Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Kári svarar fyrir „frekjukastið“ – „Við björguðum því sem bjargað varð“

Kári svarar fyrir „frekjukastið“ – „Við björguðum því sem bjargað varð“

Um fátt hefur verið meira rætt í sam­fé­lag­inu í dag og í gær en ákvörðun Kára Stef­áns­sonar, for­stjóra Íslenskrar erfða­grein­ingar, um að hætta skimunum og slíta sam­starfi við land­lækn­is­emb­ættið frá og með næsta mánu­degi.

Ákvörð­unin hefur fengið mis­jafnar und­ir­tektir, margir skilja ákvörðun Kára, meðan aðrir telja hann ein­fald­lega í frekjukasti. Þeirra á meðal Smári McCarthy, þing­maður Pírata, en Kári svarar honum í færslu á Facebook-síðu sinni, og hvetur hann Smára og aðra til að skoða hvað það er sem kallað er enn eitt frekjukastið hjá Kára.

Sjá einnig: Afstaða Kára umdeild

„Við hjá Íslenskri erfða­grein­ingu(ÍE) erum búin að skima eftir veirunni í rúma fjóra mán­uði og í um 74 þús­und Íslend­ingum, við erum búin að rað­greina hana úr öllum með stað­festa sýk­ingu, við erum búin að skima eftir mótefnum gegn veirunni í 30-40 þús­und Íslend­ingum, við erum búin að taka sýni úr meiri hluta þessa fólks og skipu­leggja sýna­töku úr öðrum, við erum búin að senda fólk út á land í sýna­tökur, við erum búin að leggja að mörkum sér­þekk­ingu til þess að grafa eftir þekk­ingu í gögn­unum sem urðu til og við erum búin að taka þátt í alls konar fundum sem hafa leitt til afdrifa­ríkra ákvarð­ana í sótt­vörnum,“ segir Kári og bendir jafn­framt á að þetta hafi hann og starfs­menn hans gert af fúsum og frjálsum vilja og ekki þegið neina greiðslu fyrir, án meðan að þeir hafi van­rækt dag­vinnu sína hjá ÍE.

„Við höfum á þessum fjórum mán­uðum van­rækt dag­vinn­una okkar að því marki að það stefnir fram­tíð ÍE í hættu. Án þessa fram­lags hefði varla tek­ist að koma böndum á far­ald­ur­inn.“

Kári segir að á sama tíma hafi hann og starfs­menn hans ekki fengið neinar upp­lýs­ingar frá heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu og ekki haft aðgang að neinum upp­lýs­ingum um það hvernig hið opin­bera ætl­aði að taka við þeim verk­efnum sem ÍE hefur séð um.

„Við sáum okkur ekki fært að halda áfram að leggja að mörkum til skimurnar á landa­mærum án þess að sjá fyrir end­ann á okkar þátt­töku,“ segir Kári og seg­ist því hafa umrætt bréf til rík­is­stjórn­ar­innar.

„Svarið sem ég fékk var ein­hvern veg­inn svona: „Hvað held­urðu að þú sért? Við ætlum að setja verk­efna­stjóra í að skoða hvernig best væri að þessu staðið og hann skilar af sér 15. sept­em­ber eða eftir tíma sem jafn­ast á við þann tíma sem far­ald­ur­inn stóð yfir.“

Segist Kári ósáttur við svarið, sem segi ekk­ert til um hvernig aðkomu ÍE að skimunum muni ljúka. Segist hann því hafa gefið rík­i­s­tjórn­inni sjö daga til þess að taka við verk­efn­inu,

„sem er mun lengri tími en tók okkur að setja upp þá aðstöðu sem við erum með til skim­ana. Sem sagt við hlupum til þegar það var ljóst að heil­brigð­is­kerfið gat ekki höndlað vand­ann. Við björg­uðum því sem brargað varð og þegar við þurfum að snúa okkar að því að halda okkur sjálfum á floti flokk­ast það í huga Smára undir afleið­ingar frekjukasts. Hann er með skringi­legt höfuð á herðum sér hann Smári en alls ekki alvit­laust.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi