Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Útgerð frystitogarans hlýddi ekki lækni: Veikum sjómönnum haldið úti á sjó

Forsvars­menn Hrað­frysti­hússins Gunnvarar, sem gerir út togarann Júlíus Geir­mundsson ÍS, voru ítrekað hvattir til að halda með skipið í land í Covid-sýnatöku. Þau tilmæli bárust frá umdæmis­lækni sóttvarna á Vestfjörðum, Súsönnu Björgu Ástvalds­dóttur, meðal annars á þriðja degi túrsins, en þau tilmæli voru virt að vettugi.

Útgerðin sendi frá sér yfir­lýsingu í gær þar sem það sagði að í ljósi þeirrar vitneskju sem nú liggur fyrir hefði átt að kalla skipið fyrr til hafnar. Fyrir­tækið lét líka í það skína að það hafi verið ákvörðun annarra að ekki hafi verið ástæða til að halda með skipið til hafnar snemma í túrnum. Súsanna segir það hins vegar kýrskýrt að hún hvatti útgerðina alveg frá upphafi að fara með skipverja í sýnatöku. Það hafi hún gert ítrekað á meðan túrnum stóð.

„Þetta var ekki mín ákvörðun og þetta hefði getað farið verr. Mín tilmæli hafa verið, og verða alltaf, alveg sama hvar þú ert staddur í heiminum, að þú eigir að koma í sýnatöku ef þú ert með einkenni. Ég get staðfest að þau samskipti áttu sér stað milli mín og útgerðarinnar, þar af mjög snemma í túrnum. Tilmæli mín eru mjög einföld,“ segir Súsanna sem ítrekar að eftir að ákvörðun útgerðarinnar lá loksins fyrir að fara í land hafi samskiptin verið góð og öllum sóttvarnar­reglum fylgt.

Nú eru 22 af 25 manna úr áhöfn frysti­togarans sýktir af Covid. Nokkrir áhafnar­meðlimir frysti­togarans héldu í Covid-einangrun í skóla­byggingu að Holti í Önundar­firði í gær. Þar var áður prest­setur. Samkvæmt heimildum Mannlífs héldu sjómennirnir enn að veikjast.  Þetta kom fram á sunnudag þegar skipið leitaði hafnar eftir að veikindi höfðu herjað á áhöfnina í þá 20 daga sem skipið hafði verið í veiði­ferðinni.

„Þetta var ekki mín ákvörðun og þetta hefði getað farið verr.“

Allan túrinn voru menn að veikjast einn og einn. Fæstir urðu mjög veikir en þó var undan­tekning þar á. Það stóð á endum að þegar einn hresstist tóku næstu veikindi við.  Töldu menn í fyrstu að um væri að ræða flensu. Skipið hélt til hafnar á Ísafirði í gærdag til að taka olíu og senda alla áhöfnina í sýnatöku. Það kom svo í ljós á mánudaginn að nánast öll áhöfnin var sýkt. Talið er að smitin megi öll rekja til eins manns og veiran hafi grasserað með þessum afleiðingum undan­farnar þrjár vikur. Skipinu var þegar stefnt til hafnar aftur til að koma mann­skapnum í sóttkví.

Hákon Blöndal, fyrsti vélstjóri á Júlíusi Geir­mundssyni, segir ljóst að útgerðin þurfi að viðurkenna mistök sín. Það gerir hann í nýlegri færslu á Facebook. „Þetta er ljóta helvítis yfir­klórið og drullu­mokstur. Hérna er ekki öll sagan sögð og menn þurfa að taka sig saman í andlitinu og viðurkenna mistök. Við grun um Covid smit um borð ber skip­stjóra að hafa samband við landhelgis­gæslu Íslands sem ákveður næstu skref. í þessu tilfelli var verk­ferlum ekki fylgt og áhöfn fékk aldrei að njóta vafans og var lögð í mikla áhættu!,“ segir Hákon.

Áhöfninni var ekki hleypt frá borði þar til ákvörðun um einangrun sjómannanna lægi fyrir. Þá var heldur ekki hægt að landa aflanum fyrr en ákvörðun sóttvarnar­yfirvalda lægi fyrir. Nú hefur Matvæla­stofnun úrskurðað að ekki sé ástæða til að meðhöndla afla togarans með öðrum hætti en venjulega þrátt fyrir hópsmitið um borð.

Þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir vildi Sveinn Geir Arnarsson skip­stjóri ekki ræða málið við Mannlíf.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hópsýking greindist eftir þorrablót í Brúarási – Guðrún Hafsteins­dóttir meðal gesta

Enn ein matar­sýking er komin upp eftir þorrablót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jökulsár­hlíð á Fljótsdals­héraði á laugar­daginn. Guðrún Hafsteins­dóttir, formanns­efni Sjálfstæðis­flokksins sótti blótið. Samkvæmt Austur­frétt eru Heilbrigðis­eftirlit Austurlans (HAUST) og Heilbrigðis­stofnun Austur­lands (HSA) að vinna að því að rekja uppruna matar­sýkingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laugardags­kvöld....
Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Eftir sjóslysið lýsir Patrícia Mikulová þakklæti fyrir björgun sambýlismanns síns en segir hug sinn jafnframt hjá þeim sem misstu ástvin.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Konan segir synjunina tefja nám sitt um að minnsta kosti ár.

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning