Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Ferguson lögmaður Sonju sver af sér Guðmund á Núpum: „Bæði undrandi og vonsvikinn með Gumma“

Ferguson lögmaður Sonju sver af sér Guðmund á Núpum: „Bæði undrandi og vonsvikinn með Gumma“

John J. Ferguson, banda­rískur lög­maður auð­kon­unnar heit­innar Sonju Zorilla, aðskilur sig alfarið frá við­skiptum Guð­mundar A. Birg­is­sonar, oft­ast kenndum við Núpa í Ölfusi, sem hefur játað á sig skatt­svik og pen­inga­þvætti. Lög­mað­ur­inn seg­ist bæði undr­andi og von­svik­inn að heyra af því hvernig er komið fyrir kollega sínum hjá minn­ing­ar­stjóði Sonju.

„Ég hef þekkt Gumma í 25 ár og veit að hann hefur verið í vand­ræðum vegna gjald­þrots. En ekk­ert af því teng­ist sjóðnum því ég einn hef hönd á öllum pen­ing­unum frá upp­hafi og hann hefur ekki haft nokkurn aðgang að þeim. Hvað sem hann hefur gert þá er alfarið engin pen­inga­teng­ing milli sjóðs­ins og hans per­sónu­legu mála,“ segir Ferguson.

Guð­mundur var umsvifa­mik­ill fjár­festir fyrir hrun. Hann átti meðal ann­ars hlut í Lífsval sem var eitt stærsta jarð­ar­fé­lag lands­ins. Það keypti á fimmta tug jarða víðs­vegar um landið, sauð­fjárbú, kúabú og réð auk þess yfir rúm­lega milljón lítra mjólk­ur­kvóta. Guð­mundur ját­aði sök fyrir dómi en hann var ákærður fyrir 300 millj­óna skila­svik og pen­inga­þvætti. Fjár­festir­inn var úrskurð­aður gjald­þrota í des­em­ber 2013. Guðmundi er gefið að sök að hafa haldið frá skipta­stjóra þrota­bús síns eignum sem hann átti á Spáni og í Banda­ríkj­unum og komið undan mál­verki. Hann hefur nú játað brot sín fyrir dómi.

Sjá nánar hér: Hulinn sjóður Sonju og meinst svika­slóð frænd­ans.

Guð­mundur A. Birg­is­son

Sonja Zorila hagn­að­ist vel á við­skiptum á Wall Street. Minn­ing­ar­sjóði hennar, Sonja Foundation, var ætlað að styrkja lang­veik börn á Íslandi og í Banda­ríkj­unum og hefur verið fjallað um að eignir Sonju um alda­mótin hafi verið um tíu millj­arðar króna. Lítið sem ekk­ert hefur enn feng­ist upp­gefið um sjóð­inn sem varð til við and­lát auð­kon­unnar og áttu allar eignir hennar, að und­an­skildum lágum upp­hæðum sem systra­börn hennar fengu, að renna í sjóð­inn.

„Hvað sem Gummi hefur gert af sér per­sónu­lega hefur ekk­ert að gera með dán­arbú Sonju eða sjóð­inn.“

Guð­mundur rækt­aði mjög sam­bandið við Sonju um ára­bil áður en hún lést og vann traust hennar. Sonja átti miklar eignir á Flórída og í New York. Þá átti hún íbúð á Ísland og sum­ar­hús á Núpum, land­ar­eign Guð­mundar. Auk þess átti hún Rolls Royce bif­reið sem geymd var á Núpum. Athygli­vert er að meint svika­slóð Guð­mundar liggur um sömu svæði og eigur auð­kon­unnar var að finna. Sonja átti veg­legt mál­verka­safn, íbúðir á Flórída og á Park Avenue í New York þar sem skatt­ur­inn hefur kom­ist á snoðir um leyndar eignir Guð­mundar.

Allt frá því Sonja lést hefur leynd­ar­hjúpur verið um eignir hennar og ekk­ert spurts til sjóðs­ins eða úthlut­ana úr honum. Guð­mundur hefur sjálfur farið undan í flæm­ingi þegar fjöl­miðlar hafa spurt um sjóð­inn eða afdrif eign­anna. Allt frá því Sonja lést árið 2002 er minn­ing­ar­sjóður hennar enn í sama myrkri og hann hefur verið und­an­farin 18 ár.

John J. Ferguson, lög­maður Sonju á sínum tíma og annar umsjón­ar­manna styrkt­ar­sjóðs Sonju.

Saman eru þeir Ferguson og Guð­mundur umsjón­ar­menn minn­ing­ar­sjóðs­ins. Aðspurður segir Ferguson að upp­runa­lega hafi verið í sjóðnum því sem nemur hálfum millj­arði króna og því hefur að mestu verið úthlutað til góð­gerð­ar­mála. Hann segir að mál­verk hafi verið seld á sínum tíma og sölu­and­virði þeirra verið meðal þess sem rann í sjóð­inn en að engar fast­eignir hafi runnið þangað inn. Mannlíf óskaði form­lega eftir yfir­liti frá sjóðnum um hvaða upp­hæðir og hvert þær hafi runnið úr sjóðnum frá stofnun. Ferguson neit­aði að afhenda þær upp­lýs­ingar. „Þetta eru trún­að­ar­upp­lýs­ingar og eru því ekki ætl­aðar til opin­berrar birt­ingar.“

Spurn­ing­unni um hvort ekki hafi verið and­virði 10 millj­arða til ráð­stöf­unar eftir lát Sonju svar­aði Ferguson því hlæj­andi. Honum var hins vegar aug­ljós­lega brugðið þegar Mannlíf sagði honum frá því að Guð­mundur hafi játað á sig skatt­svik og pen­inga­þvætti.

„Ég held að Sonja hafi aldrei átt svona mik­inn pen­ing en það mesta úr sjóðnum hefur verið úthlutað til góð­gerð­ar­mála í gegnum árin. Það er eitt­hvað eftir í sjóðnum. Hvað sem Gummi hefur gert af sér per­sónu­lega hefur ekk­ert að gera með dán­arbú Sonju eða sjóð­inn. Sjóð­ur­inn stendur fylli­lega í skilum við skatta­yf­ir­völd og er algjör­lega hreinn. Ég finn til með Gumma því hann kom mér ávallt fyrir sjónir sem sann­krist­inn maður og vin­gjarn­leg per­sóna. Því er ég bæði undr­andi og von­svik­inn. Frá per­sónu­legu sjón­ar­miði hef ég ekk­ert að gera með hann og hef ekki þekk­ingu á hvaðan pen­ingar hans komu,“ segir Ferguson.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi