Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

„Mjög sorglegt og erfitt að horfa á bræður mína veslast upp og fara frá sjálfum sér“

Leik­ar­arnir Edda Björg­vins­dóttir og Þór­hallur Sig­urðs­son, eða Laddi, hafa verið þjóð­ar­eign í ára­tugi, sem er hreint ótrú­legt að segja af því að það eru tvö eld­hress unglömb sem sitja á móti blaða­manni á Mokka á Skóla­vörðu­stíg einn eft­ir­mið­dag í lok júní.

„Mjög sorglegt og erfitt að horfa á bræður mína veslast upp og fara frá sjálfum sér“

Þið hljótið að hafa upp­lifað áföll í líf­inu eins og allir aðrir?

„Við ættum bara ekk­ert líf ef við hefðum ekki upp­lifað áföll,“ segir Edda. „Sem betur fer af því að áföllin gera mann að þeirri mann­eskju sem maður er. Þroski manns felst í því hvernig maður tekst á við áföll. Það er mjög áhuga­vert að fylgj­ast með sjálfum sér í því ferli.“

„Sem betur fer hefur maður ekki lent í stór­kost­legum áföllum, heldur bara svona þeim sem allir lenda í, að missa for­eldra sína og systk­ini sem er alltaf sorg­legt, en sem betur hefur maður ekki misst börnin sín,“ segir Laddi. „Maður vill nú helst fara á undan, ég held að það væri mesta áfallið sem maður gæti lent í að sjá á eftir barn­inu sínu.“

For­eldrar Ladda lét­ust bæði rétt fyrir átt­ræð­is­ald­ur­inn og hann hefur misst tvo bræður sína. „Þeir voru ungir, annar bara rétt um sex­tugt þegar hann fékk alzheimer sem er mjög sér­stakt, svona ungur maður, og svo hinn bróðir minn er frekar nýfar­inn, 75 ára, og það var svipað með hann. Hann fékk Park­in­sons-veiki og út frá henni heila­bilun. Þetta var mjög sorg­legt og erfitt að horfa á bræður mína vesl­ast upp og fara frá sjálfum sér og verða ein­hverjir allt aðrir, vera svona inni­lok­aðir í sjálfum sér. Missa málið, annar bróðir minn missti alveg málið. Þetta er hræði­legt og mjög sorg­legt. Það var svo vont að fara svona, báðir alveg frá­bærir drengir.“

Edda seg­ist ekki geta annað en verið á hnjánum full þakk­lætis. „Ég á pabba sem er fjör­gam­all, hann er að verða 97 ára og hann er svo stór­kost­leg mann­eskja með heil­ann í lagi og ofboðs­lega skemmti­legur og kær­leiks­ríkur. Svo á ég fjögur börn og ég á barna­börn og þetta er allt fólk sem er á lífi, er hraust og heil­brigt og ég er óend­an­lega þakk­lát fyrir það.“

Sjá einnig: Edda og Laddi um press­una að vera alltaf skemmti­leg: „Djöfull var hann fúll, maður“

Viðtalið hér er hluti af stærra við­tali við Eddu og Ladda, sem verður birt í fullri lengd á fimmtu­dags­kvöld.

Sjá einnig: Edda og Laddi: „Við megum ekki end­ur­skrifa for­tíð­ina”

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina