóri á sínum tíma. Veiði­reynsla Ólafs leiddi til þess að skip hans fékk stóran afla­kvóta þegar kvóta­kerfið var tekið upp. En Ólafur seg­ist hafa verið flæmdur úr starfi vegna and­stöðu sinnar við kvóta­kerfið. Hann lýsti örlögum sínum í harð­orðri færslu á Facebook.

Hann seg­ist hafa misst vinn­una í þrí­gang vegna skoð­ana sinna á kvóta­kerf­inu og inn­gripa Þor­steins Más. Fyrst var honum sagt upp sem skip­stjóra en síðar sem sölu­manni Hamp­iðj­unnar. Allt var þetta vegna þess að hann hafði sig í frammi sem and­stæð­ingur kerf­is­ins. Ólafur segir að aðförin gegn honum hafi byrjað síð­sum­ars árið 1996. Hann heyrði úr tveim ólíkum áttum að hann væri komin á það sem hann kallar dauða­list­ann.

Á skip­stjóra­fundi hjá Granda kom á dag­inn að skip hans, Viðey RE 6, kvóta­hæsti tog­ari fyr­ir­tæk­is­ins, var skyndi­lega kvóta­laus. Skipinu var ætlað að veiða utan­kvóta fisk og ufsa, sem var að sögn Ólafs von­laus útgerð.

„Ég var rek­inn um sum­arið.”

„Löng saga stutt. Ég var rek­inn um sum­arið þegar skip­stjóra­samn­ingur minn var útrunn­inn. Engin skýr­ing gefin. Þarna kynnt­ist ég hversu mik­il­væg góð atvinna er og hversu sárt er að missa hana og fá hvergi vinnu í minni starfs­grein. En ég var svo hepp­inn að fá starf hjá Hamp­iðj­unni þar sem ég varð tækni­legur sölu­maður á erlendum vett­vangi,” skrifar Ólafur.

Sölumaður rekinn

Um svipað leiti, árið 1997, hóf hann afskipti af stjórn­málum innan Frjáls­lynda flokks­ins. Fyrir kosn­ingar árið 1998 birt­ist í sjón­varpi kosn­inga­aug­lýs­ing með honum í sjón­varpi þar  sem hann lýsti skoðun sinni á kvót­anum. Þá dró enn til tíð­inda.

„Morg­un­inn eftir, þar sem ég var að afgreiða stóran „rækju­pakka“ um borð í spánskan tog­ara var ég boð­aður í skyndi uppá skrif­stofu Hamp­iðj­unnar og varð ég að yfir­gefa afgreiðsl­una og keyra uppá Höfða þar sem mér er til­kynnt að hópur útgerð­ar­manna (undir for­ystu Þor­steins Más Bald­vins­sonar) hefði hótað fyr­ir­tæk­inu að þau myndu öll stoppa öll við­skipti,” skrifar Ólafur.

Hann segir að Þor­steinn Már og félagar hans hefðu kraf­ist þess að hann yrði rek­inn og fyr­ir­tækið orðið við því.

Ólafur var með bát­inn Blíðu við veiðar á ígul­ker og beitu­kóngi. Útgerð­ar­mað­ur­inn er gam­all sam­starfs­fé­lagi hans hjá Hamp­iðj­unni. Eftir að Ólafur sendi frá sér mynd­band í haust með áskorun á þing­menn um að afnema kvóta­kerfið kom enn babb í bát­inn. Útgerð­ar­mann­inum var brugðið.

„Hann sagði að haft hefði verið sam­band við sig og ég yrði að fara hægar í sak­irnar. Ég lof­aði því að gefa ekki út svona „gróf“ mynd­bönd,” segir hann.

Nokkru síðar var honum sagt upp með fjög­urra mán­aða upp­sagn­ar­fresti.
„Svo senni­lega er búið að reka mig þrátt fyrir að ég sé að skila bestu afkomu sem bát­ur­inn hafði haft. Loka­orðin frá eig­and­anum voru að ég væri góður fiski­maður. Ætli það verði ekki graf­skriftin,” segir Þor­steinn.

Símtal frá Þorsteini

Ólafur segir að í dag sé staðan sú að Þor­steinn Már hafi í þrí­gang haft af honum atvinnu. Hann segir að Þor­steinn hafi hringt í hann haustið 2011 og rakið ofbeld­is­sög­una og spurt hvort hann ætl­aði aldrei að læra. Þar með hafi hann fengið stað­fest­ingu á afskiptum Sam­herja­for­stjór­ans.

„Fram að þessu í gegnum 14 ár hafði ég enga hug­mynd um hans aðkomu að mínum málum og því ofbeldi og fjár­hags­legum skaða sem ég og fjöl­skylda mín urðum fyrir,” skrifar Ólafur.

Á mynd­inni hér að ofan sést Ólafur lengst til hægri.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina