Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Sjóprófum Covid-Júllans frestað – Útgerðin neitar að afhenda skipsbókina

Sjóprófum Covid-Júllans frestað – Útgerðin neitar að afhenda skipsbókina

Sjó­prófum vegna Covid-túrs frysti­tog­ar­ans Júlíusar Geir­munds­sonar ÍS hefur verið frestað. Hrað­frysti­húsið Gunnvör, sem gerir út skipið, neitar að afhenta skips­bók tog­ar­ans eins og lög gera ráð fyrir.

Stétt­ar­fé­lög áhafn­ar­innar á frysti­tog­ara­naum Júlíusi Geir­munds­syni ÍS hafa tekið höndum saman og kært útgerð­ina til lög­reglu. Tilefnið er frægur Covid-túr tog­ar­ans þar sem útlit er fyrir að veikum sjó­mönnum hafi verið haldið á sjó svo vikum skiptir og neyddir til vinnu. Þá hefur útgerðin orðið upp­vís að því að hlýða ekki sótt­varn­ar­lækn­inum á Vest­firði sem gaf ítrekuð til­mæli þess efnis að tog­ar­anum yrði stýrt í land svo áhöfnin kæm­ist í sýna­tökur. Það var ekki gert fyrr en þremur vikur eftir brott­för.

Eftir að myndin skýrð­ist um hinn umdeilda túr kærðu stétt­ar­fé­lögin til lög­reglu og kröfð­ust sjó­prófa. Til stóð að þau færu fram á föstu­dag­inn en nú hefur þeim verið frestað. Ástæðan er tví­þætt. Annars vegar af því að skip­stjór­inn er ennþá í ein­angrun vegna Covid-19 og hins vegar vegna þess að útgerðin neitar að afhenda skips­bók­ina úr tog­ar­anum.

„Að afhenda ekki gögn sem á að afhenda er auð­vitað mjög dul­ar­fullt og óeðli­legt.“

Bókin sú svipar til hins svo­kall­aða „svarta kassa“ um borð í flug­vélum og er lyk­il­gagn þegar kemur að fyr­ir­hug­uðu sjó­prófi. Lögmaður útgerð­ar­innar hefur hafnað því að bókin verði afhend sökum per­sónu­vernd­ar­sjón­ar­miða því í henni komi fram við­kvæmar heilsu­fars­upp­lýs­ingar skip­verja. Föstu­dag­inn 13. þessa mán­aðar kemur það til kasta dóm­stóla, nánar til­tekið Hér­aðs­dóms Reykja­ness að skera úr um hvort útgerð­inni verði gert skylt að afhenda gögnin. Ef skips­bókin fæst afhend von­ast stétt­ar­fé­lögin til þess að sjó­prófið geti farið fram 20. nóv­em­ber á Ísafirði.

Bergvin Eyþórs­son, var­ar­for­maður Verka­lýðs­fé­lags Vest­firð­inga, stað­festir hina erf­iðu stöðu sem upp er komin. Honum finnst bæði dul­ar­fullt og ein­kenni­legt hvers vegna skips­bókin fæst ekki afhent. „Þetta stemmir, próf­unum hefur verið frestað og það er hvim­leitt. Lögmaður eins af gagn­að­il­unum neitar að afhenda þau gögn sem á að leggja fram. Samkvæmt lögum ber skylda að leggja þetta fram en lög­mað­ur­inn ber fyrir sig að per­sónu­vernd­ar­lög komi í veg fyrir það. Þetta er ekk­ert nema fyr­ir­sláttur og ég veit ekki hver til­gang­ur­inn er með þessu því ég hélt það væri hagur allra að afgreiða þetta eins hratt og mögu­legt er. Það verða engin sjó­próf án skips­bók­ar­innar. Að afhenda ekki gögn sem á að afhenda er bæði dul­ar­fullt og óeðli­legt,“ segir Bergvin.

Sveinn Arn­ars­son, skip­stjóri á Júlíusi Geir­munds­syni ÍS, hefur und­an­farið verið einn í skot­lín­unni vegna mis­tak­anna sem leiddu til þess að áhöfn hans veikt­ist af Covid 19 og þurfti að berj­ast við sjúk­dóm­inn á hafi úti svo vikum skiptir. Stjórn útgerð­ar­innar lýsti fullu trausti til Einars Vals Krist­jáns­sonar fram­kvæmda­stjóra sem beðið hefur áhöfn­ina afsök­unar á fram­ferðínu gegn þeim.

Sveinn Geir Arn­ars­son skip­stjóri sleit sam­tal­inu sam­stundis þegar Mannlíf hafði sam­band við hann fyrr í dag.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina