Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Edda og Laddi: „Við megum ekki endurskrifa fortíðina”

Leik­ar­arnir Edda Björg­vins­dóttir og Þór­hallur Sig­urðs­son, eða Laddi, hafa verið þjóð­ar­eign í ára­tugi, sem er hreint ótrú­legt að segja af því að það eru tvö eld­hress unglömb sem sitja á móti blaða­manni á Mokka á Skóla­vörðu­stíg einn eft­ir­mið­dag í lok júní.

Edda og Laddi: „Við megum ekki endurskrifa fortíðina”

Samkvæmt lögum eru þau bæði orðin eldri borg­arar, eða heldri borg­arar ættum við kannski frekar að segja, en það hefur lík­lega aldrei verið jafn­mikið að gera hjá þeim og núna þrátt fyrir ald­ur­inn og for­dæma­lausa tíma það sem af er árinu, sem sáu þó til þess að dró úr verk­efnum hjá þeim að ein­hverju leyti. Nú á föstu­dag lítur nýjasta verk­efni þeirra ljós á stóra tjald­inu, kvik­myndin Amma Hófí, og þau segj­ast bæði vera bæði spennt og kvíðin fyrir útkom­unni. „Gunnar Björn hringdi í mig fyrir þónokkrum árum síðan, þá var þetta nú bara á hug­mynda­stigi. Svo dróst þetta á lang­inn, það náð­ist ekki í pen­ing og svona, en svo hafð­ist myndin fyrir rest,“ segir Laddi og brosir, aðspurður um aðkomu hans að mynd­inni. En er hún skrifuð með þau í huga?

„Já, mig grunar það,“ svarar Laddi.

„Já, ég gæti alveg trúað því vegna þess að það eru líka mörg ár síðan við sátum saman og fórum yfir,“ segir Edda. „Þá var Gunnar Björn að kynna fyrir  mér hug­mynd­ina og mér fannst hún alveg svaka­lega skemmti­leg og ég vissi að hann lang­aði að fá okkur saman í mynd­ina. En þá var þetta allt á hug­mynda­stigi.“

„En hann var alveg örugg­lega með okkur í huga,“ ítrekar Laddi.

Gunnar Björn sem þau vísa til er Gunnar Björn Guð­munds­son, sem bæði leik­stýrir og skrifar hand­ritið að Ömmu Hófí. Hann á að baki myndir eins og Astrópíu og Gaura­gang.

Sjá einnig: Edda og Laddi um press­una að vera alltaf skemmti­leg: „Djöfull var hann fúll, maður“

Fortíðin verður ekki ritskoðuð

Sam­fé­lagið þró­ast og grínið með, hverju má gera grín að og hverju ekki. Breski gam­an­leik­ar­inn John Cleese gagn­rýndi nýlega BBC fyrir að ætla að rit­skoða Monty Python-hóp­inn sem Cleese var hluti af, þar sem grín þeirra væri ekki við­eig­andi í dag. Hvað finnst ykkur, má gera grín að öllu?

„Nei, ekki í dag,“ segir Laddi ákveð­inn og Edda sam­sinnir því. Einu sinni mátti gera grín að öllu nema for­set­anum, svo er þetta alltaf að þró­ast og breyt­ast, nefnir blaða­maður. „Já, svo mátti gera grín að for­set­anum. Mínum karakt­erum hefur í dag fækkað um tvo, þeir eru bara komnir inn í skáp og eru bann­aðir í dag,“ segir Laddi. „Færeyska konan mun aldrei lifna við aftur,“ bætir Edda við.

Sjá einnig: „Mjög sorg­legt og erfitt að horfa á bræður mína vesl­ast upp og fara frá sjálfum sér“

En hvað finnst ykkur um rit­skoðun á eldra gríni, líkt og BBC vill gera?

„Ég spring í loft upp af hneykslan. Þú tekur ekki gam­alt efni og breytir því … sög­una, hvað ætlarðu að gera, end­ur­rita sög­una?“ segir Edda ákveðin. „Hvað með alla kúg­un­ina og við­bjóð­inn, morðin, hvernig konum og fötl­uðum hefur verið haldið niðri, ætlarðu að end­ur­rita þetta allt saman af því það er óþægi­legt? Sama er með grín, þú getur ekki end­ur­skrifað grínið og ýtt því öllu til hliðar, það heitir rit­skoðun og er ömur­legt athæfi, þangað megum við aldrei fara. Við megum ekki end­ur­skrifa for­tíð­ina. Aftur á móti skulum við diskút­era gamla grínið, hvort það á við í dag eða ekki. Þetta er alveg for­kast­an­legt,“ segir Edda. Og Laddi er sam­mála. „Þetta gerir maður bara ekki. Okkar karakt­erar eru saga og við myndum ekki bjóða upp á þá í dag, en við strikum ekki yfir þá og látum sem þeir hafi aldrei verið til.“

Viðtalið hér er hluti af stærra við­tali við Eddu og Ladda, sem verður birt í fullri lengd á fimmtu­dags­kvöld.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Bókaunnendum gefst færi á að kynnast tveimur íslenskum skáldsögum og nýrri þýðingu áður en jólabókaflóðið skellur á.
Frétt

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Fjarlægja þurfti smágirni og hluta ristils úr farþega eftir áreksturinn
Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag