Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Elísabet læknir styður Trausta: „Ég segi ekkert það sem ég held, heldur segi ég staðreyndir“

Elísabet læknir styður Trausta: „Ég segi ekkert það sem ég held, heldur segi ég staðreyndir“

Elísabet Guð­munds­dóttir læknir er mjög mót­fallin þeim sótt­varn­ar­að­gerðum sem gripið hefur verið til hér á landi. Hún gagn­rýnir harð­lega almenna grímu­skyldu og segir þá félags­legu ein­angrun sem sótt­varn­ar­yf­ir­völd bjóða upp á vera pynt­ing­ar­að­ferð.

Þetta kom fram í máli Elísa­betar í við­tali í útvarps­þætt­inum Harma­geddon. Hún var nýlega rekin frá Land­spít­al­anum og full­yrðir hún að það hafi verið vegna þess að hún gagn­rýndi sótt­varn­ar­að­gerðir í öðru útvarps­við­tali. „Uppsögn mín er algjör­lega án skýr­inga og ég hef ekki gert neitt vit­laust í starfi. Ég er ekk­ert að segja það sem ég held, heldur segi ég það sem er stað­reynd. Mér var sagt upp viku eftir við­talið. Sumir segja að ég sé hrein­lega í hættu. Ég hef verið mjög ein­mana yfir því að þora ekki að tala. Ísland er æðis­legt en hér er það mein að það er sífellt ráð­ist á fólk sem er með skoð­anir,“ segir Elísabet og heldur áfram:

„Ég upp­lifi bara eins og við séum í Norður-Kóreu og mér finnst við hafa gengið of langt. Að verj­ast veiru með grímu er eins og að verj­ast bakt­eríu með fót­bolta­neti. Fyrir tveimur árum lét­ust 17 Íslend­ingar vegna inflú­enslu. Við deyjum öll og ótti drepur líka. Félags­leg ein­angrun er pynt­ing­ar­að­ferð.“

Elísabet gagn­rýnir harð­lega grímu­skyldu sótt­varn­ar­yf­ir­valda og segir það svo rangt að ekki sé hægt að ræða hlut­ina á mál­efna­legum grunni. „Þetta er mjög alvar­legt. Ég hef ekki séð neinar nýjar vís­inda­rann­sóknir sem segja að grímunotkun geri neitt gagn. Ekkert neitt ótví­rætt og það er eng­inn að lesa vís­indin heldur fylgja bara í blindni. Grím­urnar gera það að verkum að við öndum ekki eðli­lega og við hegðum okkur örðu­visi með grím­urnar,“ segir Elísabet.

„Ég upp­lifi bara eins og við séum í Norður-Kóreu og mér finnst við hafa gengið of langt“

Þetta rímar við það sem Trausti Eysteins­son, múr­ari og önd­un­ar­sér­fræð­ingur, full­yrðir. Hann varð í vik­unni frægur á einu auga­bragði eftir að hann birti mynd­band af sér í Bónus þar sem hann streitt­ist gegn grímu­skyldu í Bónus. Þar full­yrti Trausti jafn­framt að hann þekki marga lækna sem séu brjál­aðir yfir hörðum sótt­varn­ar­að­gerðum hér­lendis en þeir þori ekki að stíga fram.

„Grím­urnar gera ekki neitt gagn. Það er verið að taka súr­efni frá fólki. Gríman er filter gagn­vart því að með útönd­unn­inni náum við ekki að losa eit­ur­efnin út. Ég hrein­lega þoli ekki þessa for­ræð­is­hyggju. Það er svo ein­falt að sjá í gegnum þetta ef maður er pínu með­vit­aður um lungun á sér. Ég veit alveg hvað ég er að gera og veit þetta miklu betur enda mennt­aður í því að kenna fólki að anda. Það er verið að fremja glæp gegn fólki,“ sagði Trausti í sam­tali við Mannlíf.

Þessu virð­ist Elísabet vera full­komn­lega sam­mála því grím­urnar geti hrein­lega gert illt verra. Hún varar sér­stak­lega við taugrímum sem geti bein­línis verið hættu­legar. „Ég hef starfað sem læknir út um allan heim, meðal ann­ars á svæðum þar sem hafa verið far­aldrar og fjöló­næmar hættu­legar bakt­er­íur í hverju barni. Eðlilega hef ég því kynnt mér vel sótt­varnir í sam­bandi við það. Þar sem veiru­far­aldrar hafa geisað hafa verið gerðar miklar rann­sóknir á grímunotkun. Það er bein­línis mælt gegn notkun bómull­ar­gríma enda rann­sóknir sýnt að þær eru hættu­legar og sér­stak­lega fyrir þá sem eru með lélega önd­un­ar­vegi. Í grím­urnar safn­ast raki sem verður gróðr­ar­stía fyrir sveppi og bakt­er­íur því þeir sem eru með slæma bakt­er­íuflóru í önd­un­ar­veg­inum anda þessu í grímuna þar sem það vex og dafnar. Rann­sóknir hafa sýnt að allt að 40 pró­sent þeirra sem hafa dáið vegna Covid eru að gera það vegna sveppa­sýk­inga í lung­unum sem orsakast útaf þessum grímum,“ segir Elísabet og bætir við:

„Finnst ykkur ekk­ert sorg­legt að fara úti og sjá alla með grímur? Það er ekki vörn gegn veiru. Það er ekki umdeilt, það er þannig. Það vita það allir skurð­læknar að skurð­grímur eru ekki til að verja okkur fyrir sýk­ingum eða sjúk­ling­ana fyrir sýk­ingum. Það eru fullt af rann­sóknum sem sýna það að það er ekki minni sýk­ing­ar­hætta hvort sem læknir og starfs­fólk er með grímu eða ekki. Þetta er bara til að verja okkur fyrir slettum því það er ekk­ert gaman að fá blóð­slettu upp í munn­inn.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina