Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Helgi svarar Samherja: ,,Ljúga upp í opið geðið á alþjóð“

Helgi svarar Samherja: ,,Ljúga upp í opið geðið á alþjóð“
Helgi Seljan blaða­maður.

Fjöl­miðla­konan Þóra Arn­órs­dóttir, rit­stjóri Kveiks, birti fyrir skömmu varn­ar­ræðu Helga Seljan, frétta­manns RÚV, við ásök­unum Samherja í dag á hendur honum um frétta­fölsun. Hún kallar fram­setn­ingu útgerð­ar­fyr­ir­tæk­is­ins drullu­mokstur til þess eins gerðan að sverta mann­orð Helga í stað þess að svara því sem skipti máli. Spurn­ingum um starf­semi fyr­ir­tæk­is­ins í Namibíu.

Í yfir­lýs­ingu Helga vísar hann ásök­unum um fals­anir alfarið á bug. Hér að neðan eru svör frétta­manns­ins við ásök­unum Samherja.

,,Skýrslan og ásak­anir um fals­anir

Fyrir það fyrsta eru ásak­anir um fals­anir gagna alrangar. Sömu­leiðis útlegg­ingar á sam­tali mínu við Jón Óttar Ólafsson, starfs­mann Samherja.

Skýrsla um sam­an­burð á útflutn­ings­verði á karfa til Þýska­lands, sem sýndi að Samherji seldi fyr­ir­tækjum sínum þar í landi afla eigin skipa á lægra verði en gerð­ist og gekk í við­skiptum ann­arra, var sann­ar­lega til og gerð af Verð­lags­stofu skipta­verðs. Eins og fram kom í Kast­ljósi, þegar vitnað var til hennar og hún sýnd. Það, hvers vegna núver­andi starfs­maður Verð­lags­stofu hafnar því núna, 8 árum eftir birt­ingu þess í sjón­varpi, að það hafi verið gert, er með nokkrum ólík­indum, þó ekki sé fastar að orði kveðið. Skjalið var sann­ar­lega gert af þáver­andi for­stjóra Verð­lags­stofu skipta­verðs, og lagt fram í Úrskurð­ar­nefnd útvegs­manna og sjó­manna. Það var jafn­framt til­efni athuga­semda Verð­lags­stofu við Samherja, rann­sókn, eins og það var orðað af Verð­lags­stofu sjálfri. Rétt eins og núver­andi for­stjóri Verð­lags­stofu stað­festir í raun í þessum sam­skiptum sínum við Samherja, nú í apríl.

Það er ekki bara rangt, heldur einkar bíræfið hvernig því er haldið fram í „þætti“ Samherja að umrætt skjal hafi verið falsað. Raunar kall­ast þessar kenn­ingar þeirra á í mynd­band­inu. Það er ýmist sagt falsað, eða því breytt. Hvort tveggja er rangt. Sund­ur­klippt ummæli um að átt hafi verið við skjalið, vísa ein­göngu til þess að áður en það var birt voru per­sónu­grein­an­legar upp­lýs­ingar, sem hefðu getað vísað á heim­ild­ar­mann, afmáðar af því. Það að snúið sé út úr því með þeim hætti sem gert er, segir alla sög­una um raun­veru­legan til­gang þess­arar mynd­banda­gerðar Þor­steins Más og félaga.

Þorbjörn Þórð­ars­son, lög­maður og fyrrum frétta­maður Stöðvar 2, hefur aðstoðað Samherja und­an­farin miss­eri.

Að Samherji hafi haft í hönd­unum hljóð­upp­töku af fundi okkar Jóns Óttars í sex ár, en birti hana fyrst núna, segir sitt um hversu raun­veru­legt sönn­un­ar­gagn um sam­særi af minni hálfu sé að ræða.

Það er einnig rangt að Kastljós hafi ekki gengið úr skugga um hvaðan og hvers eðlis skýrsla Verð­lags­stofu var, og ekki gengið úr skugga um að skjalið væri sann­ar­lega frá Verð­lags­stof­unni komið. Verð­lags­stofa vildi ekki stað­festa neitt opin­ber­lega, en það er hreinn útúr­snún­ingur að halda því fram að það þýði að skýrslan hafi ekki verið unnin á hennar vegum, því það var sann­ar­lega stað­fest. Um þetta allt má til dæmis lesa í eft­ir­far­andi bréfi (sjá fyrsta komment að neðan) sem und­ir­ritað er af þremur starfs­mönnum Verð­lags­stofu skipta­verðs, og send var á stjórn stofn­un­ar­innar, vegna fyr­ir­spurnar Kast­ljóss. Þar er jafn­framt stað­fest að „mál“ tengt Samherja sé til skoð­unar innan stofn­un­ar­innar og áhersla lögð á að þögn ríki um málið af hendi stjórn­ar­innar, enda geti annað orðið til að „tefja og jafn­vel skaða mál sem eru til rann­sóknar/með­ferðar hjá Verð­lags­stofu og úrskurð­ar­nefnd“

Umrædd skýrsla, sem var 3 blað­síður og und­ir­rituð af þáver­andi for­stjóra Verð­lags­stofu skipta­verðs, var sann­ar­lega borin undir Seðla­bank­ann, sem óskaði eftir og fékk afrit af henni.

Frétta­blaðið

Vinnu­brögð Frétta­blaðs­ins í mál­inu sæta – ólíkt vinnu­brögðum Samherja – furðu. Bornar eru fram ein­hliða- og án nokk­urs mögu­leika á and­mælum, ásak­anir sem eru ekki bara alrangar, heldur líka grafal­var­legar. Einu við­mæl­endur Frétta­blaðs­ins í frétt­inni eru laun­aðir starfs­menn Samherja auk for­stjóra Samherja.

Frétta­blaðið bar efni for­síðu­frétt­ar­innar í dag aldrei undir mig, eða ásök­un­ina sem í henni felst. Þetta eru einu sam­skipti mín við Ara Brynj­ólfs­son, blaða­mann Frétta­blaðs­ins um málið frá í gær. (Sjá komment nr. 2) Hér nefnir hann aldrei efn­is­at­riði máls­ins, þá stað­reynd að hann hafði aug­ljós­lega séð þátt­inn sem hann vísar til og ætl­aði sér að skrifa um efni hans frétt, full­kom­lega gagn­rýn­is­laust.

Þorra­blótið á Reyð­ar­firði

Á und­an­förnum árum hefur Samherji, eða full­trúar þess fyr­ir­tækis ítrekað flutt furðu­sögur af Þorra­blóti Reyð­firð­inga í hinu svo­kall­aða Seðla­banka­máli. Því hefur verið haldið fram að þar hafi ég hitt sjó­mann sem ekki bar sig vel vegna hluta­skipta um borð í einu skipa Síld­ar­vinnsl­unnar í Nes­kaups­stað, dótt­ur­fé­lags Samherja. Sú frá­sögn er upp­spuni frá rótum. Síð­ast­liðið haust, stuttu fyrir umfjöllun Kveiks um starf­semi Samherja í Namibíu og rétt eftir að Samherja var ljóst að um málið yrði fjallað í fjöl­miðlum, birt­ist svo ný frá­sögn. Í þetta sinn af því að ég hefði haft uppi yfir­lýs­ingar um að „taka niður Þorstein Má“. Aftur var farið með rangt mál. Nú er trommað upp með ítar­legri útgáfu af sömu sögu, og aftur er hún röng. En í þetta sinn er kall­aður til fót­göngu­liði úr hópi við­skipta­fé­laga Þor­steins Más, og hann kynntur til sög­unnar sem fyrrum lágt settur milli­stjórn­andi dótt­ur­fé­lags­ins í Nes­kaup­stað. Sá maður er Jóhannes Pálsson.

Frásögn Jóhann­esar svíður kannski mest af því sem þarna fer fram. Jóhannes hef ég þekkt síðan ég var barn. Jóhannes var nágranni minn og fjöl­skyldur okkar vina­fólk. En Jóhannes Pálsson var líka og er með­eig­andi Þor­steins Más Bald­vins­sonar í eign­ar­halds­fé­lag­inu Snæfugli, sem er stór eig­andi Síld­ar­vinnsl­unnar í Nes­kaup­stað. Ummæli hans verða því að skoð­ast í því ljósi, rétt eins og ummæli ann­arra þeirra sem eru til við­tals í „þætti“ Samherja og eiga það allir sam­eig­in­legt að hafa atvinnnu af því að gæta með einum eða öðrum hætti hags­muna fyr­ir­tæk­is­ins. Um frá­sögn Jóhann­esar Páls­sonar vil ég segja eft­ir­far­andi: Það að ég hefði farið að segja Jóhann­esi frá því „að ég væri með stórt mál“ gegn Samherja í smíðum, ætl­aði mér að „tak’ann“ eða „ná honum“ vit­andi um aug­ljós tengsl þess­ara manna og sam­eig­in­lega hags­muni er eins og allir hljóta að sjá, galið. Enda alrangt. Samtal okkar Jóhann­esar í umrætt sinn sneri að hvort hann hefði í störfum sínum fyrir Síld­ar­vinnsl­una orðið var við að afurða­kaup Samherja af skipum Síld­ar­vinnsl­unnar færu fram á lægra verði en gekk og gerð­ist, eins og frá­sagnir sjó­manna fyr­ir­tæk­is­ins og kvart­anir til Verð­lags­stofu sögðu til um. Eftir á að hyggja voru það auð­vitað mis­tök af mér að ræða þetta mál­efni, jafn­vel með þessum fyr­ir­vörum, við gamlan fjöl­skyldu­vin eins og Jóhannes, einkum við þessar aðstæður. Það hvarfl­aði hins vegar ekki að mér að hann myndi, átta árum síðar, stíga fram og ljúga upp í opið geðið á alþjóð, til þess eins að taka þátt í þessum furðu­leið­angri við­skipta­fé­laga síns, Þor­steins Más Bald­vins­sonar.“

Að end­ingu þetta: Það dylst engum hver raun­veru­legur til­gangur þess­arar her­ferðar er. Hann er tví­þættur: Að reyna að hafa af blaða­mönnum æruna með atvinnurógi af versta tagi og það sem skiptir jafn­vel meira máli – að dreifa athygl­inni frá þeirri stað­reynd að Þor­steinn Már Bald­vins­son og starfs­menn hans sæta nú rann­sókn í stóru saka­máli og hafa til þessa ekki svarað lyk­il­spurn­ingum um fram­ferði fyr­ir­tæk­is­ins á erlendri grund.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

„Á ég að koma og taka í þig og ríða þér í rassgatið litla tussan þín“
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina