Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Trausti tjáir sig: „Veit þetta miklu betur enda menntaður í því að kenna fólki að anda“

Trausti tjáir sig: „Veit þetta miklu betur enda menntaður í því að kenna fólki að anda“

Trausti Eysteins­son, múr­ari og önd­un­ar­sér­fræð­ingur, telur sig lagðan í ein­elti í netheimum þrátt fyrir að hafa full­kom­lega rétt fyrir sér. Hann leggur á það áherslu að reiði sín bein­ist ekki gegn starfs­fólki versl­ana og því vill hana nota tæki­færið og biðja starfs­menn Bónus afsök­unar.

Trausti varð frægur á einu auga­bragði eftir að hann birti mynd­band af sér í Bónus þar sem hann streitt­ist gegn grímu­skyldu versl­un­ar­innar. Annað eins skít­kast og hellt­ist yfir hann í kjöl­farið seg­ist önd­ur­sér­fræð­ing­ur­inn ekki áður hafa séð. Aðspurður hvort upp­lifunin sé sær­andi svarar Trausti ját­andi.

„Það er ótrú­legt níð og svaka­legt ein­elti í gangi. Ég er bara dæmdur án dóms og laga. Það eru allir með til­finn­ingar en þarna er sof­andi fólk að særa, talandi upp úr svefni. Ég ætla ekki að vera reiður út í þetta fólk, þetta fýkur af mér eins og ekki neitt. Ég veit alveg hvað ég er að gera og veit þetta miklu betur enda mennt­aður í því að kenna fólki að anda. Í þessu mynd­bandi var ég ekki að tala við starfs­fólkið heldur yfir­valdið og í raun­inni alla þá sem eru sof­andi þarna úti. Þessi for­ræð­is­hyggja er svaka­legt svindl og það mun kom betur upp á yfir­borðið. Heim­ur­inn er að falla og póli­tíkusarnir eru að nota Covid til að breiða yfir skít­inn,“ segir Trausti sem ítrekar að hann viti vel hvað hann talar um:

„Ég veit alveg hvað ég er að gera og veit þetta miklu betur enda mennt­aður í því að kenna fólki að anda.“

„Ég er búinn að vera að vinna í þessu allan dag­inn síð­ustu sjö mán­uði, frá morgni til kvölds þannig ég veit alveg hvað ég er að tala um. Þá er ég búinn að vera að kenna öndun síð­ustu þrettán ár. Fólk er blekkt og þess vegna lét ég heyra í mér. Mér gengur gott eitt til. Ég þekki per­sónu­lega fullt af læknum sem eru búnir að stíga til hliðar og eru brjál­aðir. Það er verið að fremja glæp gegn fólki, ég sé þetta alveg.“

Glæp­ur­inn sem Trausti vísar þar til er skyldu­notkun á and­lits­grímum með hertum aðgerðum sótt­varn­ar­yf­ir­valda. Hann ætlar að ráð­ast í og kosta sjálfur aug­lýs­inga­her­ferð á næst­unni. „Ég er að búa til aug­lýs­ingu núna með graf­ískum hönn­uði sem á að fara á strætó og allt saman. Þar mun ég kenna fólki að anda og vinna bug á með­virkn­inni. Þetta eru gríðar erf­iðir tímar sem við erum stödd á. Sjálfur fæ ég ekki að sjá barnið mitt því hún var þvinguð í Covid-test sex ára gömul. Hún var með tárin í augun þegar hún sagði mér frá því,“ segir Trausti í sam­tali við Mannlíf.

„Það er svo ein­falt að sjá í gegnum þetta ef maður er pínu með­vit­aður um lungun á sér.“

Í netheimum hefur Trausti verið gagn­rýndur fyrir að beina reiði sinni að starfs­fólki Bónus, eins og sjá má í mynd­band­inu. Alla þá sem mis­skildu skila­boðin sín vill hann biðj­ast afsök­unar. „Sér­stak­lega starfs­fólkið í búð­inni, auð­vitað. Ég er skap­maður en ég er líka fljótur niður og mjög fljótur að segja fyr­ir­gefðu. Ég er ekk­ert pirr­aður út í það heldur útí það hvað yfir­völd eru að láta fólk gera. Grím­urnar gera ekki neitt gagn. Það er verið að taka súr­efni frá fólki. Það er svo ein­falt að sjá í gegnum þetta ef maður er pínu með­vit­aður um lungun á sér. Frá því að ég var eins árs hef ég verið með sködduð lungu og ég get ekki gengið með grímu. Með henni er ég alltaf að kafna. Gríman er filter gagn­vart því að með útönd­unn­inni náum við ekki að losa eit­ur­efnin út. Ég hrein­lega þoli ekki þessa for­ræð­is­hyggju,“ segir Trausti.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina