Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Edda og Laddi um pressuna að vera alltaf skemmtileg: „Djöfull var hann fúll, maður“

Leik­ar­arnir Edda Björg­vins­dóttir og Þór­hallur Sig­urðs­son, eða Laddi, hafa verið þjóð­ar­eign í ára­tugi, sem er hreint ótrú­legt að segja af því að það eru tvö eld­hress unglömb sem sitja á móti blaða­manni á Mokka á Skóla­vörðu­stíg einn eft­ir­mið­dag í lok júní.

Edda og Laddi um pressuna að vera alltaf skemmtileg: „Djöfull var hann fúll, maður“

Edda og Laddi eru með skemmti­leg­ustu gam­an­leik­urum þjóð­ar­innar, en eru þau alltaf skemmti­leg, er ekki erfitt að vera alltaf undir pressu að vera skemmti­leg?

„Jú, jú, maður hefur alveg fundið fyrir því að maður eigi alltaf að vera hress og með grín. Svo er maður það ekki neitt og fær að heyra að um mann hafi verið sagt: „Djöfull var hann fúll, maður,“ segir Laddi, en bætir þó við að þetta hafi skánað, eftir því sem hann varð eldri.

„Krakk­arnir hætta að þekkja mann. Þetta var verra áður fyrr, þegar maður lenti til dæmis í ung­linga­hópi, og maður átti að vera með grín. „Vertu Eiríkur Fjalar,“ svo gerði maður það ekki, og þá þótti maður bara ofboðs­lega leið­in­legur, hund­fúll bara. En þetta er bara ofboðs­lega þægi­legt í dag,“ segir hann og brosir.

Sjá einnig: Edda og Laddi: „Við megum ekki end­ur­skrifa for­tíð­ina”

„Núna ertu nýbú­inn að leika í þátt­unum Jarð­ar­förin mín,“ skýtur blaða­maður inn í, „og það vita allir að þú ert bara gam­all og leið­in­legur karl!“

„Ég er að segja það,“ segir Laddi og Edda skelli­hlær að okkur. „Bara nákvæm­lega eins og ég er, ég tengdi strax við hlut­verkið,“ segir Laddi, en eitt­hvað er nú erfitt að trúa þeim orðum hans.

„Ég var aldrei eins vin­sæll skemmti­kraftur og Laddi, hann hefur verið það lengi og á marga ódauð­lega karakt­era,“ segir Edda. „Mér hefur aldrei fund­ist nein krafa á mig að vera sér­stak­lega skemmti­leg utan vinn­unnar, að halda uppi stemn­ingu í partíum eða hópum, aldrei nokkurn tíma. Aftur á móti lendir maður stundum í leið­inda­púkum sem hreyta í mann: „Þú getur nú ekki alltaf verið svona kát, er þetta ekki ein­hver yfir­boðs­mennska.“ Sem er bara bull af því ég er nátt­úr­lega bara vit­leys­ingur, síflissandi, finnst allt skemmti­legt og ef ég lendi í ein­hverjum áföllum, sem allir lenda í, þá á ég fólk að sem vinnur úr þeim með mér, en ég er ekk­ert að bera þau fyrir almenn­ing.“

Viðtalið hér er hluti af stærra við­tali við Eddu og Ladda, sem verður birt í fullri lengd á fimmtu­dags­kvöld.

Sjá einnig: „Mjög sorg­legt og erfitt að horfa á bræður mína vesl­ast upp og fara frá sjálfum sér“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum