Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Jón Gunnar minnist Ölmu systur sinnar: „Sorgin mölbrýtur tilveru mína“

Jón Gunnar minnist Ölmu systur sinnar: „Sorgin mölbrýtur tilveru mína“

Jón Gunnar Geirdal, oft kall­aður Fra­sa­kóng­ur­inn, minn­ist systur sinnar, Ölmu Geirdal, í hug­ljúfri minn­ing­ar­grein í Morg­un­blað­inu í dag. Þar seg­ist hann aldrei hafa ætlað sér að upp­lifa það að missa litlu systur sína. Alma hafi verið öxlin sem Jón Gunnar þurfti að styðja sig við. Klett­ur­inn hans brósa.

„Sjötta sept­em­ber árið 1979 var fimm ára mér til­kynnt að ég væri að eign­ast enn eina syst­ur­ina, nokkuð sem mér hugn­að­ist alls ekki og grát­bað ég for­eldra mína um bróður. Bænum mínum var ekki svarað og á þessum örlaga­ríka degi fékk ég það mik­il­væga hlut­verk að vera stóri bróðir þinn. En ég ætl­aði aldrei að þurfa að upp­lifa það að missa þig. Litla systir mín látin. Þessi fjögur orð verða óraun­veru­legri í hvert sinn sem ég end­ur­tek þau. Ég er ekki stóri bróðir þinn lengur og sorgin möl­brýtur til­veru mína,“ segir Jón Gunnar í minn­ing­ar­orðum um litlu systur sína.

Alma Geirdal lést 19. sept­em­ber síð­ast­lið­inn á líkn­ar­deild, 41 árs að aldri. Banamein Ölmu var brjóstakrabba­mein, sem hún greind­ist með aðeins 38 ára gömul. Eftir með­ferð var hún krabba­meins­laus í tæp tvö ár en þá greind­ist hún aftur og gaf meinið enga vægð. Alma var ætíð opin­ská með veik­indi sín og hélt meðal ann­ars úti hópi á Facebook, Alman vs. cancer, þar sem hún skrif­aði nær dag­lega hug­leið­ingar sínar um veik­indin og dag­legt líf.

Alma Geirdal Mynd / Hákon Davíð Björns­son

Alma Geirdal greind­ist í annað skipti með ill­vígt krabba­mein sem ljóst varð að hefði dreift sér um allan lík­amann. Henni var tjáð að það væri ekk­ert hægt að gera til að reyna að bjarga lífi hennar sem myndi lík­lega ekki vara lengur en fjögur ár í við­bót.

Alma var í við­tali hjá Mannlíf í byrjun árs, þar sem hún ræddi bar­átt­una, for­dómana sem hún varð fyrir í heil­brigð­is­kerf­inu og krabba­meinslyfið sem olli miklum kvölum og auka­verk­unum, en gerði henni ekk­ert gagn. Í við­tal­inu kom fram að Alma var búin að fá upp­gef­inn tím­ann sem hún átti eftir, en hún var stað­ráðin í að njóta tím­ans sem eftir var sem best hún gat með sínum nán­ustu, sam­býl­is­manni, börnum, systk­inum og öðrum ætt­ingjum og vinum.

Jón Gunnar rifjar upp allar fal­legu stund­irnar sem þau systk­inin áttu saman og hann kemur líka inn á erf­ið­leik­ana. „Hvað segir maður svo þegar þú ert öll? Hvað á ég að rifja upp, mín kæra? Hvaða minn­ingar standa upp úr? Of margar. Alltof. En vá hvað þær áttu að vera miklu fleiri, elsku gull­fal­lega Alma mín. Mér þykir mjög vænt um New York-ferð­ina okkar fyrir tíu árum síðan; taxi til Brooklyn að fá okkur flúr, Maxwelltónleikar í Madison Square Garden – það var svo ótrú­lega gaman hjá okkur. Þá varst þú öxlin sem ég þurfti að styðja mig við. Klett­ur­inn hans brósa. Við fengum okkur svo aftur saman flúr í vor og í hvert sinn sem ég legg hendur mínar í bæn þá minna kross­arnir á ynd­is­legu þig. Mér fannst þú alltaf æðis­leg, líka þegar þú varst ekki æðis­leg,“ segir Jón Gunnar og bætir við:

„En það er nákvæm­lega það sem stóru bræður gera, þeir standa með þér þegar þú stendur ekki einu sinni með sjálfri þér. Það voru mik­il­væg­ustu augna­blikin okkar. Þar fundum við systk­inin styrk­inn okkar í öllu sínu ógn­ar­sterka veldi. Þér tókst nefni­lega oftar en ekki að sann­færa sjálfa þig um að best væri að standa í auga storms­ins, töffar­inn hans brósa með hendur á lofti, að reyna að dansa sig í gegnum erf­ið­leik­ana. Alltaf stóðstu upp aftur og við vorum svo stolt af þér, þangað til brósi stóð einn upp eftir þann síð­asta. Í síð­ustu and­vörpum þínum skein sólin í gegnum rokið og rign­ing­una og okkur fannst það ofboðs­lega tákn­rænt fyrir lífs­hlaup þitt. Í gegnum alla erf­ið­leik­ana voru bjartir og fal­legir tímar og ætli okkur fjöl­skyld­unni reyn­ist ekki erf­ið­ast að sætta okkur við það að þær góðu stundir hefðu svo sann­ar­lega getað verið mun fleiri.“

Alma Geirdal

Jón Gunnar segir ekki ætla að vera reiður og sár mikið lengur vegna and­láts Ölmu. „Ég vil nefni­lega muna þig ótrú­lega fal­lega, skelli­hlæj­andi með fal­lega brosið þitt, ánægð að njóta með Geir­döll­unum okkar. Gleði­gjaf­inn þú sem smit­aðir svo út frá þér til allra í kringum þig. Við sem syrgjum þig svo sárt eigum fjölda góðra minn­inga sem við munum hlæja og gráta okkur í gegnum saman þegar við minn­umst þín. Mín lífs­ins sorg er að verða ekki gam­all maður með litlu systur minni. Ég sá aldrei fyrir mér að þú yrðir lang­líf en að falla frá fjör­tíu og eins árs er martrað­ar­kenndur veru­leiki okkar sem elskuðum þig svo mikið. Ég elskaði þig frá þínum fyrsta and­ar­drætti og mun að eilífu þykja vænt um að hafa haldið í hönd þína þegar sá síð­asti yfir­gaf þig,“ segir Jón Gunnar að lokum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum